19.02.2010 14:27Isfélag Vestmanneyja LoðnufréttirJúpiter ÞH 363 kemur fyrir klettsnefið ©Mynd Óskar P Friðriksson Júpiter á Klettsvikinni ©Mynd Óskar P Friðriksson I innsiglingunni ©Mynd Óskar P Friðriksson Kominn til Eyja © Mynd Óskar P Friðriksson Klárir i löndun © Mynd Óskar P Friðriksson Löndun að hefjast i morgun © Myndir Óskar P Friðriksson Elvar Sturlusson kampakátur i hrognafrystingu ©mynd þorgeir Baldursson 2005 Þessa stundina er rifandi gangur i loðnuveiðum Álsey ve landaði i gær 870 tonnum af loðnu og 90 tonnum i hrognavinnslu Júpiter ÞH 363 kom inn til Eyja i morgun með milli 800- 900 tonn af kældri loðnu Góður gangur er hjá fyrstiskipinu Guðmundi VE 29 við erum enn á fullu að frysta fyrir Rússlandsmarkað, og gengur það mjög vel 145-150 tonn á sólarhring. Fyrsti loðnufarmurinn til hrognakreistingar kom til Eyja með Álsey í gær (fyrsta ferska loðnan til Eyja þessa vertíðina) hrognanýting var allt í lagi eða um 10%, ca 90tn af hrognum fengust úr ca 1000tn, en hrognin eru ekki orðin nógu þroskuð fyrir Japansmarkað ennþá og eru fryst sem svo kölluð iðnaðarhrogn fyrir A-Evrópu, en hrognin þroskast fljótt og verða fljótlega komin í nægjanlegan þroska fyrir Japanann. Við köstuðum í gærkvöldi (fimmtudagskvöld) hér á Faxaflóa, var það skínandi síli, en þó svolítið blönduð í þroska, en við mældum þó hrognaprósentuna u.þ.b. 24%. Við komum út í þennan túr á þriðjudag og fengum þá gott kast í Fjallasjónum, og reiknum með að ljúka frystingu á sunnudagskvöld, þ.e. um 43.000ks eða um 820tn Á morgun laugardag reikna ég með að við förum að flokka hrygnuna frá til kreistingar og komum til með að vera með góðan skammt til hrognatöku (ásamt frystum afurðum). .
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 815 Gestir í dag: 15 Flettingar í gær: 495 Gestir í gær: 29 Samtals flettingar: 1247466 Samtals gestir: 54867 Tölur uppfærðar: 11.3.2025 12:11:55 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is