Mynd sú sem nú birtist er í raun staðfesting, sem hvergi hefur komið fram í skipaskrám. Málið snýst um það að Jónas Jónasson GK 101 frá Njarðvík var seldur til Eskifjarðar í maí 1966 og síðan brann hann og sökk 3. júní sama ár milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar. Fram að þessu er aðeins talað um að hann hafi haldið fyrra nafni þegar það gerðist, en á þessari mynd Tryggva Sig, kemur í ljós að hann hafði fengið nafnið Birkir SU 519 og sést raunar að málað hafði verið yfir fyrra nafn á stýrishúsinu og númerið að framan til að sitja hið nýja á. Með öðrum orðum það var Birkir SU 519 sem áður hét Jónas Jónasson GK 101 sem brann og sökk þarna.
622. Birkir SU 519 ex Jónas Jónasson GK 101 © mynd úr safni Tryggva Sig.