|
2350 Árni Friðriksson RE 200 Mynd þorgeir Baldursson |
|
Árni Friðriksson, rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, hélt af stað í kortlagningu hafsbotnsins í gær og mun leiðangurinn standa til 1. júlí. Fram kemur í tilkynningu á vef stofnunarinnar að ætlunin er í þessum leiðangri að kortleggja 17 þúsund ferkílómetra svæði út við mörk efnahagslögsögu Íslands.
„Svæðið afmarkast af mælingum frá árinu 2018 í austur og Reykjaneshrygg í vestur. Hafsbotninn er á um 1.300 – 2.200 metra dýpi. Í einfaldasta máli ræðst lögun hans að miklu leyti af nálægð við rekbeltið þar sem ný skorpa myndast á hryggnum, kólnar og sekkur eftir því sem Evrasíuflekinn rekur í austur,“ segir í tilkynningunni.
Þessi hluti af Reykjaneshrygg (merkt með gráu á kortinu) var síðast mældur árið 1994 í Charles Darwin leiðangrinum. Þá var beitt fjölgeislamæli af tegundinni EM12.
Yfirlit fjölgeislamælinga Hafrannsóknastofnunar árin 2000 til 2020 Kort/?Hafrannsóknastofnun