Færslur: 2011 Mars

16.03.2011 02:02

Erlend skip i Norsku Lögsögunni


              Kaptian Durachenco EX (Pétur Jónsson RE ) © mynd Þorgeir 2011 

                                    Ivan Tornev  M-0066 © Mynd þorgeir Baldursson 2011

                        CIDADE DE AMARANTE A-3349-N © Mynd þorgeir Baldursson 2011
Hérna má sjá nokkra togara sem að stunda veiðar i lögsögu Norðmanna um þessar mundir en þar hefur verið
gott fiskerii um þessar mundir og hafa skipin verið að gera glimrandi góða túra á stuttum tima nokkur islensk skip hafa verið að veiðum þarna og hafa þeir látið vel af aflabrögðum og mun ég birta myndir af þeim innan skamms svo og öðrum sem að hafa ratað fyrir linsuna hjá mér











14.03.2011 13:53

Ný Cleopatra 33 til Lorient í Frakklandi


                                 LE Mercenaire © Mynd Högni Bergþórsson

Ný Cleopatra 33 til Lorient í Frakklandi 

 

Nú á dögunum var afgreidd ný Cleopatra til Lorient á vesturströnd Frakklands.

 

Kaupandi bátsins er Eddy Morange sjómaður frá Lorient.

 

Báturinn hefur hlotið nafnið Le Mercenaire. Báturinn mælist 11brúttótonn. Le Mercenaire er af gerðinni Cleopatra 33.

 

Aðalvél bátsins er af gerðinni Cummins 6CTA8.3M tengd ZF286IV-niðurfærslugír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni Furuno.

Báturinn er útbúinn til krabba og humarveiða með gildrum.  Lest bátsins er útbúinn úðunarkerfi til að halda skelfiski lifandi um borð. 

Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

 

Rými er fyrir 14stk 380lítra kör í lest. Stólar fyrir skipstjóra og háseta eru í brú. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.

Reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna um miðjan mánuðinn.

Nánari upplýsingar á www.trefjar.is 

 

-------------------------------

09.03.2011 21:46

Kappsigling út fjörðinn



                 Guðmundur VE 29 og Kaldbakur EA 1 © Mynd þorgeir Baldursson 2005
Það liggur oft mikið á þegar vel fiskast eins og i þessu tilfelli var Guðmundur VE að landa frosinni sild á Akureyri og Kaldbakur EA að landa bolfiski  i frystihús Brims H/F þarna voru skipstjórar þeir
Sturla Einarsson með Guðmund VE og Sveinn Hjálmarsson með Kaldbak EA báðir þekktir aflaskipstjórar
          



08.03.2011 20:40

Hásetinn með ljósmyndadelluna!

        þorgeir Baldursson © mynd Jóhann Ólafur Halldórsson

Sóknarfæri í sjávarútveg - feb. 2011

Þorgeir Baldursson, með myndavélina og hljóðnemann fyrir framan togarann Sólbak. "Fer aldrei á sjó án myndavélarinnar," segir hann.

 Þorgeir Baldursson á Akureyri fékk ljósmyndaáhuga um fermingu og hún ágerist með árunum:

Hásetinn með ljósmyndadelluna!

 "Blessaður vertu - ég hef ekki hugmynd um hvað ég á margar myndir. Ég veit bara að þær eru margar, bæði utan af sjó og úr landi," segir Þorgeir Baldursson, háseti á Akureyrartogaranum Sólbak EA 1 en hann er einn af þeim sjómönnum sem hefur ljósmyndadellu að tómstundagamni á sjónum. Og raunar má segja að í tilfelli Þorgeirs sé ljósmyndunin talsvert meira en hobbý núorðið því til hans leita margir um myndir af skipum og sjómennsku, auk þess sem hann tekur myndir árið um kring fyrir Íslenska sjómannaalmanakið.

"Ljósmyndadellan byrjaði um fermingu og þegar ég byrjaði í sjómennskunni þá fór ég að taka vélina með mér á sjóinn. Eftir því sem árin líða þá verður þetta sífellt ágengara tómstundagaman sem ég get bæði stundað úti á sjó og líka í fríum í landi," segir Þorgeir en hann fer víða til að taka myndir, sækir alls kyns viðburði og oft má sjá myndir frá honum í Morgunblaðinu og fleiri fjölmiðlum. Í dag er hann kominn með stafræna öfluga Canon myndavél sem jafnframt getur tekið hágæða hreyfimyndir og þegar svo ber undir tekur Þorgeir viðtöl fyrir mbl.is ef eitthvað áhugavert verður á vegi hans.

 Canoninn alltaf við hendina

"Ég fer aldrei á sjó öðruvísi en með vélina með mér, enda er ég alltaf á útkíkkinu eftir skipum til að mynda fyrir sjómannaalmanakið. Ég held skipulagða skrá yfir skipamyndirnar eftir skipaskrárnúmerum og með því kerfi er hægt að halda til haga ferli skipa þó þau breyti um nöfn og einkennisnúmer. Og það er mikið um slíkar eigendabreytingar og þá er nauðsynlegt að vera stöðugt að mynda til að vera með sem nýjastar myndir af skipunum hverju sinni," segir Þorgeir en hann hefur alltaf haft mikinn áhuga á skipum og sjávarútvegi og getur rakið sögu margra skipa í flotanum.

"Mér finnst flotinn okkar orðinn mjög gamall og sést best á því að skipið sem ég er á í dag er orðið 40 ára. Þannig er um mörg skip í fiskiskipaflotanum og fyrr en síðar hlýtur að koma að miklum breytingum á skipastólnum," segir Þorgeir en hann hefur um nokkurra ára skeið haldið úti vefsíðu á slóðinni www.123.is/thorgeirbald þar sem hann er með ljósmyndasafn og birtir fréttir og alls kyns fróðleik úr sjávarútvegi.

 Ljósmyndunin og sjómennskan fara vel saman

"Ljósmyndunin og sjómennskan fara ágætlega saman," segir Þorgeir en hann byrjaði á sjónum árið 1980 í heimabæ sínum á Húsavík. Fyrsti báturinn var Vinur ÞH 73, síðan lá leiðin meðal annars á Guðbjörgu ÞH 355 og í framhaldinu var Þorgeir um margra ára skeið á línu- og netabátnum Alberti Ólafssyni í Keflavík. Þá lá leiðin aftur norður en þá til Akureyrar þar sem hann hefur verið síðan á togurum ÚA og síðar Brims. Inn í milli fór hann meðal annars á Eyborgina og þar á Flæmska hattinn og var einnig um tíma á Dalborginni hjá Snorra Snorrasyni, skipstjóra.

"Í dag ræ ég 3 túra og einn í frí og líkar þetta fyrirkomulag mjög vel. Þetta eru stuttir túrar á Sólbak, við fiskum nánast eingöngu þorsk hér úti fyrir Norðurlandi  á Vestfjarðamiðum og austur á Digranesflak. Það kemur fyrir að ég taki ekki mynd í túr en það er sjaldgæft," segir Þorgeir og glottir! Enda er alltaf hægt að finna skip til að mynda eða skemmtileg sjónarhorn á lífið um borð.

 

06.03.2011 16:09

Þórir SF 77 togar i kaldafýlu


                                        Þórir SF 77 © Mynd Þorsteinn Guðmundsson 2011

                                  Þórir SF © Mynd þorsteinn Guðmundsson 2011
Þessar myndir af Þórir SF 77 tók þorsteinn Guðmundssson skipstjóri á Hvanney SF þegar skipin voru að veiðum við Tvisker nú ekki alls fyrir löngu og kann ég honum bestu þakkir fyrir afnotin
þess má ennfremur geta að siðueigandi var ekki i netsambandi siðustu 10 dag og vegna þess
komu eingar fréttir inná siðuna en það stendur til bóta i næsta túr að ég held

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1759
Gestir í dag: 100
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 599277
Samtals gestir: 25021
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 09:46:58
www.mbl.is