Færslur: 2019 Maí15.05.2019 19:48Sigurður Ve 15 i Eyjum2883 Sigurður Ve 15 mynd Óskar pétur Friðriksson 2019 Skrifað af Þorgeir 13.05.2019 22:50Lárus Grimsson og Friðrik Sigurðsson Ár 17Það var létt yfir Lárusi Grimssyni Skipstjóra á Friðriki Sigurðssyni ÁR 17 þegar hann kom inn til eyja dag einn fyrir skömmu i hriðarmuggu svo að varla glitti i bryggjupollana en öll él styttir upp um siðir og siðan skall á brakandi bliða Lalli Grims er að leysa frænda sinn af en þeir hafa verið á netum i kringum eyjar og fiskað þokkalega Frettaritari siðunnar Óskar Pétur Friðriksson var á hafnarsvæðinu og tók meðfylgjandi myndir
Skrifað af Þorgeir 12.05.2019 22:20Háhyrningur i trollið á Gullver NS 12
Það hefur aldrei gerst á ég hafi fengið Háhyrning i troll sagði Rúnar L Gunnarsson skipstjóri á Gullver Ns 12 við umsjónarmann siðunnar þegar skipið var að veiðum i Berufjarðarál um helgina þetta var fullorðið dýr en vel gekk að koma þvi aftur út úr trollinu læt fylgja hér mynd þegar hann er kominn inná dekk
Skrifað af Þorgeir 12.05.2019 16:54Breki VE 61Breki VE 61 á togveiðum á veiðslóð fyrir austan land i vikunni
Skrifað af Þorgeir 12.05.2019 16:27Baldvin Njálsson GK 400Smá myndasyrpa af frystitogaranum Baldvini Njálssyni GK 400 á austfjarðamiðum i lok siðustu viku
Skrifað af Þorgeir 11.05.2019 20:41Um borð í hvaða skipi er þessi mynd tekinLosað úr pokanum en hvaða skip er þetta mynd þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir 09.05.2019 01:05Endurmenntun lokið 2019
Skrifað af Þorgeir 08.05.2019 21:35Nord Gk 320
259 Nord Gk 320 upphaflega Súlan EA 300 mynd þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir 05.05.2019 10:14Sigrún Hrönn ÞH 36 dregur Grásleppunetin
Skrifað af Þorgeir 05.05.2019 09:39Svifnökkvi á Pollinum i gær
Skrifað af Þorgeir 03.05.2019 20:55Kallinn i Brúnni Eirikur Sigurðsson á Reval VikingGott viðtal við magnaðan fiskimann i sjómannablaðinu Vikingi Hægt er að að senda upplýsingar til ritstjórans jóns Hjaltassonar á Jonhjalta@simnet.is ef að áhugi er að fá blaðið i áskrift eða koma efni til blaðsins
Eiríkur Sigurðsson
Nafn og hvenær fæddur og hvar? Eiríkur Sigurðsson, fæddur á Húsavík 1961
Hversu gamall varstu þegar þú byrjaðir á sjó og hve gamall varstu þegar þú fórst í Stýrimannaskólann? Ég var barn að aldri þegar ég byrjaði á sjó á trillum frá Húsavík en fór í Stýrimannaskólann strax þegar ég hafði aldur til eða 17 ára.
Hvaða ár laukstu skipstjórnarprófi? Það var vorið 1982.
Á hvaða skipum hefur þú verið og hvert þeirra er eftirminnilegast? Ég hef verið á eftirfarandi skipum í nokkurn veginn réttri tímaröð: Vinur ÞH, Gísli Árni RE, Sigþór ÞH, Kolbeinsey ÞH, Skálaberg ÞH, Fengur RE, Hilmir II SU, Árni á Bakka ÞH, Örn KE, Jón Finnsson RE, Hágangur II, Eyborg EA, Húsvíkingur ÞH, Okeanator (sem er Húsvíkingur undir öðru nafni), Náttfari RE, Pétur Jónsson RE, Ontika og Reval Viking. Eftirminnilegast gæti vel verið Gísli Árni RE 375, sem var frægt aflaskip á þeim tíma með frábærri áhöfn. Eftirminnilegasti skipstjóri sem þú hefur siglt með? Það er líklega Eggert Gíslason frá Kothúsum í Garði en ég byrjaði með honum á Gísla Árna RE 375 þegar ég var bara 13 ára. Hver er skemmtilegasti maður sem þú hefur verið með á sjó? Það er vart á nokkurn hallað þegar ég nefni Trausta Friðfinnsson frá Valbergi á Húsavík. Þvílíkur eðalsnillingur sem sá maður er, en hann var í áratugi háseti á Sigurði RE en síðar VE. Hver er besti sjómaður sem þú hefur haft í þinni áhöfn? Hef verið svo lánsamur að hafa úrval sjómanna í mínum áhöfnum og vart hægt að velja á milli. Nefni samt Heiðar Sigvaldason úr Kelduhverfi, sem var með mér á Feng og Árna á Bakka og líka Bjarka Helgason, Héðinssonar, Maríussonar og þeirra bræðra frá Húsavík. Alveg magnaðir báðir en hefði getað nefnt marga aðra.
Hver er uppáhalds fiskurinn þinn að; -a- borða? Þorskur. -b- veiða? Rækja (sem samt er krabbategund).
Hvernig finnst þér best að matreiða fisk? Léttsteiktan á pönnu. Hver er furðulegasti fiskurinn sem þú hefur veitt? Sverðfiskur. Uppáhalds mið og af hverju? Sprengjuholan NV af Diskó eyju við vestur Grænland en þar hittum við á ævintýralega veiði strax á fyrsta degi þegar ég kastaði trolli þar fyrst.
Versta veðrið sem þú hefur lent í á sjó? Við lentum stundum í svakalegum veðrum og mikilli ölduhæð á Flæmska Hattinum og ekki síður á leiðinni þaðan í land. Það mátti stundum ekki miklu muna þar og heppni að ekki fór verr. Svo er veðurlag við austur Grænland engu líkt og stundum var eina ráðið að koma sér inn í ísinn til að forðast brotsjóina.
Hefurðu upplifað ótvíræða lífshættu á sjó? Það er matsatriði.
Eftirminnileg atvik, eitt eða fleiri? Það gleymist seint þegar norska strandgæslan tók upp á þeim ósköpum að skjóta á okkur þegar ég var á Hágangi II.
Hver er mesta breyting siglingatækja sem þú hefur upplifað? Það var algjör bylting að fá AIS og svo er breytingin frá pappírsplotterum yfir í rafræn sjókort þar sem maður siglir á skjánum í rauntíma alveg stórkostleg.
Hvað finnst þér um kvótakerfið og hvernig það hefur virkað? Held að það hafi virkað alveg þokkalega en hluti þeirra sem áttu kvótana í upphafi sýndu ekki nægilega mikla samfélagslega ábyrgð og þess vegna eru sum landsvæði í vandræðum.
Hvernig finnst þér fiskifræðin hafa staðið sig við að meta veiðiþol stofna? Höfum ekkert betra til að meta veiðiþol en held að fiskifræðin sé samt mjög langt á eftir og hafi allt of lítið þróast og bætt sig. Held að fiskifræðingar viti mjög mikið á afmörkuðum sviðum en eigi langt í land með að sjá heildarmyndina. Hvað áhrif telur þú að hlýnun jarðar muni hafa á fiskistofna við Ísland í framtíðinni? Það er erfitt að spá í það en líklegt að okkar helstu stofnar færi sig norðar og jafnvel út úr íslenskri lögsögu. En kannski kemur eitthvað í staðinn.
Hefur þér tekist að vekja áhuga afkomendanna (ef einhverjir eru) á sjómennsku? Já, heldur betur en hvort sjómennska verður þeirra ævistarf er annað mál og frekar ólíklegt mundi ég segja. Ég á fjórar dætur sem allar hafa verið með mér í allskonar sjóvolki og ekki ólíklegt að það gæti skilað sér í því að þær starfi við sjávarútveg í framtíðinni.
Mundir þú mæla með sjómennsku eða skipstjórn sem góðum starfsvettvangi við ungt fólk í dag?
Og að lokum fyrir bókaorma, áttu þér uppáhaldsbók og hvaða bók ertu að lesa núna? Uppáhaldsbókin mín er Fjallamenn eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal. Las hana fyrst fyrir um 30 árum og margoft lesið aftur. En svo gæti ég líka nefnt Sjálfstætt fólk eftir Laxness, sem líka er í uppáhaldi. Núna er ég að lesa „En af os“ eftir Asne Seierstad á frummálinu, norsku, en áður hef ég lesið íslenska þýðingu Sveins H. Guðmarssonar á bókinni. Hef líka séð myndina sem fjallar um voðaverkin í Útey og er að reyna að skilja hvernig svona illmenni eins og Anders Bering verður til og hvernig samfélag býr hann til, en er litlu nær.
Skrifað af Þorgeir 03.05.2019 20:25Helga Maria AK leigð til Grænlands
Skrifað af Þorgeir 02.05.2019 17:09Vorverkin Gluggaþvottur á sjó
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 902 Gestir í dag: 24 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060318 Samtals gestir: 50927 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 13:15:19 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is