20.05.2026 23:33Eigendur Snekkjunnar stefna Rikinu Og Gæslunni
Eigendur lúxussnekkjunnar La Datcha, sem siglir undir fána Panama, hafa stefnt íslenska ríkinu og Landhelgisgæslunni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur en snekkjunni var í mars meinað að leggjast að bryggju á Akureyri vegna tengsla hennar við Rússa. Landhelgisgæslan vísaði skipinu þá úr íslenskri landhelgi. Aðalkrafa eigendanna er að ákvörðunin um að meina skipinu að leggjast að bryggju á Akureyri verði felld úr gildi en varakrafan að ólögmætt hafi verið að vísa skipinu úr íslenskri landhelgi. Gunnar Sturluson, lögmaður eigenda snekkjunnar, segir það undir í málinu hvort þvingunaraðgerðir íslenskra stjórnvalda nái til snekkjunnar. Frétt af mbl.isÁ leið úr íslenskri landhelgi eftir bilun í nóttReynir á afturvikra lagasetningu„Útgerðin þarf að fá úr því skorið hvort þetta standist. Þarna reynir á afturvirka lagasetningu en Evrópusambandið setti reglugerð í apríl sem miða við atburði sem gerðust í febrúar, þannig að þeir létu reglurnar gilda afturvirkt. Þetta var ekki innleitt á Íslandi fyrr en enn síðar. Síðan eru svona tæknileg atriði sem eru undir í málinu,“ segir hann. Gunnar segir t.a.m. reglugerðina sem um ræðir mæla fyrir um hafnarbann fyrir skip sem falla undir hana en Landhelgisgæslan hafi gengið lengra og vísað skipinu úr íslenskri landhelgi. „Þetta snýst m.a. um að Landhelgisgæslan tók ákvörðun um að vísa skipinu úr íslenskri lögsögu á grundvelli reglna um þvingunaraðgerðir gegn Rússlandi og við teljum að ákvörðunin sem gæslan tók sé ólögmæt. Við erum m.a. að krefjast þess að hún verði felld úr gildi.“ Frétt af mbl.isÁttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn íÓtilgreint tjón blasir viðEru fjárhagslegir hagsmunir undir? „Það kemur í ljós. Ég get ekki tjáð mig um það.“ Það hlýtur samt að hafa orðið eitthvert tjón, er það ekki? „Það blasir við.“ Þú getur ekkert slegið á umfang þess? „Nei.“ Gunnar segir málið hafa hlotið flýtimeðferð fyrir héraðsdómi og að næsta fyrirtaka verði 1. júní. Áttu von á umfangsmikilli aðalmeðferð þegar að því kemur eða er þetta ekki tiltölulega einfalt? „Það eru náttúrulega nokkuð flókin lögfræðileg atriði sem eru til skoðunar.“ Heimild Morgunblaðið myndir Þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 587 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 2323 Gestir í gær: 5 Samtals flettingar: 2967843 Samtals gestir: 73339 Tölur uppfærðar: 21.5.2026 02:00:28 |
||
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is