Færslur: 2009 Maí

08.05.2009 22:09

Samherjaskip


                   Björgúlfur  EA 312 og Björgvin EA 311 © Mynd þorgeir Baldursson 2009
Tveir togarar Samherja voru á Ýsuslóð úti fyrir suðausturlandi i morgun veit einhver söguna
hversvegna er ekki búið að mála Björgúlf i litum Samherja

08.05.2009 14:48

Von RE 3 seld í Voga

Feðgarnir Halldór Magnússon og Björn Elías Halldórsson úr Vogum hafa fest kaup á Von RE 3 og er það annar báturinn sem þeir kaupa á stuttum tíma en hinn er Fanney HU 83 sem liggur í Reykjavíkurhöfn. Von RE er smíðuð af Kristjáni Gumundssyni í Stykkishólmi árið 1987. Fram til þessa hefur báturinn borið eftirfarandi nöfn: Már SH 118, Elsa NS 216, Elsa SU 216, Jónas Guðmundsson GK 475, Jóka RE 3 og Von RE 3.


                    1857. Von RE 3 í nýrri heimahöfn í Vogum © mynd Emil Páll 2009

08.05.2009 14:14

Mars RE 205


                                       2154 Mars RE 205 © Mynd Þorgeir Baldursson 2009
Mars RE 205 á siglingu fyrir austan land i morgun

08.05.2009 13:58

1472- Klakkur SH 510


                        1472- Klakkur SH 510 Mynd Þorgeir Baldursson 2009
Klakkur SH 510 er hérna á veiðum fyrir austan land i morgun.Skipstjóri er Snorri Snorrasson

08.05.2009 13:56

Nýr Ólafur Magnússon HU 54 til Skagastrandar

Í gær var sjósettur í Hafnarfirði báturinn Ólafur Magnússon HU 54 frá Skagaströnd, eftir miklar breytingar þar. Var báturinn m.a. lengdur um 2 metra, auk þess sem skipt var um mastur o.fl. áhonum. Það er SJ-útgerð á Skagaströnd sem festi kaup á bátnum í upphafi ársins, en áður hét hann Halla Sæm SF 23 frá Höfn.Sama útgerð hafði sl. hausti fest kaup á Felix AK og gefið honum nafnið Lómur HU en það gekk ekki áfallalaust að koma þeim báti í heimahöfn, því eftir að hann hafði siglt frá Reykjavík til Akraness var ekið með hann til Hvammstanga þar sem átti að sjósetja hann og stóð til að hann sigldi þaðan til Skagstrandar. En ekki vildi betur til en svo að þegar gúið var að sjósetja bátinn á Hvammstanga valt kraninn sem hafði verið notaðu við við verkið, á hliðina og lenti á bárum og komst sjór í vélarúmið og honum hvoldi og sökk síðan þann 22. nóv. sl.
Á þessi bátur því að koma í stað Lóms.


          2183. Ólafur Magnússon HU 54 í Hafnarfirði í dag © mynd Emil Páll 2009

08.05.2009 00:30

Sigurkarfi GK 480


                               184. Sigurkarfi GK 480 © mynd Snorri Snorrason

08.05.2009 00:25

Skeiðfaxi


                             1483. Skeiðfaxi © mynd Þorgeir Baldursson 2009

08.05.2009 00:19

Sólrún EA 151


                  2547- SÓLRÚN EA 151 MYND ÞORGEIR BALDURSSON 2009
Sólrún EA 151 á landleið inn Eyjafjörðinn  einn góðviðrisdag fyrir skömmu

08.05.2009 00:17

Jötunn


                                  2756. Jötunn © mynd Þorgeir Baldursson 2009

08.05.2009 00:07

Skírnir AK 12


                                191. Skírnir AK 12 © mynd Snorri Snorrason

                            6518. Skírnir AK 12 © mynd Þorgeir Baldursson 2009

08.05.2009 00:00

Norðurljós HF 73 og RE 161


                                2360. Norðurljós HF 73 © mynd Emil Páll 2009

                   7317. Norðurljós RE 161 ex VE 16 © mynd Þorgeir Baldursson 2009

07.05.2009 14:51

Grásleppubátur

Eyjólfur Ólafsson GK 38 skráður í Sandgerði en í eigu aðila í Keflavík, er einn þeirra Suðurnesjabáta sem þetta árið eru gerðir út á grásleppuveiðar.


                           2175. Eyjólfur Ólafsson GK 38 © mynd Emil Páll 2009

07.05.2009 09:20

Labrador Storm



      Labrador Storm í höfn á Akureyri. © MYND/ÞORGEIR BALDURSSON 2009

 

 

   Nokkrir yfirmenn hjá Natfish í brúnni á Labrador Storm, talið frá vinstri: Wayne Mansfield stýrimaður á togaranum Inuksuk, Jónfriður Poulsen skipstjóri á Labrador Storm, Gabriel Lanteigne stýrimaður á togaranum Inuksuk og Steingrímur Erlingsson útgerðarstjóri.  © MYND/ÞORGEIR BALDURSSON 2009

 

 

Fjórða skipið sem Nataaqnaq Fisheries gerir út

 

Labrador Storm veiðir

rækju við Kanada

 

Grænlenski togarinn Tasermiut sem verið hefur á Akureyri undanfarna mánuði í viðgerð og breytingum hjá Slippnum hefur verið seldur til Kanada og fengið nafnið Labrador Storm.

 

Útgerð skipsins verður í höndum Nataaqnaq Fisheries Inc í St. John's á Nýfundnalandi. Steingrímur Erlingsson útgerðarstjóri hjá Natfish sagði í samtali við Fiskifréttir að skipið færi á rækjuveiðar í kanadískri lögsögu.

 

Labrador Storm er 66 metra langur togari og var smíðaður í Noregi árið 1988. Þetta er fjórða skipið sem Nataaqnaq Fisheries annast útgerð á. Fyrir gerir félagið út tvo rækju- og grálúðutogara og einn netabát. Steingrímur sagði að skip á vegum Natfish hefðu veitt um 10 þúsund tonn af rækju á síðasta ári og um 3 þúsund tonn af grálúðu. Með tilkomu Labrador Storm mun rækjuveiðin aukast í um 17-18 þúsund tonn á ári. Frekari upplýsingar má finna á vef félagsins www.natfish.ca.

 

kjartan@fiskfrettir.is

 

07.05.2009 00:35

Hvaða fáni er þetta?

Hér sjáum við mynd af fánanum sem er að aftan á flutningaskipinu Axel. En hvaða fáni er þetta?


                            Hvaða fáni er þetta á m.s. Axel?  © mynd Emil Páll 2009

07.05.2009 00:29

Frosti HF 320


                               6190. Frosti HF 320 © mynd Emil Páll 2009

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 2661
Gestir í dag: 172
Flettingar í gær: 1762
Gestir í gær: 168
Samtals flettingar: 596858
Samtals gestir: 24909
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 20:50:38
www.mbl.is