02.06.2026 23:34

Baldur og Herjólfur sameina krafta sína

 

                                    Baldur og Herjólfur við bryggju i Þorlákshöfn mynd þorgeir Baldursson 2026

 

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands.

Fyrirkomulagið verður við lýði meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní.

Þjónusta við samfélagið tryggð

Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar.

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra kynnti þessar breytingar á íbúafundi sem Vegagerðin hélt í Vestmannaeyjum síðdegis í dag.

Vegna erfiðra aðstæðna og óhagstæðs veðurfars hefur lítið mátt út af bregða að siglingaáætlun Herjólfs raskist. Þegar Herjólfur siglir aðeins á einni vél getur skipið illa siglt til Landeyjahafnar ef ölduhæð fer yfir 2 m og/eða ef vindur er yfir 12 m/s en það er ekki óalgengt á þessum árstíma.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 804
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 1667
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 3007973
Samtals gestir: 73426
Tölur uppfærðar: 4.6.2026 04:26:34
www.mbl.is