30.06.2026 19:42Gæslunni stætt á að banna La Datcha að koma í höfn
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest ákvörðun Landhelgisgæslu Íslands um að meina lúxussnekkjunni La Datcha að koma til hafnar á Akureyri í mars á þessu ári. Dómur þess efnis féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun eftir að Tinkov-fjölskyldan með Oleg Tinkov í fararbroddi stefndi íslenska ríkinu vegna hafnbannsins. Málið vakti mikla athygli í mars. Snekkjan hafði verið leigð fyrir hóp ferðamanna sem hugðist stunda þyrluskíði á Norðurlandi, en þegar hún var á leið til landsins taldi Landhelgisgæslan að hún félli undir þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins gegn Rússlandi. Frétt af mbl.isLúxussnekkja á PollinumEiginkonan eigandi snekkjunnarEigendur snekkjunnar mótmæltu ákvörðuninni og bentu á að skipið sigldi undir fána Panama þegar það kom til Íslands. Þeir sögðu jafnframt að raunverulegir eigendur væru ekki lengur rússneskir. Frétt af mbl.isÁttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn íÍ dóminum kemur fram að snekkjan sé í eigu félags á Seychelles-eyjum sem er í eigu kýpversks sjóðs tengdum Tinkov-fjölskyldunni. Þar segir jafnframt að raunverulegur eigandi sé Rina Vosman, sem hafi afsalað sér rússneskum ríkisborgararétti eftir innrás Rússlands í Úkraínu. Eiginmaður hennar, Oleg Tinkov, stofnandi Tinkoff-bankans, hafi einnig sagt skilið við rússneskt ríkisfang og gagnrýnt innrásina opinberlega.
Frétt af mbl.isLúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á AkureyriSkipið var áður skráð í RússlandiKjarni deilunnar snerist þó ekki um eigendurna heldur sögu skipsins. Í nokkurn tíma hafði La Datcha verið leigð rússnesku fyrirtæki. Slík leiga kallast þurrleigusamningur og felur í sér að leigutakinn sér um allan rekstur skipsins á meðan eigandinn heldur eignarhaldinu. Vegna þessa var skipið skráð tímabundið í rússneska skipaskrá til að mega sigla þar. Eigendurnir sögðu að þessum samningi hefði verið sagt upp fljótlega eftir innrásina í Úkraínu í mars 2022. Þeir héldu því fram að tafir á því að afskrá skipið úr rússnesku skipaskránni hefðu verið alfarið á ábyrgð rússneskra yfirvalda en ekki þeirra sjálfra. Fáninn skipti mestu máliLandhelgisgæslan leit hins vegar ekki til eignarhaldsins heldur fánaskráningar skipsins. Samkvæmt reglum Evrópusambandsins, sem Ísland framfylgir, er skipum sem voru skráð undir rússneskum fána eftir 24. febrúar 2022 óheimilt að fá aðgang að höfnum innan EES, jafnvel þótt þau hafi síðar verið skráð undir fána annars ríkis. Landhelgisgæslan taldi því að snekkjan félli undir hafnarbannið þar sem hún hafði verið skráð undir rússneskum fána eftir innrásina áður en hún var síðar endurskráð í Panama. Fékk aðeins að taka eldsneytiÍ kjölfarið var snekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri og henni gert að yfirgefa íslenska landhelgi. Hún fékk þó sérstaka heimild til að koma einu sinni að landi til að taka eldsneyti og nauðsynlegar birgðir áður en hún hélt áfram ferð sinni til Grænlands. Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 370 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 1066 Gestir í gær: 3 Samtals flettingar: 3113022 Samtals gestir: 74245 Tölur uppfærðar: 27.7.2026 04:42:13 |
||||
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is