Undir myndinni af Berg VE 44 kom ósk til Tryggva um mynd af systurskipi Bergs, Erlingi IV. Að sjálfsögðu brást Tryggvi við og sendi okkur þessa mynd af Erlingi, en Tryggvi hefur verið ötulur að senda okkur myndir að undanförnu, þannig að margar skemmtilegar bátamyndir eru enn óbirtar, sem hann hefur sent og að sjálfsögðu sendum við Tryggva bestu þakkir fyrir lánið á myndunum.
Erlingur IV VE 45 © mynd úr safni Tryggva Sigurðssonar