Færslur: 2009 Október

13.10.2009 09:08

Jón Þórðarson BA 80 - Jón Þórarson BA 180 / Akurnesingur AK 71


               201. Jón Þórðarson BA 80 ©´mynd úr Flota Patreksfjarðar, Haraldur Karlsson


          1638. Jón Þórðarson BA 80 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, Óli Rafn Sigurðsson


             1638. Akurnesingur AK 71 © mynd Floti Patreksfjarðar, Snorrason

12.10.2009 23:01

Pólland


                                                             Fugro Synergy


                                                     Furðulegt skip


                                                   Gamalt tréskip


                                                              Gazpan


                                             Gazpan (2600. Guðmundur VE 29)


                                Normand Ranger frá Skudueneshavn


                       Stýrishúsið af 2048. Drangavík VE 80 © myndir Svafar Gestsson

12.10.2009 20:13

Floti Bíldudals

Sigurður Bergþórsson sem að undanförnu hefur komið á fót á vefnum skemmtilegum upplýsingum varðandi útgerð á Patreksfirði og Táknafirði hefur nú stofnað nýjan flokk sem nefnist Floti Bíldudals og eins og er eru þar aðallega myndir úr myndasafni Snorrason, s.s. þessi sem hér birtist.

                    Pétur Þór BA 44 © mynd úr Flota Bíldudals, myndasafn Snorrason

12.10.2009 13:09

Kafari AK


                        1541. Kafari AK í höfn á Akranesi © mynd Emil Páll í ágúst 2009

12.10.2009 12:58

Hannes Andrésson SH 737 og Víkingur AK 100


     1371. Hannes Andrésson SH 737 og 220. Víkingur AK 100, í höfn á Akranesi © mynd Emil Páll í ágúst 2009

12.10.2009 12:54

Suðurey og Lómur í slipp


   2020. Suðurey VE 12 og Lómur í Reykjavíkurslipp í sl. viku © mynd Emil Páll, 7. okt. 2009
 

12.10.2009 12:32

Örvar BA 14 / Rifsnes SH 44


                 1136. Örvar BA 14 © mynd úr Flota Patreksfjarðar,Snorri Snorrason


                  1136. Rifsnes SH 44 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, Snorri Snorrason


                1136. Rifsnes SH 44, í höfn á Rifi © mynd Emil Páll í ágúst 2009

12.10.2009 11:24

Ægir með Qavak í togi


                                  Varðskipið Ægir © mynd Þorgeir Baldursson

Varðskipið Ægir er með grænlenska bátinn Qavak í togi og eru skipin á leið til hafnar í Reykjavík.

Grænlenska skipið var á leið til Danmerkur þegar það varð vélarvana í gærmorgun um 200 sjómílur suð-vestur af Reykjanesi með fjóra menn í áhöfn. Að sögn Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð til stjórnstöðvar Gæslunnar í gegnum flutningaskipið Naja Arctica sem kom Qavak til aðstoðar og beið hjá bátnum þar til Ægir kom á svæðið. Þá hafði skipið rekið um 30 sjómílur í norð-vestur. Togskipið Qavak er um 200 tonn að þyngd og 22 metra langt og er í eigu Polar Seafood á Grænlandi.

Að sögn skipherra á Ægi var dráttarlínu skotið yfir í Qavak rúmlega níu í morgun og gekk aðgerðin vel. Að sögn skipherrans er áhöfn skipsins í góðu ásigkomulagi, veður á svæðinu hefur gengið þónokkuð niður frá því sem var í nótt en þó er talsverður sjór og ölduhæðin 4-6 metrar. Ágæt veðurspá er framundan og er búist við meðvindi á leið til Íslands. Reiknað er með að skipin komi til hafnar snemma á miðvikudagsmorgun.
Heimild visir.is


12.10.2009 00:00

Skotland


                                                    Dokkir í Fraserburgh


                              Dráttarbáturinn Viking Islay í Franserburgh


                                                           Höfnin


                                             Höfnin í Fraserburgh


                                                   Höfnin í Fraserburgh


                                                        Innsiglingin


                           Innsiglingin í Fraserburgh  © myndir Svafar Gestsson

11.10.2009 17:18

Kristín Finnbogadóttir BA 95 / Nunni EA 87


   1851. Kristín Finnbogadóttir BA 95 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, Sigurður Bergþórsson




                          1851. Nunni EA 87 © myndir Þorgeir Baldursson 2009

11.10.2009 13:21

María Júlía BA 36


                    151. María Júlía BA 36 í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd Emil Páll


        151. María Júlía BA 36, eftir að breytingar á að gera það að fljótandi safni til varðveislu hófust © mynd Þorgeir Baldursson

Smíðað hjá Frederikssun Skipswærft A/S í Frederikssund, Danmörku 1950. Til 1969, var skipið björgunar- og varðskip aðallega fyrir Vestfirðinga og gekk undir nafninu ,,Björgunarskúta Vestfjarðar.

Eldur kom upp í skipinu í Patreksfjarðarhöfn 16. mars 1975 og var því þá sökkt í höfninni til að slökkva í því. Náð upp fljótlega og síðan endurbyggt hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf. Undanfarin ár hefur veirð unnið að því að gera skipið að fljótandi safni til varðveislu.

Skipið hefur aðeins borið nöfnin María Júlía og María Júlía BA 36.

11.10.2009 13:08

Njörður ÁR 38 /Surprise HF 8


                                        137. Njörður ÁR 38 í höfn í Þorlákshöfn


                137. Surprise HF 8 í Hafnarfjarðarhöfn 2009 © myndir Emil Páll

Smíðanr. 32 hjá Van Bennekum Zaandan, Sliedrecht, Hollandi 1960. Hefur oft á tímum nú í síðari tíð legið mikið í höfnum s.s. í Hafnarfjarðarhöfn frá snemma árs 2005 til október 2006.

Nöfn: Gjafar VE 300, Kristján Valgeir GK 410, Sigurður Bjarni GK 410, Lárus Sveinsson SH 126, Njörður ÁR 9, Njörður ÁR 38, Jóhanna ÁR 206, Sandvíkingur ÁR 14, Þórdís BA 74, Surprise HU 19, Surprise ÍS 45, aftur Surprise HU 19 og Surprise HF 8.

11.10.2009 08:06

Íslandsmet í skötuselsveiði

- Útgerðarmaðurinn fékk þó ekki veiðikvóta árið eftir og fór í mál við ríkið og vann málið og fékk 25 milljónir í skaðabætur

Hér segjum við frá sérstöku máli sem snýst um skötuselsveiðar á Hafnarröst ÁR árið 2000, en meðal skipverja þar um borð voru sem vélstjórar vinirnir og sveitungarnir frá Húsavík, Svafar Gestsson og Þorgeir Baldursson. Skipstjóri var Jónas Sigmarsson og útgerðarmaðurinn Lúðvík Börkur Jónsson. Samkvæmt lönduðum afla var um íslandsmet að ræða og í fyrri hlutanum fjöllum við um veiðarnar og birtum myndir sem Þorgeir tók, fyrir utan eina sem er af Þorgeiri og Svafar tók. Í síðari hluta greinarinnar birtum við frétt um dóminn sjálfan.

Íslandsmetið á Skötuselsveiðum á Hafnarröst ÁR 250 árið 2000

Íslandsmetið snýst um eina veiðiferð, sem tók 5 daga og voru þeir með 1100 net og var afraksturinn 5.034 fiskar (skötuselur) sem þeir lönduðu frosnum í land.


              Lúðvík Börkur Jónsson, útgerðarmaður


           Jónas Sigmarsson, skipstjóri


               Jón Ólafur við netadráttinn


                                        Greitt úr netunum og aðgerð


                Magni Árnason með einn góðan


   Auðvitað tók þessi mikla aflahrota á menn og hér sjáum við vin okkar Þorgeir Baldursson taka sér smá dúr


                                                   Frosnum skötusel landað


            Hvert karið á fætur öðru var híft í land


           Að sjálfsögðu fengu menn tertu að launum er komið var í land

© myndir Þorgeir Baldursson, nema myndin af honum sem Svafar Gestsson tók.

Til að forðast allan misskilning, þá er myndin af Þorgeiri, birt með samþykki hans og því ekki um skot að ræða.

Nú skildu menn halda að miðað við þetta úthald, hefði það verið leikur einn að fá kvóta til áframhaldandi veiða, en öðru nær og því fór útgerðarmaðurinn í mál og vann það eins og áður segir. Birtum við hér umfjöllun mbl.is af málinu, daginn sem málið féll í sl. viku.

                        Fær 25 milljónir í bætur

 Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða útgerðarmanni rúmlega 25 milljónir kóna í skaðabætur, þar sem sjávarútvegsráðuneytið notaði ekki rétt viðmiðunartímabil við úthlutun aflaheimilda í skötusel.

Útgerðarmaðurinn keypti bát árið 2000 en með í kaupunum fylgdi skötuselsúthald af af öðru skipi. Maðurinn áformaði að hefja veiðar á skötusel og löngu, en þessar tegundir voru á þeim tíma utan kvóta. Hann ætlaði sérstaklega að einbeita sér að veiðum á skötusel í net, enda taldi hann að sú tegund hefði verið vannýtt og að möguleikar til að vinna sér inn veiðireynslu áður en tegundin yrði færð inn í kvótakerfið væru miklir.

Útgerðarmaðurinn var frumkvöðull að því að gera skip sérstaklega út til veiða á skötusel. Hann hóf skötuselsveiðar í maí 2000 og gerði út frá Þorlákshöfn. Veiðarnar gengu mjög vel og skötuselsafli hans var samtals tæplega 360 tonn frá maí til ársloka.

Maðurinn hélt áfram veiðum veturinn 2001, sem hann segir að hafi gengið sæmilega.

5. júní 2001 gaf sjávarútvegsráðherra út reglugerð um aflamark fyrir fiskveiðiárið 2001/2002 en þá var ekki sett aflamark á skötusel. Með fréttatilkynningum frá sjávarútvegsráðuneytinu sama dag kom fram að ráðuneytið teldi ekki ástæðu til þess að verða við tilmælum Hafrannsóknarstofnunar um að setja aflamark á keilu og löngu.

Ný reglugerð var svo gefin út af sjávar­útvegs­ráðuneytinu 16. ágúst 2001 um aflamark fyrir fisk­veiðiárið 2001/2002, sem kom í stað hinnar fyrri. Með nýju reglugerðinni var gerð sú breyting að takmörkun á veiðum tók til nýrra tegunda, keilu, löngu og skötusels, sem ekki höfðu áður verið bundnar ákvæðum um leyfilegan heildarafla.

Í ákvæði til bráðabirgða var kveðið á um það að fiski­skipum, sem höfðu veiðileyfi með almennu aflamarki og veiðireynslu á tímabilinu 1. júní 1998 til 31. maí 2001, skyldi úthlutuð aflahlutdeild í þessum tegundum á grund­velli veiðireynslu.

Við úthlutun aflaheimilda í skötusel var ekki tekið tillit til veiðireynslu mannsins sumarið 2001. Útgerðarmaðurinn gerði athugasemdir við þetta og taldi að taka hefði átt tillit til þeirra sem hefðu hafið sérstaka sókn í skötusel og í því skyni fjárfest í tækjum og búnaði til veiðanna. Þar sem það var ekki gert taldi maðurinn að ekki væri lengur grundvöllur fyrir útgerðinni. Því lagði hann skipinu og höfðaði síðan skaðabótamál.

Bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og síðan Hæstiréttur töldu að brotið hefði verið gegn rétti mannsins og reglugerðin, sem sett var í ágúst 2001 hefði ekki verið í samræmi við lög um stjórn fiskveioða.

Ríkissjóði ber því að greiða rúmar 25 milljónir króna í skaðabætur, með vöxtum frá 21. nóvember 2003 til 27. janúar 2007 en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags. Einnig þarf ríkið að greiða málskostnað.

 

11.10.2009 00:00

Með Hafnarröstinni til Ghana

Vera Svafars Gestssonar erlendis og myndir hans sem tengjast skipum í þeim löndum sem hann hefur verið á skipum frá eða haft viðkomu með öðrum hætti, hefur vakið mikla athygli. Munum við halda áfram með slíka þætti fram eftir vetri, ef ekkert kemur óvænt upp á. En við höfum fylgst með málum í sjö löndum bæði frá honum og öðrum. Vera Svafars í Ghana er nú til umræðu, en við höfum fylgst með því í nokkur skipti og eigum eftir að fylgja honum eftir í myndum í þó nokkurn langan tíma, hvað Ghana og Marokkó varðar, en myndir frá hinum löndunum fara sum að að taka enda. En talandi um Hafnarröstina, þá verður næsta færsla á eftir þessari einmitt um það skip og veiðar hér við land, en nánar um það síðar. Hér er það myndaefni frá Ghana séð með augum Svafars.








                                                        Furðufiskur


                                                            Grill


                                           Hádegismatur Rice snapper og Stue


                                                 Hinrik skipper með kvöldmatinn


                                            Yjam kom í staðinn fyrir kartöflur


                                               Yjam © myndir Svafar Gestsson

10.10.2009 18:49

Skemmdarverk á síðunni

Nú í nokkur skipti höfum við fengið að njóta þess að birta myndir teknar úr lofti af skipum. Eins og allir sem til þekkja vita, þá er sá flugstjóri sem skráður er fyrir myndunum, flugstjóri á einni af þyrlum Landhelgisgæslunnar.

Því miður þá þurfti einn af lesendum síðunnar Axel E að skjóta á tökumanninn, er fyrstu myndirnar birtust í gær, með þeim afleiðingum að viðkomandi myndatökumaður mun ekki senda fleiri myndir til birtingar. Axel sem og aðrir mega vita að í þessum flugferðum eru teknar myndir og verða áfram teknar, en við fáum því miður ekki oftar að njóta þeirra.

Finnst mér, hér því vera að menn sem hugsa stundum ekki á hvað þeir skjóta, ættu að hafa í huga hvað þeir eru að segja. Af því tilefni vil ég nota þetta tækifæri og benda Ingólfi Þorleifssyni (Golla) á skot sem hann var með varðandi hárvöxt skipstjóra eins sem mynd birtist af. Það skot hefur ekkert frekar en skot Axels með skipamyndir að gera og ættu menn að hafa það í huga og lýsa því miður best hugarfari þess sem skrifar viðkomandi athugasemd.

Þar sem ég hef átt í samskiptum við viðkomandi flugstjóra, sendi ég orðsendingu þessa, jafnframt því sem ég bið hann afsökunnar fyrir hönd síðunnar um leið og ég þakka honum fyrir það að gefa okkur kost á að bera augum þessar perlur, sem myndirnar svo sannarlega eru.
                                                                      
                                                                                    Emil Páll Jónsson

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 951
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 3737
Gestir í gær: 72
Samtals flettingar: 1060367
Samtals gestir: 50927
Tölur uppfærðar: 21.12.2024 13:36:41
www.mbl.is