Færslur: 2021 Ágúst10.08.2021 21:37Akranes og Drangur á leið til DanmerkurI siðustu viku hélt tvibytnan Akranes úr höfn á stöðvarfirði með togbátinn Drang ÁR 307 sem að sökk i höfninni á stöðvarfirði i október 2020 og mun ferðinni heitið til Fornes i Danmörku þar sem að skipið verður rifið i brotaján að sögn Garðars Valberg skipstjóra á Akranesi ve en hann var ekki viss um hvað yrið um það skip mögulega verður það selt áfram
Skrifað af Þorgeir 09.08.2021 23:02Jenný Hu 40
Skrifað af Þorgeir 08.08.2021 23:20Byggðarsafnið á Garðskaga
Byggðasafnið á Garðskaga er staðsett í miðri náttúruparadís þar sem fjölbreytt fuglalíf, náttúrufergurð og dýrarlíf skarta sínu fegursta. Safnið var fyrst opnað 1995 og hefur verið starfrækt síðan. Safnið er alhliða byggða og sjóminjasafn og er sérstaða safnsins einstakt vélasafn þess. 60 vélar eru á safninu sem eru allar uppgerðar af Guðna Ingimundarsyni í Garði, flestar eru þær gangfærar. Safnið hefur til sýnis ýmsa muni sem tengdust búskaparháttum til sjós og lands, elstu munir eru orðnir yfir eitthundrað ára gamlir. Fallegt safn af gömlum útvörpum og ýmsum tækjum og tólum sem notuð voru á heimilum á fyrri árum, skólastofa, skóvinnustofa og verslun Þorláks Benediktssonar svo fátt eitt sé nefnt. Stór hluti af safninu eru sjóminjar, ýmsir hlutir sem notaðir voru við fiskveiðar og til verkunar fisks á landi. Á safninu er sexæringur, níu metra langur bátur með Engeyjarlagi smíðaður 1887. Á staðnum er veitingahús með útsýnissvölum þar sem möguleiki er að koma auga á hvali í sínum náttúrulegu umhverfi. Stóri vitinn, sá stærsti á Íslandi, geymir tvær sýningar sem eru innifaldar í aðgangi að safninu. Norðurljósasýningu og Hvalasýningu. Af topp svölum hans er frábært útsýni. Gott tjaldstæði er á svæðinu. Opnunartími: alla daga kl. 12-20. Fyrir hópa hafið samband við safnstjóra í síma 893-8909 eða með tölvupósti: johann@gardskagi.com. Skrifað af Þorgeir 08.08.2021 22:49Björgvin Ns 1
Skrifað af Þorgeir 07.08.2021 16:26Sandgerðishöfn i Gærkveldi
Skrifað af Þorgeir 07.08.2021 14:21Garðskagavitar að kveldi 6 ágúst
Skrifað af Þorgeir 07.08.2021 01:25Grinarvikurhöfn og eldgosið i Geldingadölum i kvöld
Skrifað af Þorgeir 06.08.2021 12:37Hulda Gk 17
Skrifað af Þorgeir 05.08.2021 00:43MINNA Á MIKILVÆGI SÓTTVARNA
Síldarvinnslan hefur sent frá sér áminningu um mikilvægi sóttvarna á allar starfsstöðvar og skip fyrirtækisins. Covid-19 faraldurinn er á mikilli uppleið á ný, sem hefur orðið til þess að enn á ný hefur verið gripið til sóttvarnaraðgerða af hálfu stjórnvalda. Því er skynsamlegt að gæta áfram varúðar og mælst er til þess að hugað sé að persónulegum smitvörnum til að koma í veg fyrir smit og veikindi. Rétt er að benda á að bólusettir geta borið veiruna og smitað aðra þótt þeir veikist ekki sjálfir. Síldarvinnslan vill einnig fara þess á leit að fólk heimsæki alls ekki starfsstöðvar fyrirtækisins nema brýna nauðsyn beri til og hafi samband áður en komið er í heimsókn. Ef smit kemur upp getur það haft veruleg óþægindi í för með sér fyrir viðkomandi, aðstandendur og vinnufélaga, auk þess sem raunveruleg hætta er á að það muni hafa áhrif á starfsemi fyrirtækisins. Það er því allra hagur að fara áfram varlega og gera það sem hægt er til að lágmarka hættuna á smiti, til dæmis:
Ef svo ólíklega vill til að einhverjir starfsmenn séu ekki bólusettir vill Síldarvinnslan minna á mikilvægi þess og hvetja viðkomandi til að fara í bólusetningu við fyrsta tækifæri. Skrifað af Þorgeir 04.08.2021 18:38Búlandstindur reisir frauðkassaverksmiðju á Djúpavogi. Elís Grétarsson framkvæmdastjóri segir frauðkassana vistvæna. Gerðar hafi verið tilraunir með ýmis önnur efni en þau henti illa fyrir fisk og séu bæði flóknari og erfiðari í framleiðslu.„Hún er náttúrlega ekki risin. Það er bara verið að byrja á grunninum núna,“ sagði Elís Grétarsson framkvæmdastjóri Búlandstind á Djúpavogi þegar Fiskifréttir spurðu hann út í plastkassaverksmiðju sem til stendur að taka í gagnið þar. Hann segir þó stefnt að því að starfsemin hefjist öðru hvoru megin við næstu áramót. Verksmiðjan eigi að geta sinnt allri kassaþörf Búlandstinds, og meiru til ef áhugi annarra vaknar síðar meir. „Jú, það er hugmyndin með þessu. Við erum að flytja ansi mikið loft hérna á milli staða.“ Suma daga er Búlandstindur að senda frá sér allt að sjö flutningabíla af laxi og taka á móti öðru eins af tómum kössum. Skapar atvinnuHingað til hefur Búlandstindur keypt frauðplastkassa frá Tempru og flutt tóma á milli landshluta. Nú verða þeir framleiddir á staðnum og þar með minnkar kolefnissporið. Aðeins tvö fyrirtæki hér á landi hafa framleitt frauðplastkassa, Tempra og Borgarplast. Búlandstindur slátrar fiski frá báðum stóru laxeldisfyrirtækjunum á Austfjörðum, Löxum ehf. og Fiskeldi Austfjarða, en bæði félögin eru að meirihluta í eigu norska fyrirtækisins Måsøval. Elís reiknar með því að nýja kassaverksmiðjan skapi fimm manns á Djúpavogi atvinnu, en alls starfa um 80 manns hjá Búlandstindi og þar er stefnt á að slátra um 20 þúsund tonnum á þessu ári. Minnka kolefnissporið„Þetta eru vistvænir frauðkassar,“ segir Elís, spurður út í það hvort plastið sé ekki orðið illa séð nú til dags. „Við erum að framleiða þetta með raforku sem er græn orka, og við erum að minnka kolefnissporið frá því sem er í dag, og svo eru þessir kassar endurvinnanlegir, 100% endurvinnanlegir, hægt að endurvinna aftur úr þeim.“ Þar að auki henti aðrar umbúðir ekki jafn vel undir sjávarafurðir. Engar umbúðir verji hráefnið betur en frauðplastið, en vissulega sé búið að gera ýmsar tilraunir með önnur efni. „Við prófuðum til að mynda pappakassa og það var í sjálfu sér ekkert út á það að setja, nema hvað framleiðsluferlið er mikið flóknara og erfiðara. Við þurfum mikið á trjám að halda í þeim efnum. Framleiðslan á þeim umbúðum er ekki tilbúin fyrir umheiminn eins og hún er í dag. Við myndum þurfa að hreinsa upp skógana ansi hratt.“ Á hinn bóginn sé þá líka nauðsynlegt að tryggja að umgengnin um frauðplastið sé nógu góð. „Aðallega þá á hinum endanum, að menn skili þessu til endurvinnslu. En í dag er að minnsta kosti komið skilagjald á þetta.“ Skrifað af Þorgeir 04.08.2021 17:30Árvik Þh 258
Skrifað af Þorgeir 03.08.2021 23:11Húmar að kveldi
Skrifað af Þorgeir 03.08.2021 19:57Höfrungur III AK með 800 tonn upp úr sjó
Frystitogarinn Höfrungur III AK er nú í höfn í Reykjavík eftir velheppnaða veiðiferð. Friðrik Ingason, skipstjóri í veiðiferðinni, segir í samtali við heimasíðu Brims að heildaraflinn hafi verið 800 tonn upp úr sjó en skipið var hvort tveggja á Vestfjarðamiðum og SV-miðum. Við fengum mjög góða ýsuveiði á Látragunni og það var alls ekki svo mikið af þorski eða öðrum fisktegundum á slóðinni. Þetta var nánast hrein ýsa og stundum þurftum við ekki að toga í nema 10-15 mínútur til að fá góðan afla. Það var mjög mikið af gullkarfa á ferðinni þegar við komum á Halann en með því að beita lagni gátum við fengið ufsa og þorsk,” segir Friðrik en hann getur þess að karfagengdin hafi orðið til þess að hrekja skipið frá veiðum á Halanum. Út af Barðinu, sem er fyrir utan Halann, hafi þeir hins vegar fengið þokkalega þorsk- og grálúðuveiði. Önnur skip voru búin að gera það gott á þessum veiðum marga daga á undan og þó við höfum rétt náð í skottið á þessari hrotu getur maður ekki verið annað en sáttur við aflabrögðin. Við vorum einnig á Fjöllunum og þar eins og svo víða er gullkarfinn að þvælast fyrir okkur. Okkur tókst þó að veiða sæmilegt magn af ufsa. Það var helst með því að draga trollið á nóttinni að okkur tókst að veiða nokkuð hreinan ufsa og forðast karfann,” segir Friðrik Ingason. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1539 Gestir í dag: 48 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060955 Samtals gestir: 50951 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 17:39:21 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is