|
2909 Bjarni Ólafsson AK 70 Mynd Jóhann Jóhannson 2016
|
Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur eignast meirihluta í útgerðarfyrirtækinu Runólfi Hallfreðssyni ehf.
sem gerir út uppsjávarskipið Bjarna Ólafsson AK 70.
Bræðurnir Gísli og Runólfur Runólfssynir verða áfram skipstjórar á skipinu
og eiga tæplega 25% hlut í útgerðinni á móti rúmlega 75% hlut Síldarvinnslunnar.
Fimm börn stofnenda félagsins, Runólfs Hallfreðssonar og Ragnheiðar Gísladóttur,
áttu 62% í útgerðinni að foreldrunum gengnum, en Ragnheiður lést síðasta vor.
Síldarvinnslan keypti í haust hlut þriggja systkinanna og jók hlut sinn þannig úr 38% í rúmlega 75%.
Mynd Jóhann Jóhannson
Teksti Morgunblaðið