Færslur: 2026 Mars14.03.2026 13:19Flotkvíin á Akureyri sé sú eina með klassavottun
Klassavottun flotkvíar Slippins Akureyri frá alþjóðlega flokkunarfélaginu Bureau Veritas hefur verið endurnýjuð. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins þar sem segir að með endurnýjuninni sé staðfest að kvíin uppfylli áfram strangar kröfur um öryggi, ástand og rekstur. „Vottunin staðfestir að flotkvíin sé í góðu ástandi og tryggi örugga þjónustu fyrir skip sem tekin eru í kví. Hún styrkir jafnframt getu Slippins Akureyri til að þjónusta fjölbreyttan flota skipa, þar á meðal skip í eigu Íslendinga á borð við varðskip, ferjur og rannsóknarskip,“ segir á slippurinndng.is.
Eykur möguleika á verkefnum fyrir erlenda aðilaÞá segir að endurnýjun klassavottunarinnar auki einnig möguleika fyrirtækisins á að taka að sér verkefni fyrir erlenda aðila, þar sem vottun frá viðurkenndu flokkunarfélagi sé mikilvæg forsenda fyrir því að skipaeigendur og rekstraraðilar geti treyst aðstöðu til viðhalds og viðgerða. „Flotkví Slippins Akureyri er eina flotkvíin á Íslandi með slíka vottun. Hún endurspeglar þann gæðastaðal sem fyrirtækið leggur áherslu á í starfsemi sinni og það traust sem flokkunarfélög bera til þeirrar fagmennsku sem þar fer fram,“ segir á slippurinndng.is.
Skrifað af Þorgeir 12.03.2026 22:12Bæði Hafróskipin á Akureyri i GærSmá viðbót við frettina um Þórunni Þórðardóttur HF 300 ef að vel er gáð efst i Hægra horninu má sjá glitta i Árna Friðriksson RE 200 þar sem að hann liggur við bryggju Útgerðarfélags Akureyringa en bæði skipin héldu frá Akureyri skömmu eftir miðnætti siðastliðna nótt
Skrifað af Þorgeir 11.03.2026 22:43Þórunnn Þórðardóttir HF 300Bæði Skip Hafrannsóknarstofnunnar komu til Akureyrar i morgun sennilega til að hvila áhafninar Þórunn Þórðardóttir lá fyrir neðan miðbæinn við Torfunesbryggju sem að verið er að endurbyggja hérna koma nokkar myndir
Skrifað af Þorgeir 06.03.2026 22:42Grálúðulandanir á Akureyri i dagI morgun 6 mars 2026 komu til löndunnar á Akureyri frystitogarinn Snæfell EA 310 og netabáturinn Kristrún Re 177 Bæði stunda skipin Grálúðuveiðar Snæfellið i troll en Kristrún i net aflinn var með þokkalegasta móti Þrátt fyrir erfitt veður fyrir vestan og austan þar sem skipin hafa verið við veiðar skipin héldu Strax aftur til veiða að löndun lokinni Snæfell EA i vesturkantinn milli islands og Grænlands og Kristrún RE austur i Héraðflóa
Skrifað af Þorgeir 05.03.2026 22:28Sólberg ÓF 1 með verðmætasta túr skipsins
Skrifað af Þorgeir 01.03.2026 20:58Kaldbakur EA1 landaði Fullfermi i HafnarfirðiÞað var heldur betur stuð á skipverjunum á Kaldbak EA1 þegar þeir komu til löndunnar i Hafnarfirði i dag með fullt skip og rúmlega það og fast á hæla þeirra kom Björg EA 7 með góðan afla og er verið að klára að landa úr henni Kaldbakur hélt strax til veiða að lokinni löndun og er gert ráð fyri þvi að Björg EA haldi til veiða eftir löndun hérna koma nokkrar myndir af Kaldbak EA i dag
Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1399 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 5560 Gestir í gær: 24 Samtals flettingar: 2733314 Samtals gestir: 72367 Tölur uppfærðar: 23.3.2026 12:07:12 |
||||||||||||||||||||||||||||
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is