Færslur: 2008 Nóvember08.11.2008 11:31Alnafnar við bryggjuÞó á þeim standi báðum nafnið Ólafur HF 200, þá er það þó ekki þannig á pappírum, sá stærri sem áður hét Dúddi Gísla GK 48 ber nú nafnið Ólafur HF 200, en hinn er skráður sem Ólafur HF 120 og samkvæmt heimildum mínum hefur hann verið seldur úr landi, að mig minnir til Grænlands. 2605. Ólafur HF 200 og 2640. Ólafur HF 200 við bryggju í Hafnarfirði nú í vikunni, nánari umfjöllun má sjá hér fyrir ofan myndina © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli 08.11.2008 00:27Þekkið þið þennan? og hvar er myndin tekin?Hver er þetta og hvar er myndin tekin? © mynd Tryggvi Sig. Skrifað af Emil Páli 08.11.2008 00:064. Bátalónsbáturinn sem enn er í gangi - Sæbjörg BA 59Mikið hefur verið spáð í það hér á síðunni hvort ekki séu einhverjir Bátalónsbátar enn til í útgerð og er þá átt við bátanna sem smíðaðir voru úr eik og furu á árunum 1971-1974. Fram að þessu hafa bara þrír verið nefndir til sögunnar en nú hefur komið í ljós að sá fjórði er til sem enn er í útgerð. Þessir bátar heita í dag Glófaxi II VE 301, Magnús KE 46, Skvetta SK 7 og Sæbjörg BA 59. Allir eru þeir óbreyttir frá fyrstu tíð nema Glófaxi, en honum var breytt í frambyggðan bát og á Akranesi var á sínum tíma smíðað á hann nýtt stýrishús. Einn þessara báta er með álhúsi en það er Magnús og þó menn hafa oft efast um það þá var það hús sett á hann í Bátalóni strax í upphafi að ósk kaupanda. Höfum við áður birt hér myndir af Glófaxi II og Magnúsi og nú birtum við mynd af Sæbjörgu, en við höfum ekki yfir að ráða mynd af Skvettu. 1188. Sæbjörg BA 59 © mynd Þorgeir Baldursson Skrifað af Emil Páli 07.11.2008 17:24Arnfirðingur RE 212 var rétta svariðJá, hér sjáum við rétta svarið við getrauninni sem var hér aðeins neðar. Arnfirðingur RE 212 og í kvöld eða nótt kemur síðan ný getraun. 783. Arnfirðingur RE 212 var rétta svarið © mynd úr safni Tryggva Sig. Skrifað af Emil Páli 07.11.2008 17:17Sigurkarfi GK 480Sigurkarfi GK 480 © mynd úr safni Tryggva Sig. Skrifað af Emil Páli 07.11.2008 17:05SysturskipHér sjáum við systurskipin 821. Sæborg VE22 og 853. Stakkur VE 32 upphaflega Tálknfirðingur BA 325 en báðir komu þeir nýir til Vestfjarða, Sæborg á Patró og Tálknfirðingur á Tálknó. Skrifað af Emil Páli 07.11.2008 06:12Seldur til Úruguay
Ísfiskatrolarin Rasmus Effersøe er nú seldur til Uruguay, upplýsir reiðarin Gudmund Mortensen. Í løtuni stendur skipið á beding í Havn og fer helst av landinum í vikuni.
Gudmund Mortensen reiðari vil ikki upplýsa søluprísin, men sigur at prísurin er sámiligur.
Rasmus Effersøe er blivin til veitingarskip, og hevur verði ein túr uppi í Grøndlandi, meðan hann var undir føroyiskum flaggið. Teir, ið hava megla søluna eru meglararirnir PO Brokers. Gudmund Mortensen reiðari sigur eisini at sum landið liggur íløtuni keypa teir onki nýtt skip fyri Rasmus Effersøe, ið nú er seldur, og seldur uttan fiskiloyvið. Skrifað af Emil Páli 07.11.2008 00:17Þekkið þið þennan bát?Hér sjáum við bát sem nú á haustmánuðum var til umfjöllunar hér á síðunni. Verði einhverjir getspakir ekki komnir með rétt svar á laugardag munum við birta mynd af sama báti, eftir að hann hafði verið sjósettur. Komi rétt svar áður munum við strax á eftir birta þá mynd. Þegar svarið er komið munum við síðan setja aðra getraun í loftið. Í hvaða bát er hér verið að setja vélina í ? © mynd úr safni Tryggva Sig. Skrifað af Emil Páli 06.11.2008 18:56Fara vonandi í næstu vikuÞess er vænst að í næstu viku fari togarinn Gréta SI 71 ex Margrét EA frá landinu með Guðrúnu Björg HF 125 í togi í brotajárn til Esbjerg í Danmörku. Liðnir eru nokkrir mánuðir frá því að för þeirra var á dagskrá og stóð þá til að Kambaröst RE 120 yrði tekin með, en skipið hefur legið í Þorlákshöfn. Ekki er vitað hvort svo verði.Skrifað af Emil Páli 06.11.2008 18:43Fina 5 brytjuð niður í HafnarfirðiÞið gamla skip Fína 5 sem hefur verið notuð til geymslu á asfalti fyrir malbikunarstöð Vestmannaeyja hefur nú verið tekin upp í gamla Drafnarslippinn í Hafnarfirði þar sem brjóta á skipið niður. Af því tilefni birtum við texta sem afritaður var af síðu Þorbjörns Víglundssonar í Vestmannaeyjum og er útdráttur úr greinargerð sem fylgi við innflutning á skipinu til Íslands. Á árinu 1974 gerði Olíumöl hf. í Hafnarfirði samning við norskt fyrirtæki um byggingu olíustöðvar í Hafnarfirði fyrir móttöku og geymslu á vegolíu og asfalti. Var stöð þessi reist eins og samningar stóðu til og hefur Olíumöl hf. starfrækt stöðina til framleiðslu á olíumöl. Eftir að olíustöðin var tekin í notkun hefur Olíumöl hf. tekið að sér umfangsmikil verkefni, bæði á Vestfjörðum og víðar, við malbikunarframkvæmdir. Í sambandi við þessi verk varð að flytja asfaltið frá stöð félagsins í Hafnarfirði á viðkomandi staði úti um land. Efnið þurfti að flytja í heitu ástandi, og var það fyrst sett 160 stiga heitt á einangraða geyma, sem voru fluttir með bílum. Þessir flutningar reyndust næstum ógerlegir í framkvæmd. Árið 1975 bauðst félaginu til kaups í Noregi asfaltprammi, sérstaklega byggður til flutninga á heitri olíumöl. Getur hann flutt 220 tonn af efninu í ferð. Þar sem prammi þessi er langtum eldri en tilskilið er í 26. gr. laga nr. 52 12.maí 1970 um eftirlit með skipum, hefur ekki verið hægt að kaupa hann, heldur hefur hann verið leigður Olíumöl hf. Fleyta þessi er byggð 1860, en samkvæmt upplýsingum frá sænskum yfirvöldum kaupir Nynäs Petroleum skipið og endurbyggir það sem tankpramma fyrir asfalt árið 1948. Árið 1955 er pramminn styrktur til siglinga á Eystrasalti. Var hann síðan notaður til olíu- og olíumalarflutninga til ársins 1973, að núverandi eigandi, Norske Fina A/S, kaupir prammann og endurbyggir hann til frekari asfaltflutninga við strendur Noregs. Umrætt skip hefur reynst mjög vel hér á landi, enda er það að mestu leyti endurbyggt, þannig, að þó að frumsmíði skipsins sé gömul, þá er flest nýtt í því, þ.e. allar vélar og tæki og bolurinn endurnýjaður eftir því sem þörf hefur verið. Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2319 Gestir í dag: 57 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 993740 Samtals gestir: 48564 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 11:09:39 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is