20.04.2013 20:05

Ný skúta Norðursiglingar til heimahafnar á Húsavik

                        Opal á siglingu á skjálfanda © mynd þorgeir Baldursson 2013

                    Glæsileg Skúta Opal © mynd Þorgeir Baldursson 2013

Skonnortan Opal sem Norðursigling festi kaup á í ársbyrjun kom til nýrrar heimahafnar á Húsavík í gær.

Tekið var á móti Opal og áhöfn hennar með viðhöfn enda um að ræða glæsilega viðbót í flota Norðursiglingar.

Skútunni var siglt frá Ebeltoft í Danmörku, um Skotland og Færeyjar og gekk siglingin vel, undir seglum meiri hluta leiðarinnar. Samkvæmt Heimi Harðarsyni, skipstjóra Opal og eins eigenda Norðursiglingar reynist Opal afar vel, bæði traust og lipur til siglinga. Á Húsavík bíður Opal nýtt hlutverk sem leiðangurs- og hvalaskoðunarskip

Opal er 32 metra löng, tvímastra skonnorta með 380 m2 seglaflöt, níu segl. Opal hefur káetur fyrir 12 farþega, í sex klefum, auk áhafnar. Um borð er 280 hestafla Scania vél og skipið er vel búið tækni- og öryggisbúnaði.

Skonnortan er byggð sem togari í Damgarten árið 1952, eikarplankar á eikarbönd.  Árið 1973 tóku nýir, danskir eigendur við skipinu og á næstu átta árum þar á eftir var Opal breytt í skonnortuna sem hún er í dag. 

Með þessari viðbót hyggst Norðursigling byggja enn frekar undir framboð á skútusiglingum auk þess að mæta aukinni eftirspurn eftir lengri ferðum og leiðöngrum.heimild 640.is

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1309
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 598827
Samtals gestir: 24957
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 07:56:50
www.mbl.is