Mynd sú sem nú birtist var tekin af bátnum eftir að hann náði landi eftir mikið óveður þar sem m.a. frammastrið brotnaði eins og sést á myndinni. Komst hann inn til Keflavíkur þar sem myndinvoru tekin, en hann hafði verið úti á Faxaflóa þegar veðrið skall á bátnum á leið frá Ólafsvík. til nýrrar heimahafnar á Austfjörðum. Raunar fóru leikar þannig að hann var ekki gerður upp eftir þetta sjótjón, heldur lauk hann ferli sínum á áramótabrennu hálfu öðru ári síðar.En hver er báturinn?
© mynd Emil Páll