Færslur: 2024 Maí30.05.2024 16:052892 Björgúlfur EA 312
Skrifað af Þorgeir 28.05.2024 18:41Skip i slipp
Skrifað af Þorgeir 27.05.2024 22:42Hafnarfjarðarhöfn i vetrarbúningi
Skrifað af Þorgeir 27.05.2024 22:11Sandgerðisbótin i dag
Skrifað af Þorgeir 27.05.2024 18:15Uppsjávarveiðiskip i slipp á AkureyriÞað er talsvert að gera hjá slippnum á Akureyri þessa dagana enda þrjú uppsjávarskip hjá þeim i mismunandi verkefnum Sigurður ve 15 Gullberg Ve 292 og Hoffell Su 80 og sennilega á eftir að fjölga skipum von bráðar
Skrifað af Þorgeir 23.05.2024 23:41Tjaldur Óf 3
Skrifað af Þorgeir 23.05.2024 10:22Frosti EA 229
Skrifað af Þorgeir 21.05.2024 12:38Polar Aamaroq
Grænlenska skipið Polar Amaroq kom til Neskaupstaðar síðastliðið föstudagskvöld með fullfermi eða 2.200 tonn af kolmunna úr færeyskri lögsögu. Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar. „Við fengum aflann í sjö holum en veiðin hefur mikið minnkað frá því þrgar hún var mest. Holin voru miklu lengri nú en fyrr á vertíðinni eða frá sex og upp í átján tíma. Fiskurinn er að ganga í norður og er að dreifa sér,“ er haft eftir Sigurði Grétari Guðmundssyni skipstjóra sem kvað blíðuveður hafa verið allan túrinn sem sé sá síðasti að sinni „En við ætlum að geyma restina af kvótanum og taka eina tvo túra í haust. Næst á dagskrá er að hefja undirbúning makrílvertíðar,“ er haft eftir Sigurði sem segir kolmunnaveiðina að undanförnu hafa verið einstaklega góða. „Ég hef aldrei kynnst slíkri veiði áður. Við höfum landað aflanum í Skagen í Danmörku og hjá okkur hefur mun meiri tími farið í löndunarbið þar en í veiðar. Við höfum oftast þurft einungis tvo sólarhringa til að fylla bátinn,“ segir Sigurður. Þá kemur fram að systurskip Polar Amaroq, Polar Ammassak, sé nú í slipp í Frederikshavn í Danmörku. Bæði skipin sé í eigu fyrirtækisins Polar Pelagic sem er að hluta í eigu Síldarvinnslunnar. Skrifað af Þorgeir 20.05.2024 14:59Skemmtiferðaskip á AkureyriÞað var milt og gott veður á Akureyri i dag þrátt fyrir að snjóað hafi i nótt og fryst á Heiðum þrjú skemmtiferðaskip voru hérna við bryggju i dag með alls tæplega 7500 farþega og áhafnarmeðlimi talsverður stærðarmunur er á milli skipanna myndir Þorgeir Baldursson
Skrifað af Þorgeir 19.05.2024 22:30Bylting í fiskvinnslutækni
Skrifað af Þorgeir 19.05.2024 10:40Strandveiðikerfið hamli endurnýjun smábátannaKarri EA 26 heldur nú stöðugri til veiða úr Hrísey með nýjum síðustokkum. Sigurður Baldursson í bátasmíðafyrirtækinu Baldri Halldórssyni á Akureyri segir trillukarla bíða með endurbætur þar til strandveiðikerfið þjóni því markmiði að styðja við brothættar byggðir Sigurður Baldursson og Almar Björnsson, eigandi Karra EA 26, flytja bátinn til sjósetningar í síðustu viku. FF Mynd/Þorgeir Baldursson Deila „Það eru verri og skárri tímar,“ segir Sigurður Baldursson hjá Baldri Halldórssyni ehf. á Akureyri um verkefnastöðuna í bátaviðgerðum. Fyrirtækið flytur inn allra handa búnað í báta, fyrst og fremst frá Vetus í Hollandi, og segir Sigurður söluna hafa minnkað á þessu ári. „Trillukarlar eru alltaf að bíða eftir að strandveiðikerfið verði eitthvað lagað,“ segir Sigurður. Menn séu hikandi við að fjárfesta þegar strandveiðunum sé lokið í byrjun júlí án þess að þeir hafi náð ásættanlegri veiði. Sumir flytji á brott og það bitni á afleiddum störfum. „Kerfið er ekki að styrkja brothættar byggðir ef þeir þurfa að fara vestur til veiða og skilja heimabyggð sína eftir tekjulægri en áður.“ Hraðgengur en valturÍ síðustu viku var strandveiðibáturinn Karri, sem gerður er út frá Hrísey, sjósettur eftir yfirhalningu hjá Sigurði. „Þetta er Mótunarbátur sem er hraðgengur en var valtur og við settum á hann svokallaða síðustokka sem hægja á veltingnum,“ segir hann.
Karri EA 26 sjósettur. Mynd/Þorgeir Baldursson
Næstu verkefnin segir Sigurður vera hobbíbáta sem ekki hafi strandveiðileyfi. „Við erum að setja nýja Vetus-vél í Færeying og síðan þar á eftir erum við með nokkrar skemmtibáta til viðgerðar,“ segir hann. Fyrirtækið Baldur Halldórsson ehf. á sér langa sögu. „Pabbi byrjaði að smíða trébáta á Hlíðarenda 1953. Þetta hefur eiginlega verið starfrækt óslitið síðan. Allt breyttist upp úr 1975 þegar Fiskveiðasjóður hætti að lána til bátakaupa og trébátasmíðar dóu út,“ segir Sigurður. Þá hafi trefjaplastbátar tekið við. Yfir hundrað bátar síðan 1952„Pabbi fór að flytja inn skrokka og sá í framhaldi af því þessar vörur frá Vetus sem er risafyrirtæki í Hollandi með allt í báta; vélar og niður í smæstu hluti,“ segir Sigurður. Það sem var í upphafi aukabúgrein á landlitlum bóndabæ tók fljótlega alveg fyrir búskapinn. Alls voru smíðaðir fimmtíu trébátar hjá Baldri Halldórssyni og síðan þá hafa verið smíðaðir rúmlega fimmtíu plastbátar. Auk Sigurðar sjálfs er einn annar starfsmaður við bátana og Ingunn systir hans og meðeigandi er á skrifstofunni. Trefjaplastið ódrepandi„Í seinni tíð eru þetta mest breytingar á bátum. Það er verið að lengja báta og flikka upp á þá. Við höfum lengt allar gerðar af bátum, til dæmis Sómabáta og þessa Starlet-báta sem pabbi flutti inn á sínum tíma,“ segir Sigurður. Trefjaplast sé magnað efni. „Það virðist næstum ódrepandi. Ef skrokkurinn hefur verið vel gerður á sínum tíma er endalaust hægt að að laga bátana.“ Athygli vekur að reksturinn er enn á sama stað og í upphafi, við Hlíðarfjallsveg í um 160 metra hæð yfir sjávarmáli. „Ég hef stundum sagt þegar verið er að tala um hnattræna hlýnun og hækkun sjávar að þá sé kannski bara vissara að vera hér,“ segir Sigurður Baldursson. Fiskifrettir.is
Skrifað af Þorgeir 19.05.2024 10:32Þórður á Grenivík hafði afskrifað grásleppunaÞórður Ólafsson á Elínu Þh 82 frá Grenivík segir grásleppuveiði hafa gengið vel á Eyjafjarðarsvæðinu síðustu þrjú árin. Hann segir strandveiðikerfið mannfjandsamlegt. Þórður Ólafsson landar grásleppu á Dalvík á dögunum. Mynd/Þorgeir Baldursson Deila „Þetta er ekki alveg búið en þetta er orðið harðsótt, það er bara fjaran eftir,“ segir Þórður Ólafsson, sem gerir út Elínu ÞH 82 á grásleppu frá Grenivík. „Þetta byrjaði rólega en veiðin hefur gengið sæmilega og er búin að vera mjög góð síðustu þrjú árin og betri en við eigum að venjast á þessu Eyjafjarðarsvæði,“ segir Þórður. Oft komi skarpir toppar fyrir austan í Bakkaflóanum og í Húnaflóanum og Breiðafirðinum. Hann haldi að á Vestfjörðum sé enn meiri grásleppa en fyrir norðan. Þórður lagði fyrst net sín 13. apríl og á því nóg eftir af þeim 55 dögum sem veiða má og ætlar að halda áfram enn um sinn. „En ég verð aldrei þessa 55 daga,“ tekur hann fram. Ný von með sölu á ferskum hrognum„Ég hélt fyrir tuttugu árum að grásleppuveiðar myndu brátt heyra sögunni til,“ segir Þórður spurður um markaðsstöðuna. Það hafi síðan orðið stór breyting með því að selja hrognin fersk. „Ef ekki þarf að salta öll hrognin er komin ný von með þetta,“ segir hann. Sorglegt sé hins var að markaðir fyrir búkinn hafi lokast í Kína. „Mér skilst þó núna að menn séu að losna við þetta kostnaðarlaust. Þó að þetta geri ekki annað en að borga frystingu og flutning kalla ég það góðar fréttir á meðan það tekst. Það gerir ekki annað en að vinda upp á sig og enda með því að verða markaðsvara.“ Vill kerfi með virðinguEr grásleppunni sleppir tekur strandveiðin við hjá Þórði. „Ég fer á strandveiðina ef það verður ekki búið að loka,“ segir Grenvíkingurinn. Það fari í skapið á honum þegar talað sé um mokveiði á strandveiðunum. „Ég hef viðbjóð á þessu fyrirkomulagi. Þetta er búið til af mannvonsku,“ segir Þórður. Margar leiðir séu til að bæta kerfið. „Ef það á að leyfa þetta á annað borð, af hverju er það ekki gert með virðingu og jákvæðni?“ spyr Þórður. „Ef þetta væru bara þessir 48 dagar þá þarf engar aðrar takmarkanir. Ef menn vilja binda sig við einhvern pott sem má veiða þá væri líka hægt að setja lokadag um það hvenær menn geta sótt um strandveiðileyfi á hverju vori og skipta magninu hreinlega upp á milli bátanna.“ fiskifrettir.is Skrifað af Þorgeir 18.05.2024 16:32Hoffell SU 80
Skrifað af Þorgeir 14.05.2024 23:001512 Jón Kjartansson Su 111Nú seinnipart dags lagði Grettir sterki með Jón Kjartansson su 111 ex Hólmaborg su 11 og Eldborg HF 13 Frá Reyðarfirði á leiðis til Danmerkur en þangað hefur skipið verið selt i niðurrif það var fréttaritari siðunnar á Austfjörðum Guðlaugur Björn Birgisson sem að tók þessar frábæru drónamyndir þegar skipin héldu úr höfn og siðan koma nokkar úr safni siðueiganda kv þorgeir Baldursson
Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1902 Gestir í dag: 22 Flettingar í gær: 1858 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 1063176 Samtals gestir: 50976 Tölur uppfærðar: 22.12.2024 12:49:16 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is