26.12.2020 23:09Leituðu kajakræðara, sáu einungis hvali
Leitað var á þriðju klukkustund upp úr hádegi í dag að kajakræðara sem talinn var hafa lent í vandræðum í sjónum á milli Akureyrar og Svalbarðsstrandar, en enginn fannst. Álitið er að um missýn hafi verið að ræða, mögulega að hvalur hafi verið við yfirborð sjávar því leitarmenn sáu töluvert af hval. Mikill fjöldi leitarmanna var ræstur út og aðgerðarstjórn virkjuð. Um var að ræða „fullt útkall“ eins og varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra orðaði það. Félagar í björgunarsveitinni Súlum leituðu á báti, sömuleiðis slökkviliðsmenn og starfsmenn Akureyrarhafnar á hafnsögubátum. Þá notaði lögreglan dróna sem tók bæði hitamyndir og kvikmynd. Björgunarsveitarmenn frá Siglufirði, Dalvík, Grenivík og Svalbarðsströnd voru líka kallaðir út en eftir að leit hafði staðið yfir í rúma tvo tíma og ekkert sést nema töluvert af hval að leik eða hangandi upp við yfirborðið, þótti einsýnt hvers kyns var. Hvalur sást bæði á Pollinum og utar, en tilkynnt var að meintur kajakræðari hefði verið í sjónum austur af Slippnum, nálægt Svalbarðsströnd. Varðstjóri hjá lögreglunni sagði að í raun hefði útkallið verið góð æfing og leitin afar nákvæm. Aðgerðir stóðu alls í þrjár klukkustundir og var hann einkar ánægður með „æfinguna“ því allir hefðu brugðist fljótt við og allt gengið vel. Akureyri.net Greinir frá þessu i dag Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is