Færslur: 2009 Október22.10.2009 09:46Landað á Eskifirði1135-Arnarberg ÁR 150 © Mynd þorgeir Baldursson Linubáturinn Arnarberg ÁR i eigu Auðbjargar Ehf i Þorlákshöfn landaði á Eskifirði i fyrradag ekki veit ég aflabrögð né hvernig hefur gengið hjá þeim Skrifað af Þorgeir 22.10.2009 00:45Trollið tekið
Skrifað af Þorgeir 21.10.2009 21:38Ritstjóra skiptiÞar sem að slitnað hefur uppúr samstarfi Emils Páls og þorgeirs mun hann ekki koma meira að siðunni og er honum þökkuð samvinnan en ég mun halda uppteknum hætti og setja inn fréttir og annað sem að tengist sjávarútvegi með bestu kveðjum Þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir 21.10.2009 00:02Athugasemdir við BloggfærslurAð gefnu tilefni eftir þónokkra ihugun finnst mér rétt að geta þess að ég hef ákveðið að opna fyrir athugasemdir við myndir en vil biðja siðulesendur að gæta orðavals i hvivetna kveðjur þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir 21.10.2009 00:00PóllandGdynia Í Gdynia Í Nordship í Gdynia Í Stocznia Gdansk Stocznia Svafar fyrir framan Stocznia Tvær tvíbytnur © myndir Svafar Gestsson Þar með er þessum Póllandskafla lokið Skrifað af Emil Páli 20.10.2009 21:29Gæslan fylgist með olíuskipi innan um borgarísjakaStjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur í dag fylgst með siglingu olíuskipsins ZOYMA vestur fyrir Ísland en skipið er á leið frá Bandaríkjunum til Rússlands. Skipið valdi að sigla vestur fyrir land vegna lægða sem ganga yfir suður af landinu. Athygli vakti þegar skipið sigldi lengra í norður en venjan er á þessari siglingaleið en ástæðan var sú að skipið vildi halda ákveðinni fjarlægð frá fiskiskipum á svæðinu. Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar TF-Sif var í gæsluflugi um vestanvert landið og var hún beðin um að kanna svæðið nánar. Sá hún að skipið hafði nýlega farið hjá borgarísjaka en hafísrönd og stakir ísjakar voru nokkuð norðan við það. Var skipið upplýst um stöðuna var því bent á að fara varlega. ZOYMA er 60 þúsund tonna olíuskip, skráð í Grikklandi. Það er 233 metrar að lengd, 42 metrar að breidd og ristir 15 metra. Skipið er ekki með olíu innanborðs en það er á bakaleið eftir að hafa siglt með olíu frá Rússlandi til Bandaríkjanna fyrr í þessum mánuði. Olíuskipið ZOYMA, mynd tekin úr eftirlitsbúnaði TF-Sifjar. Skrifað af Emil Páli 20.10.2009 20:32Máni BA 211328. Máni BA 211 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, safn Sjómannadagsráðs Skrifað af Emil Páli 20.10.2009 20:27Egill BA 4681611. Egill BA 468 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, Sigurður Bergþórsson Skrifað af Emil Páli 20.10.2009 14:38Fróðaklettur GK 250 / Vestri BA 63 / Örvar II SH 177 / Kristbjörg HF 177239. Fróðaklettur GK 250 © mynd Snorri Snorrason 239. Vestri BA 63 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, safn Sjómannadagsráðs 239. Vestri BA 63 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, Óli Rafn Sigurðsson 239. Örvar II SH 177, í höfn í Sandgerði © mynd Emil Páll í ágúst 2008 239. Kristbjörg HF 177, í Sandgerði © mynd Emil Páll í sept. 2008 239. Kristbjörg HF 177, í höfn í Ólafsvík © mynd Emil Páll í ágúst 2009 Smíðanr. 57 hjá Ankerlökker Verft A/S í Florö í Noregi 1964. Yfirbyggður 1986. Nöfn: Fróðaklettur GK 250, Drangey SK 1, Vestri BA 63, Örvar SH 777, Örvar II SH 177 og Kristbjörg HF 177. Skrifað af Emil Páli 20.10.2009 10:18BíldudalshöfnBíldudalshöfn © mynd úr Flota Bíldudals, Ragnar Pálsson Skrifað af Emil Páli 20.10.2009 08:32Eldborg GK 13 / Sandgerðingur GK 268171. Eldborg GK 13 © mynd Snorri Snorrason 171. Sandgerðingur GK 268 © mynd Emil Páll Smíðanr. 173 hjá Bolsönes Verft í Molde, Noregi 1960. Úreltur 22. júlí 1989. Nöfn: Eldborg GK 13, Reykjanes GK 50, Jóhannes Gunnar GK 268 og Sandgeringur GK 268. Skrifað af Emil Páli 20.10.2009 08:08Sigurborg AK 375 / Sigurborg KE 3751019. Sigurborg AK 375 1019. Sigurborg AK 375 1019. Sigurborg KE 375 © myndir Emil Páll 1988 Smíðanr. 108 hjá A/S Hommelvik Mek. Verksted í Hommelsvik, Noregi 1966. Yfirbyggður Bretlandi 1977. Úteldingastyrkur samþykktur í nóv 1994, en ekki notaður. Til að komast hjá forkaupsrétti Vestmannaeyjarbæjar var stofnað fyrirtæki í Vestmannaeyjum til kaupa á skipinu og það skráð á það á gamlársdag 1994 og síðan nokkrum dögum síðar flutti fyrirtækið heimili sitt til Hvammstanga og skipið þar með. Nöfn: Sveinn Sveinbjörnsson NK 55, Freyja RE 38, Sigurborg AK 375, Sigurborg KE 375, Sigurborg VE 121, Sigurborg HU 100 og núverandi nafn Sigurborg SH 12. Skrifað af Emil Páli 20.10.2009 00:00SkotlandÍ Aberdeen, Mæsk-skip Í Norðursjó Komið inn til Fraserburgh Viking Islay, frá Aberdeen Skotland og Danmark © myndir Svafar Gestsson Hér með endar flokkurinn um Skotland a.m.k. að sinni. Hér fyrir neðan birtist mynd af skorsku skipi sem kom til Njarðvíkur fyrir 14 árum. Skorska skipið Alert FR 336 frá Franserburgh í Skotlandi í Njarðvíkurhöfn á árinu 1995, en þangað kom það til að sækja skipskrokk frá Skipamíðastöð Njarðvíkur sem hafði vinnuheitið Brúsi SN 7 © mynd Emil Páll í júní 1995 Umræddur skrokkur var smíðaður í Noregi og kom til Njarðvíkur 19. jan. 1983, þar sem klára átti skipið, en ekkert varð úr því þar sem kvótamálin breyttust hér á landi og því stóð skipið uppi í slippnum þó svo að íslensk fyrirtæki sýndu áhuga á kaupum á því. Þar sem þetta skip hafði smíðanr. 7 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur settu starfsmenn fyrirtækisins nr. SN 7 á skrokkinn og nafnið Brúsi. Í janúar 1995, hófst síðan lokafrágangur og lauk honum 22. júní sama ár o gþá hafði verið sett á hann stýrishús, perustefni o.fl. Var Brúsi síðan sjósettur þennan dag. 22. júní 1995 og daginn eftir fór Alert með hann í togi til nýrrar heimahfnar í St. Monens á Fife í Skotlandi. Þar var frágangi lokið og skipið fékk nafnið Faitfull III, en ekki var það þó lengi í útgerð því það sökk eftir árekstur við annað skip veturinn1998. Skrifað af Emil Páli 19.10.2009 21:49Úr SandgerðishöfnFrá Sandgerði: Sýnist að þarna séu 719. Árni Ólafur GK 315, 242, Geir goði GK 220, 1416. Arney KE 50 og trúlega 1204. Jón Gunnlaugs GK 444 © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 902 Gestir í dag: 24 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060318 Samtals gestir: 50927 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 13:15:19 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is