29.05.2026 15:25

Átta sóttu um stöðu Forstjóra Hafró

                    Þórunn Þórðardóttir HF 300 á milli Kirkjutúrna Akureyrarkirkju mynd þorgeir Baldursson 

 

Atvinnuvegaráðuneytinu bárust átta umsóknir um stöðu forstjóra Hafrannsóknastofnunar en umsóknarfrestur rann út 22. maí.

Í lok september auglýsti ráðuneytið embættið laust til umsóknar.

Fór þáverandi forstjóri stofnunarinnar á fund ráðherra og óskaði eftir því að þurfa ekki að sitja út skipunartíma sinn.

Að öllu óbreyttu hefði hann átt að gegna stöðu forstjóra fram til 31. mars 2026.

Tók Eggert Benedikt Guðmundsson tímabundið við starfi forstjóra.

Í samtali við mbl.is á þeim tíma sagði Þorsteinn að auglýsingin hefði komið flatt upp á sig.

Skammt er síðan skýrsla var birt sem ráðgjafafyrirtækið Deloitte vann fyrir atvinnuvegaráðuneytið og eru þar margar og víðtækar tillögur gerðar

að endurbótum. Af skýrslunni má ráða að miklar brotalamir séu í stjórnun stofnunarinnar og er í því samhengi bent á reynsluleysi forstjóra, óljósa forgangsröðun verkefna og ágreinings innan vinnustaðar.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1255
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 1567
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 2997056
Samtals gestir: 73397
Tölur uppfærðar: 29.5.2026 21:30:16
www.mbl.is