Færslur: 2013 Maí

08.05.2013 20:43

Deila við Siglingastofnun um Rib-báta

Deila við Siglingastofnun um Rib-báta

Farþegar í hvalaskoðun á Rib-bátnum Ömmu Siggu í eigu Gentle Giants.stækka

Farþegar í hvalaskoðun á Rib-bátnum Ömmu Siggu í eigu Gentle Giants. mbl.is/Rúnar Pálmason

"Stofnunin virðist misskilja hlutverk sitt fullkomlega og telur sig eiga að vera í því hlutverki að leggja steina í götu okkar í stað þjónustu og samvinnu í þróun regluverks á nýjungum," segir Stefán Guðmundsson, framkvæmdastjóri hvalaskoðunarfyrirtækisins Gentle Giants á Húsavík, í samtali við mbl.is.

Fyrirtæki hans og önnur sem gera út svokallaða Rib-báta hafa átt í deilum við Siglingastofnun undanfarin ár vegna krafna sem stofnunin hefur viljað gera til rekstur bátanna með tilliti til öryggismála. Þannig vill Siglingastofnun að ekki að fluttir séu fleiri farþegar með bátunum, sem eru opnir slöngubátar, en tólf þó pláss sé fyrir 18 manns.

Eins vill stofnunin að farþegarnir séu klæddir björgunarflotgöllum á meðan á siglingu stendur á tímabilinu frá 30. september til 1. júní hvert ár en gert er ráð fyrir að reglur þess efnis taki gildi í vor. Eru þessar kröfur rökstuddar með vísun í hitastig sjávar auk reglna sem í gildi séu á Norðurlöndunum í þessum efnum og innan Evrópusambandsins. Þá er vísað í hraða bátanna og hættu því fylgjandi að farþegar falli útbyrðis.

Stefán segir að skírskotun Siglingastofnunar í Norðurlandsreglurnar standist ekki skoðun. Reglur á hinum Norðurlöndunum séu ef eitthvað sé ekki eins strangar og hér á landi. Enda hafi stofnunin dregið úr orðalagi sínu í þeim efnum þegar liðið hafi á málið og tali nú einungis um að þær reglur hafi verið hafðar til hliðsjónar. Þær forsendur sem Siglingastofnun gefi sér varðandi hitastig sjávar standist ekki heldur. Farþegar hafa til þessa klæðst vinnuflotgöllum og björgunarvestum að hans sögn sem samþykkt hafi verið af Siglingastofnun. Þá sé ítrasta öryggis gætt um borð. Bátarnir séu nýjir og sérstaklega hannaðir fyrir slíkar siglingar. Þeir séu búnir tveimur aðalvélum með tvö aðskilin eldsneytiskerfi og öllum bestu siglingatækjum og öryggisbúnaði sem völ sé á.

Stefán segir að erfitt sé fyrir farþega að athafna sig í björgunarflotgöllum sem séu ætlaðir til notkunar í neyð en ekki að staðaldri. Þá gildi almennt þær reglur um slíka galla að setja þurfi þá í skoðun eftir notkun. Þeir séu í raun hliðstæðir á við fallhlífar í flugvélum. Ekki sé gert ráð fyrir að þeir séu í stöðugri notkun. Hann segir framgöngu Siglingastofnunar hafa kostað fyrirtækin sem geri út Rib-báta tugi milljóna og sett rekstur þeirra í uppnám. Þeir hafi reynt að koma með tillögur að lausnum og samvinnu í málinu en ekki fengið neinar undirtektir hjá stofnuninni. Meðal annars hafi þeir boðið starfsmönnum hennar að koma og skoða bátana en allt fyrir ekki.

Málið er nú hjá innanríkisráðuneytinu en fyrirtækin hafa kært afgreiðslu stofnunarinnar til þess. Beðið er niðurstöðu þess sem átti að liggja fyrir í byrjun maí.

01.05.2013 12:24

Þrálátar Brælur á Kolmunnamiðunum

                       155- Lundey NS 14  © mynd Þorgeir Baldursson 

Aðstæður með ólíkindum erfiðar, segir skipstjórinn á Lundey NS

 

,,Það er víst engu logið um að þetta hafsvæði suður af Færeyjum er sannkallað veðravíti og það er mikið um frátafir á veiðum vegna þess. Í gær urðum við að halda sjó í hálfan sólarhring í norðanbrælu og haugasjó og það var ekki fyrr en í morgun að það var hægt að kasta aftur. Og það lítur ekki út fyrir mikinn frið því að næsta lægð er á leiðinni og nú er spáð sunnanbrælu."

Þetta sagði Stefán Geir Jónsson, fyrsti stýrimaður og afleysingaskipstjóri á Lundey NS, en er rætt var við hann á vef HB Granda  nú síðdegis var hann með skipið að veiðum um 70 mílur suður af Færeyjum. Búið var að hífa eftir fyrsta hol dagsins og var áætlaður afli um 400 tonn. Þar með er aflinn í veiðiferðinni orðinn rúmlega 1.000 tonn.  Sagðist Stefán Geir vonast til þess að ná nægilegu aflamagn í síðara holi dagsins til að hægt yrði að halda til Vopnafjarðar með ásættanlegan afla áður en næsta stórviðri skylli á.

,,Það er eiginlega með ólíkindum hvað aðstæður hafa verið erfiðar. Um daginn var ekki um annað að ræða en að koma skipunum í var við Færeyjar enda var þá gríðarmikil ölduhæð á veiðisvæðinu. Sjólagið var skárra í gærkvöldi en þá fór vindhraðinn í 20 m/s og þýðingarlaust að vera að veiðum."

Að sögn Stefáns Geirs er Lundey nú í síðasta hreina kolmunnaveiðitúr ársins. Faxi RE er á leiðinni á miðin og er væntanlegur þangað í fyrramálið. Faxi á eftir eina veiðiferð og hið sama má segja um Ingunni AK. Verið er að landa úr skipinu á Vopnafirði og standa vonir til að það geti látið úr höfn strax í nótt. Með aflanum úr þessum þremur síðustu veiðiferðum HB Granda skipanna má reikna með því að heildarkolmunnaaflinn á vertíðinni verði um 21.000 tonn. Þá er lítið óveitt af kvótanum en eftirstöðvarnar verða nýttar fyrir kolmunna sem meðafla á síld- og makrílveiðum í sumar.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 1551
Gestir í dag: 109
Flettingar í gær: 1506
Gestir í gær: 141
Samtals flettingar: 607261
Samtals gestir: 25686
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 22:26:40
www.mbl.is