Færslur: 2008 Júlí23.07.2008 15:20Samherji leggur Normu Mary© myndir þorgeir Baldursson 2007 Tvö af af elstu skipum Samherja komu nýlega úr sinni síðustu veiðiferð eftir langan og farsælan feril hjá félaginu. Eru þetta Norma Mary, áður Akureyrin EA-110, og Víðir, áður Apríl HF. Skipin stunduðu bæði bolfiskveiðar og ár eftir ár hafa þau verið meðal þeirra íslensku skipa sem skilað hafa mestu aflaverðmæti. Fram kemur á heimasíðu Samherja, að Norma Mary var fyrsta skipið sem Samherji eignaðist og eigi sér því sérstakan sess í sögu félagsins. Hún var byggð í Póllandi árið 1974 og hét Guðsteinn þegar núverandi eigendur Samherja eignuðust fyrirtækið árið 1983. Skipinu var breytt í frystitogara og var meðal þeirra fyrstu hér á landi sem útbúið var til að fullvinna og frysta afla um borð. Skipið var selt árið 2002 til dótturfyrirtækis Samherja í Bretlandi, Onward Fishing Company og nefnd Norma Mary. Skipið kom úr síðustu ferðinni með fullfermi eða tæplega 450 tonn af þorskflökum að verðmæti rúmlega 300 milljónir króna. Skipstjóri á Normu Mary síðustu árin var Ásgeir Pálsson. Samherji segir, að þessar breytingar séu liður í því að endurnýja skip félagsins og að laga skipaflota fyrirtækisins að aflaheimildum. frétt af mbl.is myndir þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir 23.07.2008 10:13Sumarfri 2008
Kaldbakur EA1 kom til heimahafnar á Akureyri um miðjan dag i gær með um 90 tonn af blönduðum afla og tekur nú við 2 vikna stopp og verður timinn notaður til viðhalds skipsins og veiðarfæra brottför áætluð 5 ágúst Skrifað af Þorgeir 23.07.2008 00:25Dóri í Vörum GK 3586192. Dóri í Vörum GK 358 © mynd Emil Páll 2008 Skrifað af Emil Páli 23.07.2008 00:12Slippurinn© MYNDIR ÞORGEIR BALDURSSON 2008 Það var talvert lif á svæði slippsins i gærdag þegar siðuritari átti leið um hafnarsvæðið og voru þar meðal annars skip sem að var lengi vel gert út á rækju bæði hérna heima og erlendis og hét lengi Helga Björg HU en heitir i dag Neptune og mun skipið eiga að vera aðsetur fyrir kafara ásamt ýmssum verkefnum tengdum þvi, svo er Tenor sem að er i eigu Nýsirs og er hann búinn að vera hérna við bryggju um ár og ekkert fararsnið á honum Hamar SH 224 var tekin upp i dráttarbrautina i gærkveldi og Klakki SH 510 var slakað niður úr flothvinni i gærkveldi svo að verkefnastaða fyrirtækisins mun vera góð um þessar mundir Skrifað af Þorgeir 22.07.2008 23:39Háhyrningur AK 20Ekkert veit ég annað um þetta litla horn, en að hann heitir þessu nafni og er að aftan stendur að hann sé frá Akranesi, en ekkert skipaskrárnr. er á honum. Háhyrningur AK 20 © mynd Emil Páll 2008 Skrifað af Emil Páli 22.07.2008 21:47Andvari VEAndvari ex VE 100 © Pierre Vigneau Vegna þess að tveir aðilar komu undir myndinni af 1895. Andvara VE 100 og vildu ekki viðurkenna að hann hefði sokkið eins og stóð ofan við myndina, heldur að hann hefði verið til nokkrum árum áður og þá verið m.a. á Flæmska hattinum, birtum við nú mynd af 2211. Andvara VE 100, þ.e. þeim sem kom eftir að hinn sökk og var m.a. á Flæmska hattinum og sést hér kominn með erlenda skráningu aftur.Efri myndin er tekin á flæmska hattinum þegar ég var skipverji á Eyborgu EA 59 frá Hrisey Skrifað af Þorgeir 22.07.2008 21:13Úreldingarbátar © Mynd þorgeir Baldursson 2008 Skrifað af Þorgeir 22.07.2008 12:16Mesta þorskvinnsla landsins er í Grindavík21.07.2008 Samkvæmt upplýsingum úr skýrslu frá Hagstofu Íslands: Afli, aflaverðmæti og ráðstöfun afla 2007.
sem kom út 10 júlí
2.164 tonn af skarkola voru unnin á Suðurnesjum eða 37% þess afla. Skrifað af Þorgeir 22.07.2008 00:16Helga María AK 16Smíðaður í Flekkefjord í Noregi 1988. Hét fyrst Haraldur Kristjánsson HF 2 og síðan Helga María AK 16. 1868. Helga María AK 16 © mynd Emil Páll 2008. Skrifað af Þorgeir 22.07.2008 00:05Skátinn GK 82Smíðaður hjá Vör hf. á Akureyri 1974. Hét fyrst Frosti ÞH 230 og síðan Helga Guðmunds ÞH 230, Helga Guðmunds RE 104, Reynir AK 18, Egill SH 195, Herdís SH 196, Ársæll Sigurðsson HF 80, Stakkaberg SH 117, Frosti SH 13, Kofri ÍS 41 og að lokum Skátinn GK 82. 1373. Skátinn GK 82 © mynd Emil Páll 2008. Skrifað af Þorgeir 22.07.2008 00:00Bliki EA 12Smíðaður í Svíþjóð 1988. En hvað varð síðan um hann?
Skrifað af Þorgeir 21.07.2008 23:15Dularfull skúta í óskilum"Ég hef eiginlega ekkert um málið að segja," segir Sigríður Kristinsdóttir, lögmaður bæjarfélagsins Hafnar í Hornafirði, um skútuna Ely sem hefur legið við bryggju í höfninni síðan í fyrrahaust. Enginn hefur gert kröfu í skútuna en eigandinn skuldar mikla fjármuni í hafnargjöld. Lögreglan á Höfn hefur, líkt og fleiri stofnanir ríkisins, reynt að finna eigandann en ekkert fundið. Grunur leikur á að eigandinn sé erlendur. Skútan Ely er af nýrri gerð sem kostar rúmar 20 milljónir króna að sögn fróðra manna. Þrátt fyrir það hefur enginn vitjað skútunnar og enginn virðist vita hvaðan hún kemur eða hver á hana. Úr dv.is Skrifað af Þorgeir 21.07.2008 07:46Skipsstrand á Breiðafirði
Innlent | Morgunblaðið | 21.7.2008 | 05:30 Mannbjörg á BreiðafirðiMannbjörg varð í gærkvöldi þegar Garpur SH, 12 tonna stálbátur frá Grundarfirði, strandaði á Flikruskeri rétt suðvestur af Reykhólum. Landhelgisgæslunni barst neyðarkall kl. 21.26. Þrír menn voru um borð. Þegar fjaraði tók bátnum að halla mikið og fór áhöfnin þá í björgunarbát. Fljótlega kom lögregla á báti frá Skarðsströnd og tók mennina um borð. Hergilsey frá Reykhólum og fleiri bátar komu á vettvang og tókst þeim að ná Garpi lítið skemmdum af skerinu. Leki var ekki sjáanlegur, að sögn LHG, og átti að draga bátinn til Reykhóla. Gott veður var á slysstaðnum. Kom þetta fram í morgun á mbl.is Skrifað af Þorgeir 21.07.2008 00:16971 Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 25© Mynd Óskar Franz Þessa mynd tók ég síðasta sumar vestur í Súðavík,en báturinn lá þar milli tveggja báta. En hvað ætli verði um þennan snyrtilega bát ? Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is