29.04.2013 18:13Rækjuveðum hætt 1 Júli 2013 Rækuveiðar © Mynd þorgeir Baldursson Canadiskir Eftirlitsmenn i eftirliti á Flæmska Hattinum © mynd þorgeir Baldursson Veiðar á úthafsrækju byggja á sóknarstýringu og hefur verið ákveðið að veiðarnar verði stöðvaðar eigi síðar en 1. júlí. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þróunar veiða á yfirstandandi fiskveiðiári og til að tryggja ákveðinn fyrirsjáanleika. Þá má búast við að stjórn veiða á úthafsrækju komi til endurskoðunar fyrir upphaf næsta fiskveiðiárs. Þetta kemur fram í frétt á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins. Þar er rakið að frá fiskveiðiárinu 2000/2001 hafi ekki verið aflað upp í útgefið aflamark. Þá var einnig vísað til skýrslu starfshóps ráðuneytisins um veiðar á úthafsrækju frá 2010, þar sem ljáð var máls á því að tekin yrði upp sóknarstýring í stað aflamarksstýringar við stjórn veiða á stofninum, í því skyni að hvetja til betri nýtingar. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2259 Gestir í dag: 36 Flettingar í gær: 557 Gestir í gær: 48 Samtals flettingar: 569486 Samtals gestir: 21584 Tölur uppfærðar: 28.3.2024 23:30:26 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is