Færslur: 2011 Júní05.06.2011 22:59Risjótt veður á sjómannadaginn 2011 7688- Nuunnu i brælu á Eyjafirði i dag © mynd Þorgeir Baldursson 2011 Skrifað af Þorgeir 04.06.2011 12:16Lif og fjör i BótinniBótin i morgun © mynd þorgeir Baldursson 2011 Það var mikið lif og fjör i Sandgerðisbótinni i morgun þegar smábáta sjómenn og ýmsir fleiri sem að hafa aðstöðu þarna niðurfrá buðu gestum og gangandi uppá kaffi ,konfekt svala harðfisk ásamt þvi að vera með heita súpu hérna má sjá þá Davið Hauksson og Ellert Guðjónsson um borð i Nóa EA 611 FLEIRI MYNDIR I MYNDAALBÚMI Skrifað af Þorgeir 03.06.2011 23:52Skemmtiferðarskip til Akureyrar 2011
Skrifað af Þorgeir 03.06.2011 21:10Aðalsteinn Jónsson SU 11 á heimleið 2699 Aðalsteinn Jónsson SU 11 © Mynd Þorgeir Baldursson 2011 Aðalsteinn Jónsson su hélt frá Akureyri nú seinnipartinn i dag eftir um fjögurra vikna stopp i slippnum á Akureyri Hér má sjá skipið á siglingu i utaverðum firðinum en mér til sárrar germju Gleymdi Daði skipstjóri að láta mig vita af brottförinni svo að þessvegna eru ekki til betri siglingarmyndir af skipinu Skrifað af Þorgeir 03.06.2011 00:14Sjómannablaðið Vikingur 2011Sjómannablaðið Vikingur mynd Þorgeir Baldursson 2011 SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR komið út Sæl verið þið Þá er Víkingurinn kominn út, sumir segja skemmtilegasta tímarit þjóðarinnar, og fara víst ekki með neitt fleipur. Að vísu er ég hlutdrægur í málinu, einhverjir myndu segja vanhæfur, svo dæmi hver fyrir sig. Blaðið getið þið pantað með því að netja á ritstjórann, Jóna Hjaltason, jonhjalta@simnet.is, nú eða þið getið hringt í hann, 862-6515. Fyrri leiðin er þó af ýmsum ástæðum þægilegri. Svo má auðitað gerast áskrifandi en fjögur tölublöð koma út á ári og kosta ekki nema 3000 krónur með heimsendingu. og öllum pakkanum. Kíkjum aðeins á efnisyfirlitið í þessu 2. tbl. Víkingsins 2011: - Þórður Eiríksson fer útbyrðis í brjáluðu veðri. Gísli Jónsson skipstjóri segir frá. - Lögmenn eru þurrir og leiðinlegir, segir almannarómur. Er það svo? Er Jónas Haraldsson kannski leyniskytta í frítíma sínum - og leiðinlegur - eða með hnyttnari mönnum þessa lands? - Ragnar Franzson lendir í tveimur ásiglingum í sama túrnum. - Loftskeytamaðurinn Birgir Aðalsteinsson rifjar upp jólin 1959 þegar hann sigldi með Kötlu. - Göntuðust með öryggismálin; Ólafur Grímur Björnsson ræðir við bræðurna Benedikt og Hauk Brynjólfssyni. - Hverjir voru pólsku togararnir og hvar eru þeir í dag? Helgi Laxdal segir okkur allt um þessa "sjömenninga". - Dauðinn í Dumbshafi, hrollvekjandi saga Íshafsskipalestanna. Magnús Þór Hafsteinsson skrifar. - Árni Bjarnason fer í siglingu. - Ólafur Ragnarsson rifjar upp daginn voðalega í janúar 1952 - Þeir eru ekki margir á lífi í dag sem upplifðu Pourquoi pas?-slysið. Þorsteinn Jónatansson er einn þeirra. - Matti Björns sigldi með Carlsen í stað þess að fara hina örlagaríku siglingu með Dettifossi 1945. - Hilmar Snorrason skyggnist út í heim. - Saga af sjónum: Helgi Laxdal ríður á vaðið. - Frívaktin er helguð hinni stórskemmtilegu bók, "Sögu Útvegsbændafélags Vestmannaeyja 1920 - 2010". - Hilmar Snorrason fer á netið og finnur meðal annars allar Árbækur Slysavarnafélags Íslands og Landsbjargar. - Feðgarnir Þórbjörn Áskelsson heitinn, forstjóri Gjögurs h.f., og sonur hans Guðmundur fara í afdrifaríka ökuferð. - Svo er auðvitað krossgáta, úrslit í Páskagetrauninni og Ljósmyndakeppni sjómanna 2011. Góða skemmtun. Jón Hjaltasson Ritstjóri Skrifað af Þorgeir 02.06.2011 18:10Frá Miðum til MarkaðaVörður ÞH © mynd Kristin Benidiktsson 2011 úr Vinnslunni © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Á Spönskum markaði © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Saltfisk pökkun © Mynd Kristnn Benidiktsson 2011 Stál og Hnifur © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Snurvoðarpoki © mynd kristinn Ben Flugfisk Pakkað © mynd Kristinn Ben Frá miðum til markaða, ljósmyndasýning Kristins Benediktssonar á Bryggjunni í Grindavík Kristinn Benediktsson, ljósmyndari, hefur opnað ljósmyndasýningu sem hann nefnir Frá miðum til markaða á veitingastaðnum, Bryggjan í Grindavík. Sýning er liður í hátíðahöldum sjómanna í Grindavík en mun síðan standa uppi á Bryggjunni í sumar eins og þurfa þykir. Myndirnar hefur Kristinn tekið undanfarin ár úti á sjó, um borð í skipum og bátum frá Grindavík auk þess að hafa myndað fiskvinnslufólk í Grindavík og á fiskmarkaðnum í Barcelónaborg þar sem verið er að selja saltfisk frá Grindavík. Myndir eiga að sýna þverskurð af sjómennsku, vinnslu á saltfiski og öðrum gæðaafurðum sem Grindvíkingar framleiða á sjó og landi auk þess að gefa innsýn í hvert afurðirnar fara á erlenda markaði og er þar fyrst kynntur fiskmarkaðurinn við Römbluna í Barcelóna. Sýningin verður farandsýning út á land auk þess sem hún verður sett upp erlendis og þá einkum á Spáni, Portúgal, Grikklandi og Ítalíu sem eru okkar helstu markaðslönd fyrir saltfiskafurðir auk fleiri landa. Kristinn Benediktsson nam ljósmyndun í lok sjöunda áratugar síðustu aldar hjá Ljósmyndastofu Þóris og vann hjá Morgunblaðinu með náminu auk nokkurra ára á eftir eða samtals 10 ár. Árið 1976 fór Kristinn að taka myndir markvisst úti á sjó fyrir tímaritið Sjávarfréttir sem þá var gefið út og var forveri Fiskifrétta. Um árabil bjó Kristinn í Grindavík þar sem hann starfaði við verkstjórn í saltfiskverkun auk þess sem hann stundaði sjómennsku í nokkur ár. Hann nýtur góðs af þeirri reynslu í dag þegar hann vinnur í blaðamennsku og ljósmyndun í sjávarútveginum, undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Sýningin er styrkt af Menningarráði Suðurnesja auk fjölda annarra aðila. Skrifað af Þorgeir 02.06.2011 11:43Sjómannadagsblað Grindavikur 2011Forsiða Blaðsins © mynd Kristinn Benidiktsson 2011 Sjómannadagsblað Grindavíkur 2011 er komið út
Sjómannadagsblað Grindavíkur 2011 er komið út glæsilegt að vanda. Í blaðinu birtist í fyrsta skipti saman í útgáfu öll Grindavíkurkortin sem Ómar Smári Ármannsson, rannsóknarlögreglumaður og leiðsögumaður, hefur hannað og teiknað af Grindavík gamla tímans, þar sem hann náði að styðjast við heimildir margra fullorðinna Grindvíkinga, sem mundu aftur til nítjándu aldar. Margt af þessu fólki er nú þegar látið og það er Sjómannadagsblaði Grindavíkur mikill fengur að leyfi skyldi fást frá höfundi fyrir birtingunni enda lítur hann svo á að blaðið sé mun eigulegra með öllum kortunum saman í einu blaði heldur en ef þeim væri dreift á margar útgáfur. Þá er í blaðinu grein utan af sjó en Kristinn Benediktsson, ritstjóri, fór í róður með Verði EA 748 nýlega. Þá er á sínum stað í blaðinu myndir og frásögn frá síðasta sjómannadegi og heiðrun sjómanna, ásamt myndaopnu frá stuðinu á bryggjuballinu í fyrra. Greinar eru eftir Pétur Vilbergsson, fyrrum ritstjóra, Hafstein Sæmundsson, trillukarl og Svein Torfa, sem heldur áfram að lýsa uppvaxtarárum sínum í Grindavík. Eyjólfur Vilbergsson,
fyrrum skipstjóri, er forfallinn fuglaljósmyndari auk þess sem hann tekur
óhemju skemmtilegar myndir af öðru viðfangsefni. Ljósmyndagallerí blaðsins, sem
nú birtist í fjórða skipti, sýnir okkur lítið brot af myndasafni Eyjólfs. Þessi
þáttur hefur vakið mikla athygli meðal lesenda enda mikið lagt upp úr að
myndirnar prentist í bestu gæðum og verður að segja að vel hafi tekist hingað
til og áhugaljósmyndurum finnst það mikill heiður að verða fyrir valinu hverju
sinni. Blaðið er 100 síður eins og undanfarin ár og smekkfullt af fleira efni
en hér er upp talið.
Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is