Oft hefur verið minnst á að Margrét EA ætti eitt systurskip sem héti Slatteröy. Óðinn Magnason tók mynd af því skipi á Fáskrúðsfirði 2007 og sendi okkur myndina á síðuna.
Togarinn Lómur II sem legið hefur í Kópavogshöfn síðan í sumar, slitnaði upp í nótt og rak í strand. Þrír menn voru um borð en það tókst að bjarga þeim.