28.04.2026 23:58

Erfið staða í Land­eyja­höfn

                                   3031 Álfsnes við bryggju i Eyjum mynd þorgeir Baldursson 

Á dögunum 17.-27. apríl sl. vann Álfsnesið með hléum við dýpkun í hafnarmynninu og náði  að koma skaflinum í um -2,7 m dýpi sem gerir vinnu í næsta glugga auðveldari, sjá mynd af dýpinu 24. apríl. Þannig að þegar færi gefst undir eða um helgina næst vonandi að vinna verkið hraðar.

Herjólfur
Vegagerðin ákvað þegar bilun kom upp í annarri af tveimur vélum í Herjólfi IV að færa Baldur til Vestmannaeyja til afleysinga þar sem viðbragðstími Baldurs er mjög stuttur.  Í framhaldi af bilanagreiningu á Herjólfi IV var ákveðið að undirbúa að Herjólfur III gæti komið inn sem varaskip ef þörf væri á.  Vel hefur gengið að undirbúa skipið til siglinga og er áætlað að áhöfn frá Herjólfi ohf. komi til Reykjavíkur í byrjun næstu viku til að undirbúa skipið til siglinga. Því miður hefur ekki tekist að skipuleggja þetta hraðar.

Herjólfur III ristir töluvert dýpra en Herjólfur IV og mun því að svo stöddu ekki geta siglt inn í Landeyjahöfn en gæti siglt til Þorlákshafnar.

Bilaða vél Herjólfs IV er komin á verkstæði í Hollandi þar sem hún verður yfirfarin og lagfærð.  Beðið er eftir upplýsingum frá forsvarsmönnum viðgerðanna um hversu langan tíma verkið mun taka.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1792
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 5612
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 2876457
Samtals gestir: 72883
Tölur uppfærðar: 29.4.2026 05:37:28
www.mbl.is