Færslur: 2007 Ágúst10.08.2007 16:54SUÐUREYRI AFLA HÆÐST FYRIR VESTAN SIÐUSTU VIKU
Skrifað af Þorgeir 09.08.2007 13:17Alrún is 103Báturinn Arún ÍS-103 sökk við flotbryggjuna á Suðureyri í morgun. Arún er 5,5 brúttótonna færeyskur handfærabátur frá árinu 1990. Leki kom að bátnum og reynt var að dæla upp úr honum án árangurs og því fór sem fór. Nú liggur báturinn á botninum og bíður þess að vera komið á þurrt. heimild BB .IS MYND ÞORGEIR BALD 2007 Skrifað af Þorgeir 08.08.2007 02:10Svanborg Ve 52Hérna kemur einn gamall úr eyjum Svanborg Ve 52 hver getur sagt sögu hennar hérna myndin er tekin árið 2001 i innsiglingunni i Vestmannaeyjum Skrifað af Þorgeir 08.08.2007 01:54ÁSÚLFUR IS 202HÉRNA KEMUR NÆSTI BÁTUR ÚR BYGGÐASAFNINU AÐ VESTAN OG HVAÐ GETA MENN SAGT UM SÖGU HANS OG AFDRIF Skrifað af Þorgeir 07.08.2007 02:06GÓÐAR HORFUR MEÐ SILD OG MAKRILVEIÐARNorska skipið Libas er um þessar mundir í síldarrannsóknaleiðangri á svæðinu milli Íslands og Noregs. Athuganir benda til þess að útbreiðslusvæði norsk-íslensku síldarinnar hafi stækkað sem talið er lofa góðu um síldveiðar næsta árs. Þá hefur komið fram að makríll hefur leitað meira norður og vestur á bóginn en áður.
Leif Nöttestad fiskifræðingur sem er um borð í Libas segir í samtali við norska sjávarútvegsblaðið Fiskaren, að síld sé að finna bæði í íslenskri lögsögu, Síldarsmugunni og við Jan Mayen. Útlit sé fyrir að síldin sé nú á leið austur á bóginn í átt að norsku lögsögunni. Útbreiðslusvæði makríls hafi í ár færst meira til norðurs og vesturs en áður og mikið sé af ungum makríl í Síldarsmugunni og í norskri lögsögu. Þegar Fiskaren hafði samband við Libas var skipið statt 72°20 N og stóð til að leita næst í austur- og norðurausturhluta Noregshafs en fara síðan í færeysku lögsöguna til þess að kanna útbreiðsluna til suðurs. ,,Stækkandi útbreiðslusvæði síldarinnar endurspeglar stóran stofn, hann er í góðu standi og átan sömuleiðis. Ennþá er of snemmt að spá fyrir um kvóta næsta árs en þó er hægt að segja að útlitið sé gott,? segir Nöttestad. Heimild Skip.is mynd ÞORGEIR BALDURSSON Skrifað af Þorgeir 05.08.2007 14:14MARIA JÚLIA BA 36Rakst á þetta gamla varðskip okkar islendinga i höfn á BONUNGARVIK fyrir skemmstu og nú er spurt hvað vita menn um sögu þessa skips góðir fræðimenn og hvað er ætlunin að gera við það Skrifað af Þorgeir 04.08.2007 12:26ISBORG IS 250Set hérna inn mynd no 2 úr BYGGÐA SAFNINU Á ISAFIRÐI myndin er af Isborgu is 250 OG ÞÆTTI MÉR GAMAN AÐ EINHVER MYNDI SEGJA SÖGU HENNAR OG HVAÐ UM HANA VARÐ Skrifað af Þorgeir 04.08.2007 01:21EIN MEÐ ÖLLU AKUREYRI 2007Ein með öllu hófst á Akureyri i gærkveldi og var kominn talsverður fjöldi fólks i bæinn og þar á meðal voru HARA systur úr hveragerði LJÓTU HÁLVITARNIR frá Húsavik og svo verða ýmsir skemmtkraftar Björgvin Halldórsso og hljómsveitin Von frá Sauðarkróki. PÁLL ÓSKAR ,Sniglabandið, Magnús Prins póló ,Stuðmenn JÓVAN X-FACTOR Söngvaborg (Sigga Beinteins og Maria Björk) Helena Eyjólfs og Hvitir Mávar ásamt ýmum öðrum viðburðum sem að hægt er að nágast bæklinga yfir i sjoppum og bensinstöðvum i bænum Skrifað af Þorgeir 03.08.2007 00:49ODRA NC 110 (EX BALDVIN ÞORSTEINSSON EA 10Baldvin Þorsteinsson ea 10 hefur sem kunnugt er verið seldur til dótturfyrirtækis Samherja h/f i þýskalandi og hefur fengið nafnið ODRA NC 110og er skipið skráð i Cuxhaven og var það tekið niður úr slippnum á akureyri i gærkveldi og mun skipið sigla frá akureyri innan fárradaga Skrifað af Þorgeir 02.08.2007 16:53ÁMINNING TIL ÖKUMANNA PASSA HRAÐANN HEIMILD AKUREYRI.NET MYND ÞORGEIR Aukin löggæsla um verslunarmannahelgina -Virkt umferðareftirlit um land allt
Embætti ríkislögreglustjóra hefur ákveðið að auka sérstaklega löggæslu um verslunarmannahelgina líkt og undanfarin ár. Sérstök áhersla verður lögð á að styrkja lögregluumdæmin við umferðareftirlit og fíkniefnalöggæslu. Á síðustu vikum hafa embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu haft samstarf um skipulagt eftirlit með fíkniefnasölum með það að markmiði að draga úr framboði og sölu fíkniefna á þeim útisamkomum er haldnar verða um verslunarmannahelgina. Fíkniefnaeftirlitið vegna verslunarmannahelgarinnar hófst mánudaginn 23. júlí síðastliðinn. Síðan þá hefur verið leitað að fíkniefnum á 325 stöðum, í farangri, húsum og bílum. Þar af hafa fundist fíkniefni á 61 stað og hald langt á allar tegundir fíkniefna. Að auki hafa 30 ökumenn verið teknir undir áhrifum fíkniefna. Fyrir og um verslunarmannahelgina munu þrjú teymi rannsóknarlögreglumanna ásamt fíkniefnaleitarhundum frá lögreglu og tollstjóranum í Reykjavík verða á ferðinni þar sem fólk safnast saman. Teymin munu verða öllum lögregluliðum landsins til aðstoðar en lögð verður sérstök áhersla á eftirlit á þeim stöðum þar sem margir koma saman. Umferðareftirlit lögreglunnar verður aukið verulega um helgina. Lögreglubifreiðar eru búnar nýjum tækjabúnaði. Þar á meðal er stafrænn búnaður sem hljóð- og myndritar samtöl og samskipti lögreglumanna og ökumanna, búnaður er getur mælt hraða ökutækja óháð akstursstefnu lögreglubílsins ásamt fleiru. Jafnframt verður eftirlit á ómerktum bifreiðum lögreglu, úr sjálfvirkum hraðamyndavélum auk þess sem eftirlit með umferð verður úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. Í ljósi þess að margir yfirgefa heimili sín um verslunarmannahelgi er ástæða til að minna almenning á að ganga tryggilega frá öllu áður en lagt er af stað auk þess sem æskilegt er að fá nágranna til að fylgjast með íbúðarhúsnæði sem stendur autt Skrifað af Þorgeir 02.08.2007 08:30AGGI AFI EA 399 FÉKK I SKRÚFUNABjörgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Húnabjörg á Skagaströnd, sigldi til aðstoðar 46 tonna snurvoðabáts, rétt fyrir hádegi. Báturinn hafði fengið veiðarfærin í skrúfuna rétt við Kálfshamarsvita norðan við Skagaströnd, að því er kemur fram í fréttatilkynningu Landsbjargar. Báturinn varð vélavana um 12 mílum úti fyrir Skagaströnd. Engin hætta var á ferð og verið er að draga bátinn í land. Þetta er sjöundi björgunarleiðangur Húnabjargar frá því á Sjómannadaginn þann 3. júní að sögn Reynis Lýðssonar, formanns Björgunarfélagsins Strandar á Skagaströnd. Hann segir það heldur margar ferðir og telur ástæðuna vera hversu mikil umferð hefur verið af bátum sem sumir hafi verið óheppnirheimild mbl .is mynd þorgeir Skrifað af Þorgeir 01.08.2007 22:42Venus Hf 519 landar á AkureyriVenus HF 519 eitt skipa Granda HF landaði á Akureyri i vikunni afla úr barentshafinu um 600 tonnum mest þorskur aflaveðmæti um 140 milljónir og tók túrinn 40 daga og mun skipið halda til veiða á sömu slóðir nk sunnudagskvöld Skrifað af Þorgeir 01.08.2007 21:20Jonny King og Siggi Helgi i Hótel BjarkarlundurKántrýbragur verður á fjölskylduhátíðinni í Bjarkalundi í Reykhólasveit um verslunarmannahelgina. Kúrekar norðursins, þeir Johnny King og Siggi Helgi, bregða sér vestur og sjá um fjörið ásamt söngkonunni Lilju Björk. Línudanskennsla verður í boði ásamt karaókíkeppni fyrir börn og fullorðna, sem geta tekið sönginn sinn með sér á diski. Ratleikur verður fyrir yngstu kynslóðina. Á laugardagskvöldið verður brenna með gítarspili og söng eins og alltaf um verslunarmannahelgina í Bjarkalundi. Í veitingasalnum á hótelinu verða í boði kántrýborgarar, burritos og kántrýdrykkir í kúrekastíl, auk hins rómaða matseðils Bjarkalundar. Skrifað af Þorgeir 01.08.2007 14:01Verða veiðieftirlitsmenn óþarfir i framtiðinniStjórnvöld og sjómenn í Bresku Kólumbíu í Kanada hafa undanfarið gert tilraunir með eftirlitsmyndavélar um borð í fiskiskipum. Tilgangurinn er að fylgjast með hvort farið sé að reglum um veiðar og hvort um brottkast á afla sé að ræða.
Myndavélarnar er staðsettar þannig að þær ,,sjái? þegar aflinn kemur um borð hvort sem um er að ræða troll eða línu. Vélarnar, sem yfirleitt eru tvær, eru tengdar við vindur skipanna og fara í gang um leið og þær. Auk mynda af veiðunum skrásetur tækið veiðitíma og staðsetningu skips þegar veiða áttu sér stað með GPS móttökubúnaði. Í Fishing News International segir að sjómenn í Bresku Kólumbíu séu sáttir með þessa nýju tækni og talsmenn Archipelago Marine Research sem stjórnar verkefninu segja mun ódýrara og öruggara að setja upp myndavélar en að hafa eftirlitsmenn um borð í skipunum.HEIMILD SKIP.IS Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 702 Gestir í dag: 16 Flettingar í gær: 1858 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 1061976 Samtals gestir: 50970 Tölur uppfærðar: 22.12.2024 07:03:21 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is