13.03.2017 13:04Samningur um HafnsögubátNýverið var undirritaður samningur um smíði á nýjum og öflugum dráttarbáti fyrir Hafnasamlag Norðurlands en báturinn verður staðsettur á Akureyri. Lengi hefur verið brýn þörf á nýjum og öflugri dráttarbáti en þeim tveimur sem Hafnasamlag Norðurlands hefur yfir að ráða. Hinn væntanlegi dráttarbátur verður 22 m langur, 9 m breiður og mun hafa 41. tonna togkraft samanborið við 11,2 tonna togkraft sem stærri dráttarbátur Hafnasamlagsins, Sleipnir, býr yfir. Skemmtiferðaskipum sem hafa viðkomu á Akureyri og í öðrum höfnum á Norðurlandi hefur fjölgað mjög á undanförnum árum og jafnframt hafa skipin stækkað umtalsvert frá því sem áður var. Einnig koma stór olíuskip reglulega til Akureyrar. Að öllu samanlögðu kalla fleiri og stærri skip á að til staðar sé mun öflugri dráttarbátur en Hafnasamlag Norðurlands ræður yfir í dag. Einnig mun hinn nýi dráttarbátur verða mikilvægt öryggistæki fyrir skip og báta við Norðurland, að því ógleymdu að hann mun jafnframt þjóna stórskipahöfninni á Bakka á Húsavík og er samvinna milli hafnanna nú þegar hafin. Nýr dráttarbátur fyrir Hafnasamlag Norðurlands hefur verið inni á Samgönguáætlun 2016-2018. Smíði hans er styrkt af hluta af Hafnabótasjóði. Í ljósi þess að á fjárlögum fyrir árið 2016 var samþykkt fjárveiting til smíðinnar var það sameiginleg niðurstaða Hafnasamlags Norðurlands og Vegagerðinnar að fela Ríkiskaupum útboð á smíðinni á Evrópska efnhagssvæðinu. Ríkiskaup vann útboðsgögn og auglýsti smíði bátsins í sumarbyrjun 2016. Verkfræði- og ráðgjafarfyrirtækið NAVIS ehf. annaðist hins vegar þarfalýsingu smíðinnar. Átta tilboð bárust í smíðina og voru þau opnuð í nóvember sl. Hagstæðasta tilboðið átti spænska skipasmíðastöðin Armon í Navia á Spáni upp á 3,8 miljónir evra. (um 430 millj. ísl. króna á núverandi gengi). Gert er ráð fyrir að smíðin taki fjórtán mánuði og því má ætla að dráttarbáturinn komi til Akureyrar í sumarbyrjun 2018. Smíðasamningarnir voru undirritaðir á veitingastaðnum 1862, í Menningarhúsinu Hofi 9. mars sl.
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1527 Gestir í dag: 51 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 992948 Samtals gestir: 48558 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:48:29 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is