01.11.2007 21:45Grunnskólanemar I BrekkuskólaSjávarútvegsráðuneytið hefur staðið fyrir rekstri skólaskips vor og haust undanfarin ár fyrir nemendur 9. og 10. bekkja grunnskóla landsins og hafa Fiskifélag Íslands, sjávarútvegsráðuneytið og Hafrannsóknastofnunin séð um framkvæmdina. Í dag 1. nóvember mun skipið hefja ferð sína með nemendur í grunnskólum höfuðborgarsvæðisins en ferðirnar munu standa yfir út nóvember. Skólaskipið mun fara í um 40 ferðir með yfir 600 nemendur en það eru tvær námsferðir á hverjum degi. Líkt og áður er það Fiskifélag Íslands sem skipuleggur ferðir skólaskipsins og sér um samskiptin við skólana og sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnuninni sjá um kennsluefnið og fræðsluna um borð. Í ferðunum fá nemendur að kynnast sjávarútveginum og vinnunni um borð í fiskiskipum. Líffræðingur frá Hafrannsóknastofnuninni verður með í för, fræðir þá um hinar ýmsu sjávarlífverur og kynnir starfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar. Skipstjórinn kynnir fyrir nemendum stjórntæki skipsins, veiðarfæri og vinnslulínu. Siglt er úr höfn og trollinu kastað. Þegar búið er að toga fá nemendur að gera að aflanum undir handleiðslu áhafnarinnar og líffræðings. Óhætt er að segja að um sé að ræða metnaðarfulla dagskrá þar sem nemendur kynnast mörgum hliðum á þessari mikilvægu atvinnugrein okkar Íslendinga, segir í frétt frá Fiskifélagi Íslands. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 675 Gestir í dag: 75 Flettingar í gær: 3352 Gestir í gær: 77 Samtals flettingar: 910532 Samtals gestir: 45899 Tölur uppfærðar: 13.10.2024 15:36:46 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is