Færslur: 2009 Apríl13.04.2009 00:01Þorlákur ÍS 15922. Þorlákur ÍS 15 © mynd Snorri Snorrason 2446. Þorlákur ÍS 15 © mynd Þorgeir Baldursson 2009 Skrifað af Emil Páli 12.04.2009 23:09Örfirisey RE 42170. Örfirisey RE 4 © mynd Þorgeir Baldursson 2009 Skrifað af Emil Páli 12.04.2009 23:04Mánaberg ÓF 421270. Mánaberg ÓF 42 © mynd Þorgeir Baldursson 2009 Skrifað af Emil Páli 12.04.2009 22:54Ásbjörn RE 50
Skrifað af Emil Páli 12.04.2009 16:28Wilson CaenWilson Caen kemur til Straumsvíkur á Páskadag © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli 12.04.2009 16:22Wilson HookWilson Hook bak við girðingar í Hafnarfjarðarhöfn © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli 12.04.2009 15:01Polaris ex Fagriklettur ex Arnar / Ólafur Tryggvason SF 60Eftir hádegi í dag vildi svo skemmtilega til að á sama tíma voru tveir að taka mynd af sama bátnum í Hafnarfirði, Emil Páll og Gunnar Th. Sjáum við hér afrakstur þeirra, en tilefni var að búið er að setja nafnið Polaris á fyrrum Fagriklett HF 123, sem áður hét Arnar SH 757 og SH 157, auk margra annarra nafna. En við birtum einnig mynd einmitt af honum þegar hann hét Ólafur Tryggvason og þá mynd tók Snorri Snorrason á sínum tíma. Polaris ex 162. Fagriklettur HF 123 © mynd Gunnar Th. 162. Polaris © mynd Emil Páll 162. Ólafur Tryggvason SF 60 © mynd Snorri Snorrason Skrifað af Emil Páli 12.04.2009 00:01PáskahátíðÞar sem páskahátíðin er nú gengin í garð, senda síðuritarar öllum lesendum sínum bestu óskir um Gleðilega páska Kær kveðja Þorgeir Baldursson Emil Páll Jónsson Skrifað af Þorgeir og Emil Páli 11.04.2009 15:11Veist þú um veðurglögga menn?Í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands höfum við sem stöndum að síðu þessari ákveðið að leita til ykkar um aðstoð á sérstöku verkefni sem er eftirfarandi: Þjóðminjasafn Íslands er með í undirbúningi spurningaskrá um alþýðlegar veðurspár og veðurþekkingu, en um er að ræða samvinnuverkefni við námsbraut í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Sérstök spurningaskrá um þetta efni var síðast send út árið 1975, og var aðallega spurt um hina gömlu alþýðlegu veðurfræði. Markmiðið með þessari skrá er að skoða hvernig þessi þekking hefur lifað síðan þá, auk þess sem staðbundin enkenni í veðurspám verði rannsökuð sérstaklega. Á 20 öld kunnu margir að gá til veðurs en þessi þekking er nú smám saman að glatast, enda hefur þjóðin haft öfluga veðurstofu svo áratugum skiptir. Með spurningaskránni er leitast við að ná til sem beiðasta hóps í öllum landshlutum. Hafa þeir sem standa fyrir þessu sérstakan áhuga á að komast í samband við sjómenn, einnig þá sem hættir eru að spá í veðrið með gamla laginu. Það er niðurstaða út af fyrir sig ef sjómenn styðjast eingöngu eða svo til alveg við netið eða veðurfréttir - og fróðlegt að fá upplýsingar um það. Vandamálið er hins vegar að ná til manna sem búa yfir fróðleik á þessu sviði. Þá er komið að því sem óskað hefur verið eftir að við sem sjáum um þessa síðu gætum aðstoðað við, en það að koma Þjóðminjasafninu að liði. Því óskum við eftir því að þið lesendur góðir gætuð hjálpað okkur á að benda á líklega heimildarmenn eða greitt götu okkar í einn eða á annan hátt. Hægt er að sitja niður nöfn hér fyrir neðan eða með því að senda viðkomandi upplýsingar um nöfn, heimilisföng og símanúmer á www.emilpall@simnet.is og munum við síðan koma þessum upplýsingum áfram. Einnig er hægt að ná sambandi við Emil Pál í síma 845 0919. Þæginlegast fyrir alla væri að geta sent sem flestum heimildarmönnum tölvupóst, en það er þó alls ekki neitt skilyrði. Þjóðminjasafn Íslands hefur í um hálfa öld safnað heimildum um þjóðhætti með spurningaskrám. Spurt hefur verið um lífshætti, siði og venjur fyrr á tímum en í seinni tíð heufr söfnunin einnig beinst að samtímanum. Svör heimildarmanna eru varðveitt í skjalasafni Þjóðminjasafnsins og slegin inn í rafrænan gagnagrunn. Aðgangur að grunninum er þó takmarkaður og háður sérstöku leyfi. Skrifað af Emil Páli 11.04.2009 00:22Golan ÁR 16Það eru ekki margir bátar með heimahöfn á Selfossi. Það er þó þessi, en hann verður þó að mestu gerður út frá Ólafsvík. Bátur þessi sem bar nafnið Friðfinnur SU 23 hefur nýlega verið keyptur af fyrirtækinu Hafgolan ehf. á Selfossi og í samtali eiganda bátsins við síðuritara sl. sunnudag þá stóð til að nota dymbilvikuna til að umskrá bátinn og fengi hann þá nafnið Golan ÁR 16. 2438. Friðfinnur SU 23 í Reykjavíkurhöfn Nú væntanlega orðinn 2438. Golan ÁR 16 © myndir Þorgeir Baldursson Skrifað af Emil Páli 11.04.2009 00:08Már RE 877011. Már RE 87 í Reykjavíkurhöfn sl. sunnudag © mynd Þorgeir Baldursson Skrifað af Emil Páli 11.04.2009 00:02Von GK 1132733. Von GK 113 í Sandgerði á skírdag © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli 10.04.2009 23:40Skinney lengd?Hilmar Bragi Bárðarson fréttastjóri Víkurfrétta var aðeins að leika sér með tölvutæknina og lengdi því Skinney, þar sem mörgum finnst hún ansi stutt. Þetta er þó til gamans gert og vonandi taka menn þetta þannig. © tölvutækni Hilmar Bragi Bárðarson Skrifað af Emil Páli 10.04.2009 08:12Regina C GR-6-310 við GrænlandJón Frímann Eiríksson, sem var afleysingaskipstjóri á Ingimundi SH á rækjuveiðum við vestur strönd Grænlands og frysti alla rækjuna um borð, árið 2002 sendi okkur þessar myndir frá þeim tíma. Sýna þær frystitogarann Regínu C og eru ýmist teknar utan við höfnina í Sisimiut eða frá öðru skipi Akamalik. Jón Frímann er núna á Hring SH 153 og sendum við honum bestu þakkir fyrir sendinguna. Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is