30.06.2026 22:29Íslendingar með norsku varðskipi vestur um hafNorska varðskipið KV Hopen hefur siglt á braut áleiðis til Bandaríkjanna eftir samstarfsverkefni með Landhelgisgæslunni á Íslandi. Um borð eru íslenskir varðskipsmenn sem kynna sér starfsemina.
Heimsókn Íslendinga um borð í KV Hopen. Mynd/Sjøforsvaret
Landhelgisgæsla Íslands og Landhelgisgæsla Noregs hafa á undanförnum dögum styrkt samstarf sitt með heimsókn norska varðskipsins LV Hopen til Reykjavíkur. Þetta kemur fram á Facevbook-síðu norsku Landhelgisgæslunnar í dag. Þar segir frá því að samstarfið hafi verið styrkt með fundum, gagnkvæmum heimsóknum í varðskipin og með því að skiptast á þekkingu á starfinu.
Sérstaklega mikilvægt fyrir Noreg og Ísland„Heimsóknin er hluti af samstarfinu í Arctic Coast Guard Forum þar sem heimskautaþjóðir deila reynslu sinni og skapa sameiginlegan skilning á verkefnum á norðurslóðum. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir Noreg og Ísland sem starfa við krefjandi aðstæður á sjó með löngum vegalengdum, flókinni landafræði og breytilegu veðri,“ segir á Facebook-síðu Norðmannanna.
Heimsóttu einnig flugdeild GæslunnarMeðan á dvölinni hér stóð heimsótti áhöfn KV Hopen flugdeild og höfuðstöðvar Landhelgisgæslu Íslands. Einnig heimsóttu þeir norsku varðskipið Þór og tóku á móti heimsókn áhafnarmeðlima Þórs um borð í Hopen. „Áhafnirnar ræddu meðal annars skipulag, getu, viðbragðs og útfærslu á daglegu starfi,“ segja Norðmennirnir.
Sigla með til BandaríkjannaÞá kemur fram að tveir íslenskir varðskipsmenn séu nú um borð í KV Hopen á áframhaldandi siglingu skipsins. Mun förinni heitið til Bandaríkjanna og Íslendingarnar tveir eru annars vegar stýrimaður og hins vegar háseti. Þeir verða hluti af áhöfninni og skiptast á þekkingu við Norðmennina, meðal annars um siglingafræði og drónatækni. Afar vel búið og varið skip
KV Hopen er þriðja og síðasta varðskipið í röð skipa sem á síðustu árum voru smíðuð fyrir Landhelgisgæslu Noregs. Skipið er 136,4 metra langt, tuttugu metra breitt og getur haft allt að hundrað menn í áhöfn. Það er sérstaklega byggt fyrir norðurslóðir og getur verið sjálfu sér nóg í allt að átta vikur við þær aðstæður. KV Hopen er hlaðið alls kyns tækni og er varið gegn ólífrænni og lífrænni mengun og sömuleiðis gegn geislavirkni og kjarnorkumengun. Varðskipið KV Hopen fékk nafn sitt þann 12. júní 2024. Lesa má nánari umfjöllun um skipið hér. Heimild fiskifréttir.is Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 316 Gestir í dag: 3 Flettingar í gær: 4991 Gestir í gær: 12 Samtals flettingar: 3055039 Samtals gestir: 73780 Tölur uppfærðar: 2.7.2026 04:57:44 |
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is