Færslur: 2018 Febrúar16.02.2018 08:05Loðnuveiðar 2018
Hoffell er á heimleið með um 400 tonn af loðnu. Aflann fékk Hoffellið í tveimur köstum u.þ.b 5 mílum suðvestur af Hornafirði. Að sögn Bergs Einarssonar skipstjóra er loðnan væn og góð og fer beint til frystingar á Japansmarkað. Hrognafylling loðnunnar er um 15% sem gerir hana að afbragðsgóðri vöru fyrir Japan. Áætluð koma til heimahafnar á Fáskrúðsfirði er um miðnætti aðfaranótt 13.febrúar og fljótlega upp úr því hefst löndun og vinnsla. Bergur skipstjóri var inntur eftir því hvort að túrinn hefði gengið vel? „Allt gekk mjög vel og gott að finna loðnulyktina, það fylgir lyktinni ákveðin stemmning, mætti jafnvel kalla hana peninga lykt“ svaraði skipstjórinn og hló við.
Skrifað af Þorgeir 15.02.2018 21:171131 Bjarni Sæmundsson RE 30 i sildarrannsóknum á Eyjafirði i dagNú seinnipartinn i dag kom Bjarni Sæmundsson RE3 aftur inn til Akureyrar en hann hefur verið hérna i fyrðinum i dag við að skoða sildarlóðningar sem að voru áberandi hérna fyrir innan Hjalteyri og allveg inná pollinn en hún stóð djúpt svo að ekki var hægt að kasta á hana með flottrollinu enda var skipið i loðnurannsóknum og ekkert botntroll um borð fyrir utan Hrisey hefur verið nokkuð um Háhyrninga og þar mældist talsvert af ljósátu sem að þeir virðast liggja i að sögn skipverja sem að voru spenntir að halda aftur út til að skoða þetta betur
Skrifað af Þorgeir 15.02.2018 08:382949 Jón Kjartansson Su 111Seint i Gærkveldi hélt hinn nýji Jón Kjartansson Su 111 frá Akureyri áleiðið til heimahafnar á Eskifirði og mun stefnan vera sett á loðnuveiðar á allra næstu dögum skipið hefur verið i mikum breytingum frá þvi i birjun Nóvember hjá Slippnum Akureyri og eru þær helstar að settur hefur verið nótabúnaður i skipið sem að ekki var áður buin var til nóta skúffa settur niðurleggjari ný kraftblökk nótarör ásamt öðrum verkum sem að tengjast svona stóru verki en alls tók verkið á þriðja mánuð Skipið var keypt frá Skotlandi á siðasta ári og hét Carisma LK 362 og er 70.7 metrar á lengd 14.5 á breidd og 2424 brúttótonn það er smiðað árið 2003 og er nánast eins og nýtt allar vistarverur mjög glæsilegar sem og brúin sem að er vel búinn tækjum
Skrifað af Þorgeir 14.02.2018 16:461131 Bjarni Sæmundsson RE 30 á Akureyri i dag
Skrifað af Þorgeir 14.02.2018 14:27Rósin i hnappagatið
Skrifað af Þorgeir 14.02.2018 08:411414 Áskell Egilsson á leið i Hvalaskoðun
Skrifað af Þorgeir 11.02.2018 22:52Örfirsey RE 4 bilun i aðalvél
Bilun varð í aðalvél frystitogarans Örfiriseyjar RE í gærkvöldi er skipið var að veiðum í norsku lögsögunni í Barentshafi. Vegna bilunarinnar er skipið vélarvana og hefur verið samið við norsku strandgæsluna um að það verði dregið til hafnar í Tromsö í Norður-Noregi. Að sögn Guðmundar Herberts Bjarnasonar hjá skipaeftirliti HB Granda varð bilunin um 60 sjómílur norður af Honningsvaag. Bilunin tengist knastás aðalvélar. Gott veður er á svæðinu og engin hætta á ferðum. Nokkur skip eru stödd í nágrenninu sem eru tilbúin að aðstoða. Í samráði við tryggingarfélag skipsins er búið að semja við norsku strandgæsluna um að draga skipið til Tromsö þar sem viðgerð mun fara fram.
Þetta tjón tengist á engan hátt fyrri bilun sem varð í skrúfubúnað skipsins í lok október á síðast ári,” segir Guðmundur Herbert Bjarnason
Skrifað af Þorgeir 11.02.2018 18:17Varðskipið Týr i Brælu
Skrifað af Þorgeir 11.02.2018 09:52Jóna Eðvalds SF 20 i Brælu
Skrifað af Þorgeir 10.02.2018 21:15Alliance A5345 RannsóknarskipÞetta Italska Rannsóknarskip kom til Akureyrar i dag eftir þvi sem að ég komst næst er skipið i hafransóknarverkefni sem að litur að hlýnun sjávar hafstraumum og vaxandi vindum á norðurhveli jarðar en skipið hefur verið á ferðinni frá Bretlandi og allt vestur til vesturstrandar Grænlands og er að koma hingað beint frá Reykjavik og mun halda aftur út þegar veður lægir sennilega á morgun eða mánudaginn
Skrifað af Þorgeir 10.02.2018 21:09Herohav M-250-HO
Skrifað af Þorgeir 10.02.2018 21:00M.Ytterstad N-307-LN á Akureyri i dag
Skrifað af Þorgeir 10.02.2018 20:20Ný Cleopatra til Noregs
Ný Cleopatra 36 til Stavanger
Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Ombo í nágrenni Stavanger í Noregi. Kaupandi bátsins er Odd-Cato Larsen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.
Báturinn hefur hlotið nafnið Prince. Báturinn mælist 14brúttótonn. Prince er af gerðinni Cleopatra 36.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650hp tengd ZF V-gír. Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC. Báturinn er einnig útbúin með tveimur vökvadrifnum hliðarskrúfum sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til netaveiða. Veiðibúnaður kemur frá Noregi. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.
Rými er fyrir 15stk 380lítra kör í lest. Fullkomin eldunaraðstaða auk borðsals er staðsett í brúnni. Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar. Salerni með sturtu er í lúkar. Báturinn hefur þegar hafið veiðar.
-------------------------- Skrifað af Þorgeir 09.02.2018 18:45Norðmenn flýja veðurhaminn á loðnumiðunumLeiðinda spá næstu daga svo að norsku loðnuskipin hafa verið að leita hafnar vegna þess að litið er að sjá og loðnan stendur of djúpt fyrir nótaveiðar i dag komu tvö til hafnar á Akureyri Senior N-60-B og Kvannoy N-400-B og munu að minnsta kosti þrjú önnur skip vera á leiðinni til hafnar og verða væntanlega hérna seinna i kvöld
Skrifað af Þorgeir 08.02.2018 17:16Knester H-58-AV á Skjálfandaflóa Húsavikurfjall i bakgrunni
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is