|
Sólberg ÓF 1 og Árni Friðriksson HF 200 I Slippnum á Akureyri mynd þorgeir Baldursson
Togarinn Sólberg ÓF er í slipp í flotkví Slippsins Akureyri en skipið fór upp í kjölfar þess að Árni Friðrikssyni, rannsóknarskipi Hafrannsóknastofnunar, fór niður eftir umtalsvert viðhald.
Páll Kristjánsson framkvæmdastjóri Slippsins segir flest af verkefnum fyrirækisins nú vera hefðbundin slippverkefni en minna sé um nýsmíði.
Sólberg fer í góða yfirhalningu en Páll Kristjánsson, framkvæmdastjóri Slippsins Akureyri segir verkefnin vera fjölbreytt.
„Það er allt frá vinnu við þvott, málningu, stálbreytingar, viðhald vinnslubúnaðar og margt fleira,“ telur hann upp, en mjög stór hluti af starfsemi fyrirtækisins snýr að þjónustu við íslensk og erlend fiskiskip.
Ný færavinda í notkun
Páll segir að það sem helst hafi breyst nýlega hjá Slippnum Akureyri sé tilkoma nýrrar kynslóðar færavindu, DNG R1.
Hún leysi af hólmi DNG C6000 færavindu sem framleidd hefur verið frá árinu 1995 en erfiðara hafi verið orðið að fá fyrir hana réttan rafeindabúnað.
„R1-vindan sem nú er framleidd er byggð á nýjustu tækni í rafeindabúnaði og er því tilbúin til næstu ára og vonandi áratuga,“ útskýrir Páll. Sé litið fram í tímann telur hann að verkefnastaðan sé heilt yfir nokkuð góð.
Heimild mbl.is
Mynd Þorgeir Baldursson
|