Færslur: 2008 Nóvember

22.11.2008 20:15

Hvaða togari var þetta?


                         Hvaða togari er þetta ? © mynd úr safni Tryggva Sig.

22.11.2008 00:21

Sandgerði


           Sandgerðishöfn 25. apríl 1965 © mynd úr safni Guðmundar Falk

22.11.2008 00:17

Færeyskar skútur í Vestmannaeyjum


              Færeyskar skútur í Vestmannaeyjum © mynd úr safni Tryggva Sig.

22.11.2008 00:04

Gamlar myndir frá Stöndum

Hér koma nokkrar af þeim fjölda mynda sem Guðjón Ólafsson sendi okkur til birtingar. Þessar eiga það sameiginlegt að vera norðan af Ströndum.




                                       
                                    © myndir úr safni Guðjóns Ólafssonar

21.11.2008 11:23

Grímsnes GK komið í slipp

Um miðnætti kom Ásgrímur Halldórsson SF 250 með Grímsnes GK til Njarðvíkur og í morgun var það síðan tekið upp í Njarðvíkurslipp. Meðfylgjandi myndir tók Emil Páll við slipptökuna.



       
             89. Grímsnes GK 555 komið í Njarðvíkurslipp í morgun © myndir Emil Páll

21.11.2008 00:19

Emma VE 219


                             1664. Emma VE 219 © mynd Tryggvi Sig.

21.11.2008 00:15

Hafnarey SF 36


                               1738. Hafnarey SF 36 © mynd Tryggvi Sig.

21.11.2008 00:10

Skafti HF 48


                                  1337. Skafti  HF 48 © mynd Emil Páll

21.11.2008 00:06

Hafnarfjörður


                Norðurbakkinn í Hafnarfjarðarhöfn 1965 © mynd úr safni Guðmundar Falk

21.11.2008 00:01

Reykjavík

Guðjón Ólafsson á Egilsstöðum hefur sent okkur töluverðan fjölda af gömlum myndum sem við munum birta í bland með öðrum myndum. Sendum við honum bestu þakkir fyrir.

                           Reykjavíkurhöfn 1962 © mynd úr safni Guðjóns Ólafssonar

20.11.2008 22:34

Gullfalleg aflögð trilla

TrillaTirilmri.jpg picture by jolasveinn1957

                                                   © mynd Gunnar Th. Þorsteinsson
Þessa gullfallegu en löngu aflögðu trillu rakst Gunnar Th. Þorsteinsson á er hann var á ferð um fjörukambinum milli Tirðilmýrar og Bæja á Snæfjallaströnd. Birti hann myndina á síðu sinni og fengum við hana að láni til birtingar hér.  Kemur fram hjá Gunnari að hann hafi talið að hér væri á ferðinni venjulegur fiskibátur en á seinni árum hafi hann hallast frekar að því að þessi bátur hafi verið notaður sem ferja, vegna lengdar hvalbaksins. Þó hafi hann enn ekki rekist á neinn sem staðfest getur það.

20.11.2008 21:23

Ætlar ekki að ganga þrautarlaust með Grímsnesið

Samkvæmt fréttum Hilmars Braga hjá vf.is nú áðan, þá hefur gengið illa fyrir Odd V. Gíslason að draga Grímsnesið og því hefur Ásgrímur Halldórsson SF 250 tekið við drættinum og mun draga bátinn allavega inn fyrir Garðskaga.
Það er því orðið ljóst að það ætlar ekki að gagna þrautarlaust að koma Grímsnesinu til hafnar í Njarðvík. En sem kunnugt er þá strandaði það í gærmorgun austur á söndum og við það urðu skemmdir á kælingunni á vélinni og tók varðskipið Týr bátinn í tog í átt að Vestmannaeyjum.
Komu þeir þá vél bátsins í tog og gekk hann fyrir eigin vélarafli til Eyja, en ákveðið var að sigla honum síðan fyrir eigin vélarafli til Njarðvíkur og fór hann því frá Eyjum í nótt.
Út af Sandvík á Reykjanesi bilaði vélin aftur og munaði þá litlu að báturinn ræki upp, en björgunarsveitum tókst að bjarga honum úr þeirri hættu og tók Oddur V. Gíslason bátinn þá í tog en þar sem sjór var þungur gekk það fremur illa, auk þess sem bilun varð í Oddi V. og þá tók Ásgrímur Halldórsson við og síðan mun koma í ljós hvort einhver annar taki við bátnum eftir að hann er kominn inn í Garðsjó.

20.11.2008 20:43

Sandvík: Viðbúnaður á sjó og landi

 

Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Oddur V. Gíslason frá Grindavík, er nú kominn með fiskibátinn, sem var aflvana út af Reykjanesskaga, í tog. Báturinn, Grímsnes GK - 555, er 150 tonna og 33 metra stálskip. Mun hann sennilega verða dreginn til hafnar í Njarðvík.
 
Auk Odds V. Gíslasonar fór einnig af stað björgunarskip frá Sandgerði og harðbotna björgunarbátar. Viðbúnaður björgunarsveita á Suðurnesjum var einnig nokkur en þær voru tilbúnar til aðgerða ef skipið ræki upp í fjöru.

-Frétt þessa og myndir fengum við frá vf.is og með heimild Hilmars Braga og þökkum við honum kærlega fyrir.

Ljósmyndir frá vettvangi við Sandvík nú undir kvöld. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson

20.11.2008 19:17

Mokveiði í Barentshafi

Málmey SK-1

                  1833. Málmey SK 1 © mynd Þorgeir Baldursson

NÚ ERU 3 SKIP AÐ VEIÐUM Í  BARENTSHAFI, BJÖRGVIN EA 311, MÁLMEY SK 1 SEM AÐ HEFUR VERIÐ AÐ FÁ UM 15-20 MILLJÓNIR Á DAG OG HEFUR MEÐAFLI VERIÐ MEÐ MINNSTA MÓTI. SVO ER KLEIFARBERG ÓF 2 í NORSKU LÖGSÖGUNNI EN SKIPIÐ LANDAÐI I TROMSÖ í NOREGI NÚ í VIKUNNI OG VAR AFLAVERÐMÆTIÐ UM 2OO MILLJÓNIR. ÞÁ ER VENUS HF 519 KOMINN TIL REYKJAVIKUR MEÐ AFLAVERÐMÆTI UPPÁ 223 MILLUR OG ÞEGAR ÞESSI SKIP ERU BÚINN ÞÁ ER KVÓTINN ÞARAN NORÐURFRÁ ALLVEGA BÚINN.

20.11.2008 18:39

Vestmannaeyjahöfn fyrir áratugum




                                       © myndir úr safni Tryggva Sig.

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 2560
Gestir í dag: 135
Flettingar í gær: 3321
Gestir í gær: 184
Samtals flettingar: 600078
Samtals gestir: 25056
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 15:16:09
www.mbl.is