26.05.2017 23:06

Færnafnið Björg eins og manmma

 

 

 

                                  2893 Björg EA10  Af vef N4 2017

Nýr ísfiskstogari Samherja verður sjósettur á morgun laugardaginn 26.maí í Tyrklandi.

 

Skipið mun fá nafnið Björg EA 10, heimahöfn þess verður á Akureyri og verður skipið afhent á haustdögum.

Skipið fær nafn sitt frá móður Þorsteins Más Baldvinssonar, Björgu Finnbogadóttur.

Fjögur systurskip hafa verið í smíðum hjá Cemre skipasmíðastöðinni í Tyrklandi fyrir íslensk sjávarútvegsfyrirtæki.

Um er að ræða ísfisktogara með nokkuð nýstárlegu útliti. Kaldbakur EA 1 kom til heimahafnar á Akureyri í mars,

en Kaldbakur bætist við flota Útgerðarfélags Akureyrar.

  Björgúlfur EA 312, nýtt skip Samherja, er að sigla heim frá Tyrklandi og er nú staddur vestur af Portúgal

en hann mun skila sér til heimahafnar á Dalvík undir vikulokin. Drangey SK2 er nýtt skip Fisk Seafood á Sauðárkróki,

skipið er væntanlegt heim í lok sumars og kemur hann til með að leysa af hólmi Klakk SK5.

Síðasta skipið af þessum fjórum systurskipum verður sjósett á morgun laugardaginn 26.maí.

Skipið fær nafnið Björg með skráningar númerið EA 10 og verður heimahöfnin á Akureyri.

Skipið verður afhent á haustdögum. Skipið fær nafn móður Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, Bjargar Finnbogadóttur. 

Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, segist sérstaklega spenntur fyrir því að hefja rekstur á þessum nýju skipum, enda

hafi endurnýjun á flotanum verið orðin löngu tímabær.

                  2892 Björgúlfur EA312 mynd af Vef N42017

  2891 Kaldbakur EA 1 á Eyjafirði þann 4mars mynd þorgeirBaldursson 2017

   

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 2777
Gestir í dag: 136
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 600295
Samtals gestir: 25057
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 16:41:53
www.mbl.is