Færslur: 2016 Júní09.06.2016 21:00Ambassador hlýtur Bláfánann 2016
Fréttatilkynning frá Landvernd Hvalaskoðunarfyrirtæki á Íslandi hljóta Bláfána fyrst í heiminum Landvernd veitti fjórum hvalaskoðunarfyrirtækjum bláfánavottun fyrir sjálfbæra sjávarferðamennsku 2. júní sl. Þetta er í fyrsta skipti sem Bláfáninn er veittur hvalaskoðunarfyrirtækjum í heiminum. Viðurkenninguna hlutu Ambassador á Akureyri og Elding, Special Tours og Whale Safari í Reykjavík. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem veitt er fyrirtækjum og sveitarfélögum fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum, og frá árinu 2016 einnig fyrirtækjum í sjávartengdri ferðaþjónustu. Meginmarkmið verkefnisins er að vernda haf- og strandsvæði, draga úr umhverfisáhrifum með kerfisbundnum hætti, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Þessu er náð með bættri umhverfisstjórnun, góðum slysavörnum, eftirliti með vatnsgæðum og öflugri fræðslu og upplýsingagjöf. Landvernd innleiddi Bláfánann hér á landi árið 2002 en verkefnið hefur verið rekið á alþjóðavísu frá árinu 1985 af alþjóðlegu umhverfismenntasamtökunum Foundation for Environmental Education (FEE), sem Landvernd er aðili að. Landvernd kom af stað þróun bláfánaviðurkenningarinnar fyrir hvalaskoðunarfyrirtæki á vegum FEE. Fyrirtæki í sjávartengdri ferðaþjónustu, smábátahafnir og baðstrendur geta sótt um vottunina. Á Íslandi flagga viðurkenningunni fjögur hvalaskoðunarfyrirtæki með alls 16 báta, sex smábátahafnir og þrjár baðstrendur. Hvalaskoðunarfyrirtækjunum var afhentur Bláfáninn við veglega athöfn sem fór fram í kjölfar viðburðar á vegum Whales and Dolphin Conservation í Hvalasýningasafninu á Granda í tilefni af 25 ára afmæli hvalaskoðunar á Íslandi. Hér að neðan má sjá lista yfir handhafa Bláfánans á Íslandi árið 2016. Ferðaþjónustuaðilar í hvalaskoðun · Ambassador á Akureyri · Elding í Reykjavík · Special Tours í Reykjavík · Whale Safari í Reykjavík Smábátahafnir · Smábátahöfnin á Bíldudal · Smábátahöfnin á Patreksfirði · Smábátahöfnin á Suðureyri · Smábátahöfnin í Stykkishólmi · Smábátahöfnin við Hafnarhólma á Borgarfirði eystri · Fossvogshöfn í Kópavogi Baðstrendur · Bláa lónið · Langisandur á Akranesi · Ylströndin í Nauthólsvík Skrifað af Þorgeir 09.06.2016 12:08Venus NS 150 I Slipp i fyrrakvöldVenus NS 150 I Slipp á Akureyri i fyrrakvöld
Skrifað af Þorgeir 09.06.2016 11:57Baldvin NC 100 Landar á AkureyriFrystitogarinn Baldvin NC 100 kom til hafnar á Akureyri i vikunni með góðan afla af Grænlandsmiðum uppistaðnan þorskur sem að var landað hjá Útgerðarfélagi Akureyringa Að löndun lokinni hélt skipið strax til veiða á svipaðar slóðir
Skrifað af Þorgeir 09.06.2016 10:59Hvalaskoðun AmbassadorMikil aukning i hvalaskoðun frá Akureyri hjá hvalaskoðunnarfyrirtækinu Ambassador i fyrstu var einn bátur i notkun og á siðasta ári bættist annar við og von er á þeim þriðja innan skamms eftir að hafa verið þrjú ár er þetta farið að ganga vel og sjást merki þess þegar báðir Bátarnir fóru i birjun vikunnar með um 300 manns yfir daginn i Hvalaskoðun á Eyjafirði og að sögn farþega voru þeir himinlifandi með ferðina Meðfylgjandi myndir tók Þorgeir Baldursson þegar fólkið streymdi um borð og Siglt var út Eyjafjörð með farþegana www.ambassador.is
Skrifað af Þorgeir 08.06.2016 17:221278 Bjartur NK 121 seldur úr landi
Skrifað af Þorgeir 06.06.2016 12:09Ný Cleopatra til Bergen útbúinn á snurvoð
Ný Cleopatra 33 afgreidd til Bergen Frétt frá Trefjum Útgerðarfélagið Sydvest Fiskeri í Bergen í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni stendur Lars Tore Skår.
Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Skår Jr. Báturinn mælist 11brúttótonn. Skår Jr er af gerðinni Cleopatra 33.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT N90 410hö tengd ZF286IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad. Báturinn er einnig útbúin með hliðarskrúfu að framan tengdri sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til veiða með snurvoð. Spil, trommlur og hýfingarbúnaður er frá Hydema. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12stk 380L kör í lest. Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar ásamt eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. -------- TREFJAR LTD OSEYRARBRAUT 29 220 HAFNARFJORDUR ICELAND Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 683 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 4063 Gestir í gær: 33 Samtals flettingar: 1119809 Samtals gestir: 52252 Tölur uppfærðar: 18.1.2025 04:35:28 |
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is