28.06.2019 22:19

Visindaskóli Ungafóksins

 

     Hópurinn um borð i Húna 11 EA 740 mynd þorgeir Baldursson

Þar sem að Erlendur Bogasson Kafari fræddi börnin um fiskana i sjónum og atferli þeirra 

en siðan var farið uppI Matsal Útgerðarfélags Akureyringa og þar fengu þau að elda 

með Friðrik V sem að tókst ákaflega vel i alla staði og fóru allir saddir og glaðir heim 

 

Á námskeiðinu Fagur fiskur í sjó þar sem að Friðrik V eldaði hádegismat með krökkunum.

Vísindaskóli unga fólksins hófst á mánudaginn var og er þetta í fimmta skiptið skólinn starfar innan veggja Háskólans á Akureyri. Alls um 90 börn eru skráð í skólann og hópur barna er á biðlista eftir þátttöku. Nemendur eru á aldrinum 11-13 ára og koma alls staðar að af landinu.

 „Að venju erum við með ný þemu fyrir unga fólkið og við sem erum að undirbúa skólann erum alveg jafn spennt og nemendurnir. Öll fimm árin hefur verið uppselt í skólann og mörg dæmi um að sömu krakkarnir komi oftar en einu sinni“, segir Sigrún Stefánsdóttir, skólastjóri Vísindaskóla unga fólksins.

Meðal þess sem unga vísindafólkið mun fást við í næstu viku eru verkefni sem bera yfirskriftirnar: Kynslóðabrúin, Besta útgáfan af þér,  Fagur fiskur í sjó, Leikur að kóðum, smáforrit og róbótaforritun , og loks Fjármálavit, hvað kostar að vera unglingur Vísindaskólanum lýkur með formlegri útskrift föstudaginn 28. júní.

„Háskólinn á Akureyri lítur á þetta starf sem mikilvæga samfélagsþjónustu og lið í því að kynna ungu fólki það háskólanám sem er í boði innan veggja skólans. Vísindaskólinn hefur á undanförnum árum fengið mikilvægan stuðning frá fjölda aðila í bæjarfélaginu, sem gerir það mögulegt að starfrækja þessa vísindaviku,“ segir í tilkynningu.

Heimild Vikudagur.is

 

     Hópurinn með Friðrik V og Birgi Össurarsyni i matsal ÚA mynd þorgeir 

           sitrónur kreistar af miklum móð mynd þorgeir Baldursson  

             Friðrik V kennir réttu handtökin mynd þorgeir Baldursson 

                        Steiktur fiskur á pönnu mynd þorgeir Baldursson 

                     Grænmetið kryddað mynd þorgeir Baldursson 2019

    unglingarnir sýndu mikinn áhuga við eldamennskuna mynd þorgeir 

             hrist saman fiskur og kryddlögur mynd þorgeir Baldursson

             Strákunum kennt að saxa niður grænmeti mynd þorgeir Baldursson 

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1826
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 557
Gestir í gær: 48
Samtals flettingar: 569053
Samtals gestir: 21578
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 19:09:30
www.mbl.is