| Færslur: 2007 Apríl25.04.2007 08:38Héðinsfjarðargöng
 Skrifað af Þorgeir 24.04.2007 19:06Oddeyrin Ea 210
 Oddeyrin EA kom til hafnar í Hafnarfirði með mettúr. Veiðiferðin hófst þegar farið var út frá Hafnarfirði þann 24. mars og fiskaðist mjög vel í upphafi og var búið að fylla lestar skipsins þann 10. apríl þegar farið var í land til að landa hluta aflans svo hægt væri að klára veiðiferðina. Í dag 24. apríl kom Oddeyrin svo í land með fullfermi öðru sinni á einum mánuði. Aflaverðmæti eftir veiðiferð sem stóð yfir í einn mánuð frá þeim tíma sem farið var frá höfn og komið til hafnar aftur er um 100 milljónir. Er þetta önnur veiðiferð skipsins síðan skipið hóf veiðar fyrir Samherja á Akureyri. Skipstjóri í veiðiferðinni var Guðmundur Freyr Guðmundsson. © www.123.is/jobbigummi  Skrifað af Þorgeir 23.04.2007 23:50GÖMLU TRÉBÁTARNIR Á UNDANHALDI Það er synd að horfa á eftir öllum þessum gömlu góðu Eikarbátum á áramóta brennur og annas konar niðurrif  og væri nú gott að gera eins og sum hvalaskoðunnar fyrirtækin gera á húsavik að vera eingöngu með eikarbáta i sýnum hvalaskoðunnarferðum þvi að eins og  svo margir vita hafa þessi gömlu skip sál Skrifað af Þorgeir 22.04.2007 22:36Nýtt Gullberg til Eyja NÝTT GULLBERG  VE 292 KOM TIL VESMANNEYJA FYRIR STUTTU OG ER ÞAÐ HIÐ GLÆSILEGASTA SKIP MYNDINA TÓK ÓMAR GARÐARSSON HJÁ WWW.SUDURLAND.IS OG KANN ÉG HONUM BESTU ÞAKKIR FYRIR AFNOTIN  Skrifað af Þorgeir 21.04.2007 15:37Kaldbakur EA 1
 Skrifað af Þorgeir 21.04.2007 12:18Humarveiðar hafnarFyrsti humarfarmurinn er kominn í vinnslu hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum en Gandí landaði í morgun um 40 körum af humri eða rétt um tveimur tonnum. Humarinn er frekar smár enda er ekki enn búið að opna helstu veiðisvæði humars. Nú vinna rúmlega þrjátíu manns við humarvinnsluna í Vinnslustöðinni en samkvæmt heimildum www.sudurland er verið að skoða það að vinna á vöktum í sumar. Ólafur Skúli Guðjónsson skipsverji á Aron ÞH 105 Gengur hér frá humarafla i lestinni . Myndin er tekinn árið 1990, Aron ÞH heitir núna Stormur SH 333 Skrifað af Þorgeir 19.04.2007 13:54Hraðbátur á Eyjafirði Hraðbátur til sölu upplýsingar i sima 8611350 Skrifað af Þorgeir 16.04.2007 17:37björgunnaræfing með kallinumþegar mótorinn bilaði á bátnum þá er eins gott að menn hafi árarnar klárar og viti i hvaða átt skal róa fleyinu samanber bendingar skipstjórans  Skrifað af Þorgeir 15.04.2007 11:11Trillukarlar i Bótinni Tryggvi Valsteinsson dregur netin i kar en nú er komið hrygningarstopp sem hóft á miðnætti laugardaginn 14 og gildir til og með kl 10  30 april  2007 Skrifað af Þorgeir 15.04.2007 10:50ENGEY RE 1 LANDAR Á AKUREYRI ENGEY RE 1 landaði um 1700 tonnum af kolmunna afurðum á Akureyri á föstudagsmorgun  og hélt aftur til veiða i gærkveldi og var stefnan tekin á svipaðar slóðir kringum Færeyjar Skrifað af Þorgeir 10.04.2007 23:41BRÚAR GLUGGARNI ÞVEGNIR Agnar F Agnarsson i gluggaþrifum um borð i harðbak ea 3 einu skipa Brims  Skrifað af Þorgeir 10.04.2007 22:04Kaldbakur EA 1©Kaldbakur EA 1 kom til hafnar á Akureyri i morgun með um 100 tonn af blönduðum afla sem að fékkst fyrir austan land og hérna sést þegar verið var að losa pokann ofani móttökuna Magnus Antonsson fylgist með  Skrifað af Þorgeir 
 | Eldra efni 
 Um mig Nafn:Þorgeir Baldursson Farsími:8620479 Tölvupóstfang:thorgeirbald62@gmail.com Heimilisfang:Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð Staðsetning:Hörgárbyggð Um:Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi Tenglar
 Flettingar í dag: 7626 Gestir í dag: 44 Flettingar í gær: 12812 Gestir í gær: 70 Samtals flettingar: 2252913 Samtals gestir: 69024 Tölur uppfærðar: 31.10.2025 22:31:53 | |||
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is