30.06.2026 22:29Íslendingar með norsku varðskipi vestur um hafNorska varðskipið KV Hopen hefur siglt á braut áleiðis til Bandaríkjanna eftir samstarfsverkefni með Landhelgisgæslunni á Íslandi. Um borð eru íslenskir varðskipsmenn sem kynna sér starfsemina.
Heimsókn Íslendinga um borð í KV Hopen. Mynd/Sjøforsvaret
Landhelgisgæsla Íslands og Landhelgisgæsla Noregs hafa á undanförnum dögum styrkt samstarf sitt með heimsókn norska varðskipsins LV Hopen til Reykjavíkur. Þetta kemur fram á Facevbook-síðu norsku Landhelgisgæslunnar í dag. Þar segir frá því að samstarfið hafi verið styrkt með fundum, gagnkvæmum heimsóknum í varðskipin og með því að skiptast á þekkingu á starfinu.
Sérstaklega mikilvægt fyrir Noreg og Ísland„Heimsóknin er hluti af samstarfinu í Arctic Coast Guard Forum þar sem heimskautaþjóðir deila reynslu sinni og skapa sameiginlegan skilning á verkefnum á norðurslóðum. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir Noreg og Ísland sem starfa við krefjandi aðstæður á sjó með löngum vegalengdum, flókinni landafræði og breytilegu veðri,“ segir á Facebook-síðu Norðmannanna.
Heimsóttu einnig flugdeild GæslunnarMeðan á dvölinni hér stóð heimsótti áhöfn KV Hopen flugdeild og höfuðstöðvar Landhelgisgæslu Íslands. Einnig heimsóttu þeir norsku varðskipið Þór og tóku á móti heimsókn áhafnarmeðlima Þórs um borð í Hopen. „Áhafnirnar ræddu meðal annars skipulag, getu, viðbragðs og útfærslu á daglegu starfi,“ segja Norðmennirnir.
Sigla með til BandaríkjannaÞá kemur fram að tveir íslenskir varðskipsmenn séu nú um borð í KV Hopen á áframhaldandi siglingu skipsins. Mun förinni heitið til Bandaríkjanna og Íslendingarnar tveir eru annars vegar stýrimaður og hins vegar háseti. Þeir verða hluti af áhöfninni og skiptast á þekkingu við Norðmennina, meðal annars um siglingafræði og drónatækni. Afar vel búið og varið skip
KV Hopen er þriðja og síðasta varðskipið í röð skipa sem á síðustu árum voru smíðuð fyrir Landhelgisgæslu Noregs. Skipið er 136,4 metra langt, tuttugu metra breitt og getur haft allt að hundrað menn í áhöfn. Það er sérstaklega byggt fyrir norðurslóðir og getur verið sjálfu sér nóg í allt að átta vikur við þær aðstæður. KV Hopen er hlaðið alls kyns tækni og er varið gegn ólífrænni og lífrænni mengun og sömuleiðis gegn geislavirkni og kjarnorkumengun. Varðskipið KV Hopen fékk nafn sitt þann 12. júní 2024. Lesa má nánari umfjöllun um skipið hér. Heimild fiskifréttir.is Skrifað af Þorgeir 30.06.2026 19:42Gæslunni stætt á að banna La Datcha að koma í höfn
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest ákvörðun Landhelgisgæslu Íslands um að meina lúxussnekkjunni La Datcha að koma til hafnar á Akureyri í mars á þessu ári. Dómur þess efnis féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun eftir að Tinkov-fjölskyldan með Oleg Tinkov í fararbroddi stefndi íslenska ríkinu vegna hafnbannsins. Málið vakti mikla athygli í mars. Snekkjan hafði verið leigð fyrir hóp ferðamanna sem hugðist stunda þyrluskíði á Norðurlandi, en þegar hún var á leið til landsins taldi Landhelgisgæslan að hún félli undir þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins gegn Rússlandi. Frétt af mbl.isLúxussnekkja á PollinumEiginkonan eigandi snekkjunnarEigendur snekkjunnar mótmæltu ákvörðuninni og bentu á að skipið sigldi undir fána Panama þegar það kom til Íslands. Þeir sögðu jafnframt að raunverulegir eigendur væru ekki lengur rússneskir. Frétt af mbl.isÁttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn íÍ dóminum kemur fram að snekkjan sé í eigu félags á Seychelles-eyjum sem er í eigu kýpversks sjóðs tengdum Tinkov-fjölskyldunni. Þar segir jafnframt að raunverulegur eigandi sé Rina Vosman, sem hafi afsalað sér rússneskum ríkisborgararétti eftir innrás Rússlands í Úkraínu. Eiginmaður hennar, Oleg Tinkov, stofnandi Tinkoff-bankans, hafi einnig sagt skilið við rússneskt ríkisfang og gagnrýnt innrásina opinberlega.
Frétt af mbl.isLúxussnekkjunni meinuð hafnarkoma á AkureyriSkipið var áður skráð í RússlandiKjarni deilunnar snerist þó ekki um eigendurna heldur sögu skipsins. Í nokkurn tíma hafði La Datcha verið leigð rússnesku fyrirtæki. Slík leiga kallast þurrleigusamningur og felur í sér að leigutakinn sér um allan rekstur skipsins á meðan eigandinn heldur eignarhaldinu. Vegna þessa var skipið skráð tímabundið í rússneska skipaskrá til að mega sigla þar. Eigendurnir sögðu að þessum samningi hefði verið sagt upp fljótlega eftir innrásina í Úkraínu í mars 2022. Þeir héldu því fram að tafir á því að afskrá skipið úr rússnesku skipaskránni hefðu verið alfarið á ábyrgð rússneskra yfirvalda en ekki þeirra sjálfra. Fáninn skipti mestu máliLandhelgisgæslan leit hins vegar ekki til eignarhaldsins heldur fánaskráningar skipsins. Samkvæmt reglum Evrópusambandsins, sem Ísland framfylgir, er skipum sem voru skráð undir rússneskum fána eftir 24. febrúar 2022 óheimilt að fá aðgang að höfnum innan EES, jafnvel þótt þau hafi síðar verið skráð undir fána annars ríkis. Landhelgisgæslan taldi því að snekkjan félli undir hafnarbannið þar sem hún hafði verið skráð undir rússneskum fána eftir innrásina áður en hún var síðar endurskráð í Panama. Fékk aðeins að taka eldsneytiÍ kjölfarið var snekkjunni meinuð hafnarkoma á Akureyri og henni gert að yfirgefa íslenska landhelgi. Hún fékk þó sérstaka heimild til að koma einu sinni að landi til að taka eldsneyti og nauðsynlegar birgðir áður en hún hélt áfram ferð sinni til Grænlands. Skrifað af Þorgeir 29.06.2026 23:43Rifsnes SH 44 i slippnum á Akureyri
Skrifað af Þorgeir 28.06.2026 10:52Kaldbakur EA 1 í flotkví Slippsins á Akureyri
Skrifað af Þorgeir 28.06.2026 10:46Björgúlfur EA 312 landar á Akureyri
Skrifað af Þorgeir 24.06.2026 23:17Skemmtferðaskip á Akureyri i dag
Skrifað af Þorgeir 24.06.2026 23:07Slippurinn Akureyri
Skrifað af Þorgeir 21.06.2026 23:36Islandsmet i Spyrnu hjá Bilaklúbb Akureyrar
Skrifað af Þorgeir 16.06.2026 22:32Sólberg ÓF 1 i Krossanesi virataka og fleiraÞað var nóg að gera hjá Skipverjum á Sólberginu i dag fyrst var tekin 0lia og siðan farið i prufusiglingu og loksins kom að stæðsta verkefninu að taka togvira fyrir þetta öfluga skip hérna koma nokkar Drónamyndir af þessu
Skrifað af Þorgeir 14.06.2026 22:33Le Monge Franskt herskip á Akureyri
Franskt herskip lagðist við bryggju á Akureyri í gær.Skipið er í hefðbundinni heimsókn þar sem áhöfnin hvílir sig og tekur vistir. Pétur Ólafsson, hafnarstjóri á Akureyri, segir að skipið fari úr höfn eftir helgi. Það er hér með leyfi yfirvalda. Skipið heitir Le Monge og er hannað til að fylgjast með og mæla feril eldflauga. Áhöfn skipsins telur 115 sjóliða og 90 tæknimenn úr hernum og almenna borgara. Skipið var fyrst tekið í notkun árið 1992 og hefur heimahöfn í Brest í Frakklandi. Skipið hefur áður komið til Íslands, m.a. í Reykjavíkurhöfn árið 2012. Heimild mbl.is Myndir Þorgeir Baldursson
Skipið er engin smásmíði Skrifað af Þorgeir 13.06.2026 01:07Reykjavikurhöfn
Skrifað af Þorgeir 12.06.2026 23:00Hafnarfjarðarhöfn
Skrifað af Þorgeir 12.06.2026 22:54Hafnarfjarðarhöfn i kvöld
Skrifað af Þorgeir 08.06.2026 22:25Merkileg saga sem við megum ekki gleymaMerkileg saga sem við megum ekki gleymaBirt með Leyfi Akureyri.net Skapti Hallgrímsson - skapti@akureyri.net 08.06.2026 kl. 06:00
Mynd: Þorgeir Baldursson Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn var afhjúpaður við hátíðlega athöfn í gær, á sjómannadaginn, á Höepfnerssvæðinu, skammt norðan bækistöðvar siglingaklúbbsins Nökkva. Minnisvarðinn er „fyrir margt mjög merkilegur og í honum er sögð svo merkileg saga, saga sem við Íslendingar megum ekki gleyma,“ sagði Sigfús Ólafur Helgason í ávarpi í gær, en hann hefur farið fyrir hópi gamalla sjómanna sem stóð að verkefninu. „Það væri hægt að halda hér langa tölu um árin öll í sögu síðutogara, í gleði og sorg og sannarlega var lífið ekki alltaf dans á rósum, og við Íslendingar guldum stundum með lífi sjómanna gjaldið fyrir að sækja sjóinn dýpra og lengra vegna þess að skipin urðu stærri og betri. En eins og allir vita hefur ekki en þann dag í dag verið byggt það skip að stórsjór og ofviðri geti ekki grandað því,“ sagði Sigfús.
Söguskilti er við minnisvarðann. Sæmundur Pálsson, sem Sigfús kallaði guðföður verksins var fenginn til að losa borða og svipta dúk af skiltinu. Mynd: Þorgeir Baldursson Hann sagði sögu síðutogara samofna „þroska og vaxtaferli okkar Íslendinga og því er það svo ánægjulegt að einmitt nú, kannski 50 árum og seint, sem við stöndum hér við minnisvarða um þessa mjög svo merku sögu.“ Sigfús rifjaði upp að fyrir um það bil 15 árum hafi verið rætt manna á meðal að reisa yrði myndarlegan minnisvarða um sögu síðutogara og síðutogarasjómanna á Íslandi, „og því segi ég, loksins, loksins blasir þetta fallega verk við ...“ Sigfús sagði: „Ryðhrúgu kalla þetta sumir, en við sem vitum um þessa sögu, vitum alveg hvað þetta fallega verk er að segja okkur.“
Mynd: Skapti Hallgrímsson Jón Þórisson hannaði verkið „Fyrir okkur sem teljumst sjómenn fyrr og síð er þetta minnismerki samnefnari yfir þá sögu sem honum er ætlað að faðma og umvefja, og ég segi það hiklaust að Jóni Þórissyni leikmyndateiknara sem hannaði þetta verk, blessuð sé minning hans, tókst það svo sannarlega, og það er mín trú að þetta verk og þessi staður eigi eftir að verða viðkomustaður margra sjómanna og aðstandenda þeirra til að minnast áranna, mannanna og lífsins um borð í þessum svokölluðu síðutogurum.“ Sigfús sagði frá því að hann og hópur annarra eldri sjómanna á Akureyri, og reyndar víðar að, hafi á tveimur síðastliðnum árum farið í heimsóknir „til vina okkar í Hull og Grimsby í Bretlandi og Bremenhaven og Cuxhaven í Þýskalandi og séð þar hvað þessar þjóðir, báðar miklu fiskveiðiþjóðir, eins og við, vernda og virða með væntumþykju þá sögu þeirra sem kallast „togarasaga“ og sú elska og væntumþykja þeirra er sýnileg gestum og gangandi í öllum þessum borgum og er sterkur segull m.a. fyrir ferðamenn að sjá og kynnast þeirra sögu.“
Mynd: Þorgeir Baldursson Sigfús spurði: Hvar erum við Íslendingar, sennilega mesta fiskveiðiþjóð í heimi, staddir í verndun togarasögu okkar? Og var fljótur að svara sjálfur, á þann veg að Íslendingar stæðu langt að baki kærum vinum, Bretum og Þjóðverjum, „en við getum þó lært af þeim hvernig á að gera þetta,“ sagði hann. „Fyrir um það bil þremur árum varð til hreyfing hér á Akureyri sem samanstóð og stendur enn að verndun útgerðarsögu okkar og er þessi minnisvarði kannski skýrasta dæmið um atorkuna sem þessi hópur getur og hefur sýnt. Eftir hann liggja auk þessa verks 5 skipslíkön af togurum.“
Mynd: Þorgeir Baldursson Sigfús hefur oft hvatt bæjaryfirvöld á Akureyri til að gera betur á þessu sviði og beindi orðum sínum að nýrri bæjarstjórn: „Enn er tími fyrir ykkur að fá hjá okkur sjómönnum hjálp við að koma þessari sögu fyrir á þeim stalli sem henni sannarlega ber, og þessi fjöldahreyfing sjómanna er meira en til í að koma til samstarfs við ykkur. Við megum samt ekki bíða lengi því á hverju ári erum við að missa hluta af sögunni þar sem maðurinn með ljáinn heggur.“ Sigfús sagði að endingu, fyrir hönd vinnuhópsins sem stýrði framkvæmdinni: „Við sáum það í Bretlandi og Þýskalandi hvað minnismerki þeirra um sjómenn eru þeim mikilvæg og vart líði sá dagur að ekki sé einhver minning haldin við minnismerkin, blóm lögð við þau í minningu einhvers og þessi minnismerki í öllum þessum borgum eru samkomustaðir sjómanna og fjölskyldna þeirra í sorg og í gleði.“ Hann sagði það einlæga ósk hópsins að svo verði einnig með þennan stað og þetta minnismerki. „Kertakrossin er einmitt tilvalinn til að tendra ljós í minningu, einnig bekkirnir til að íhuga, hugsa og njóta.“
Séra Magnús Gunnarsson blessaði minnismerkið í gær. Mynd: Þorgeir Baldursson
Sigfús Ólafur Helgason ávarpar viðstadda í gær. Mynd: Þorgeir Baldursson
Mynd: Þorgeir Baldursson
Mynd: Þorgeir Baldursson
Mynd: Þorgeir Baldursson Margir komu að verkefninu og Sigfús Ólafur kvaðst vilja nefna nokkra. Hann sagði:
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Mynd: Skapti Hallgrímsson Skrifað af Þorgeir 08.06.2026 17:45Sjómannadagur 3 hlutiSkemmtisigling með eikarbátinn Húna i forgrunni og smábátarnir fylgdu vel á eftir inná pollinn og siðan var siglt meðfram minnisvarðanum um skipverjana sem að voru á siðutogurunum og það siðan vigt siðar um daginn að viðstöddu miklu fjölmenni og fékk það nafnið Upphafið er að mál manna að þetta sé glæsilegt listaverk sem að slippurinn Akureyri smiðaði
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 224 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 4991 Gestir í gær: 12 Samtals flettingar: 3054947 Samtals gestir: 73778 Tölur uppfærðar: 2.7.2026 03:30:06 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is