26.04.2013 11:44

Heimilt að veiða 15000 tonn af makril i Grænlenskri lögsögu

                         Polar  Amaroq ©  mynd þórhildur Eir Sigurgeirsdóttir 2013       



Fyrir nokkru ákváðu grænlensk stjórnvöld að heimila veiðar á 15 þúsund tonnum af makríl í grænlenskri lögsögu á komandi sumri.  Grænlendingar hafa farið þess á leit við íslensk stjórnvöld að fá að landa makrílnum á Íslandi og hefur verið fallist á að þeir fái að landa 12 þúsund tonnum hér á landi.

Í viðtali við Geir Zoëga skipstjóra á Polar Amaroq og áður skipstjóra á Eriku kom fram fyrir nokkru að vart hefði orðið við makríl í grænlenskri lögsögu í fyrra og hefði Erika m.a. veitt þar 2.500 tonn.  Nú hefur verið ákveðið að Íslendingar muni koma að rannsóknum á útbreiðslu makríls í grænlenskri lögsögu og er fyrirhugað að hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson haldi þangað til rannsókna í sumar.

Grænlenska makrílkvótanum verður úthlutað til grænlenskra fyrirtækja en þau geta síðan framselt hann áfram til veiðiskipa.  Því er mögulegt að íslensk skip geti lagt stund á makrílveiðar innan grænlenskrar lögsögu á komandi sumri rétt eins og tveir togarar Brims gerðu um tíma s.l. sumar.
 
Eina uppsjávarskip Grænlendinga er Polar Amaroq sem er í eigu East Greenland Codfish en eins og flestum er kunnugt á Síldarvinnslan þriðjung í því félagi.  Fullvíst má telja að auk Polar Amaroq muni frystitogarar veiða grænlenska makrílkvótann.
heimild www.svn.is

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 515
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 606225
Samtals gestir: 25631
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 09:59:16
www.mbl.is