09.05.2026 11:57Gullver NS seldur til GambíuGullver NS seldur til GambíuRætt við Gunnlaug Hafsteinsson vélstjóra sem á margar minningar sem tengjast skipinu
Gullver hefur að undanförnu legið í Hafnarfjarðarhöfn. Nýtt nafn, Elisabeth H, hefur verið málað á skipið og einnig heiti nýrrar heimahafnar, Banjul. Mynd/Grétar Örn Sigfinnsson Gullver NS hefur verið seldur til Gambíu í Afríku. Hann hefur legið í Hafnarfjarðarhöfn að undanförnu og þar var nýtt nafn málað á skipið ásamt nafni nýrrar heimahafnar. Skipið hefur fengið nafnið Elisabeth H og er hin nýja heimahöfn Banjul, höfuðborg Afríkuríkisins Gambiu. Skipið heitir eftir dóttur hins nýja eiganda skipsins, sem er norskur.
Síldarvinnslan ákvað að leggja ísfisktogurunum Gullveri NS og Jóhönnu Gísladóttur GK og hefja útgerð togarans Birtings NK í þeirra stað. Gullver og Jóhanna Gísladóttur voru auglýst til sölu í kjölfar þessarar ákvörðunar. Gullver er dæmigerður skuttogari, smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1983 og 674 brúttótonn að stærð. Í skipinu er 1.770 hestafla vél af gerðinni MAK.
Gullver NS 12 kom nýr til Seyðisfjarðar þriðjudaginn 12. júlí árið 1983 og var eigandi hans Gullberg hf., sem var félag í eigu Ólafs M. Ólafssonar og Jóns Pálssonar skipstjóra. Gullberg hf. varð síðar Gullberg ehf. Þann 25. september árið 2014 festi Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað kaup á Gullbergi ehf. Síldarvinnslan hélt áfram að gera Gullver út frá Seyðisfirði eftir að skipið komst í hennar eigu.
Seyðisfjörður var heimahöfn skipsins í 43 ár og má halda því fram með góðum rökum að skipið hafi gegnt mikilvægu hlutverki í atvinnulífi staðarins allan þann tíma. Sá maður sem líklega hefur lengst verið skipverji á Gullveri er Gunnlaugur Hafsteinsson vélstjóri.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Gunnlaug. Hann sagði vissulega margar minningar tengdar skipinu. „Ég á margar minningar sem tengjast verunni á skipinu og flestar eru þær afar ljúfar og góðar. Mér leið alltaf vel um borð. Ég fór fyrsta túrinn á skipinu 1984 og þá sem vélstjóri. Ég fór síðan einn túr sem matsveinn árið 1985 en á þeim tíma var ég vélstjóri á Gullbergi NS 11. Sumarið 1986 var ég á Berki frá Neskaupstað en var svo fastráðinn vélstjóri á Gullver og hef verið þar frá 1987 og yfirvélstjóri frá árinu 2000. Skipinu hefur afar lítið verið breytt á þessum rúmu 40 árum sem það var gert út frá Seyðisfirði og er það eitt af síðustu skipunum af þessari kynslóð skuttogara.
Það eru margir skipsfélagar eftirminnilegir og þá ekki síst þeir menn sem voru á skipinu fyrst eftir að ég kom um borð. Þetta voru hörkukallar og allt saman. Seyðfirðingar sem voru búnir að vera lengi í áhöfninni – eftirminnilegir karakterar og dugnaðarforkar. Það hafa margir góðir menn verið í áhöfn Gullvers í gegnum tíðina og ég hugsa hlýtt til þeirra.
Þegar rifjuð er upp fyrri tíð um borð í skipinu minnist ég þess sérstaklega að ég kláraði véliðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007 á meðan ég var úti á sjó. Prófin komu gjarnan á faxi um borð í Gullver og skipstjóranum var treyst til þess að sjá um að allt færi fram eftir reglum. Afar lítið og óstabílt netsamband var þá í gegnum gamla NMT-símann.
Háskólanum þótti það merk nýlunda að framkvæma námið með þessum hætti. Eftirminnilegasti túr á skipinu var Smugutúr í október árið 1994 en þangað fórum við einungis einu sinni. Þarna fengum við svakalegt veður, yfir 20 metra vind og 18 stiga frost. Vatn fraus í öllum tönkum og skipið var einn ísklumpur. Við þurftum reglulega að sparka upp hurðum til að tryggja að einhver útgönguleið væri fær.
Ísjakar voru umhverfis skipið í túrnum og á þeim sáum við marga ísbirni. Við fleygðum til þeirra lambakjöti og það var áhugavert að sjá þá berjast um ætið. Við þær aðstæður sem þarna ríktu var ljóst að björgunarbátar kæmu að engu gagni ef í nauðir ræki.
Ég hef varðveitt þó nokkuð af myndum og munum úr skipinu og ég veit að mörgum finnst það vel til fundið. Ég hef til dæmis allar véladagbækurnar undir höndum en þær eru 105 að tölu. Ég er einnig með nokkrar skipsdagbækur. Ég held að allir Seyðfirðingar hugsi hlýtt til þessa skips og vonandi gefst okkur tækifæri til að koma þessum myndum og munum þannig fyrir að allir geti skoðað og rifjað upp Gullversárin,” sagði Gunnlaugur. Heimild Fiskifrettir Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 14789 Gestir í dag: 13 Flettingar í gær: 4682 Gestir í gær: 12 Samtals flettingar: 2925323 Samtals gestir: 72986 Tölur uppfærðar: 9.5.2026 17:00:02 |
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is