Börkur Nk 122 Með fyrstu loðnuna til Neskaupsstaðar 2014
Núna um miðnættið er Börkur Nk 122 að koma inn til Neskaupstaðar
með um 1050 tonn af loðnu sem að veiddust úti fyrir norðurlandi
einnig eru jóna Eðvalds SF 200 og Lundey Ns 14 á landleið
og nú mun vera farið að blása á miðunum og er spáin ekki góð fram i vikuna
Aflinn var 1050 tonn og fékkst hann í 5 holum. Sturla Þórðarson skipstjóri sagði í samtali við heimasíðuna
að í upphafi veiðiferðar hefði verið togað austan við Kolbeinseyjarhrygginn en í lokin norður af Langanesi.
Veðrið var hundleiðinlegt allan tímann og reyndar ekki alltaf hægt að vera við veiðar
. „Það sést nú ekki mikil loðna á þessum slóðum“, sagði Sturla,
“en þarna eru þó blettir sem geta gefið þokkalegan afla.
Það er enginn kraftur í veiðunum en loðnan sem fæst virðist vera ágæt.“
Polar Amaroq er á landleið með góðan loðnuafla og mun landa í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar þegar löndun úr Berki er lokið.
Heimild www.svn.is
|