Færslur: 2010 Október31.10.2010 13:16Á Tuðrunni milli skipaBátsferð milli skipa © Mynd þorgeir Baldursson 2001 Þeir félagarnir Jón ólafur Ragnarsson og Gunnar Jakobsson skipverjar á Eldborgu HF 13 voru að fara á milli skipa á torginu þegar við vorum á grálúðuveiðum þar á fyrstu árum þessarar aldar Skrifað af Þorgeir 30.10.2010 13:17Bræla við LanganesLanganes i morgun © Mynd Þorgeir Baldursson 2010 Árni Friðriksson RE 200 heldur sjó © mynd þorgeir Baldursson 2010 Birjað að Hvessa fyrir Austan © mynd Þorgeir Baldursson 2010 Nú er birjað að hvessa fyrir austan og eru fá skip á sjó enda spáin ekki geðsleg hérna má sjá Árna Friðriksson RE 200 þar sem að hann heldur sjó við Langanes i morgun og var þá farið að bæta allverulega i vind og kvikan að aukast Skrifað af Þorgeir 30.10.2010 00:25Frá Þórshöfn á LanganesiTvö nótaskip Isfélags Vestmannaeyja i höfn á Þórshöfn © Mynd Þorgeir Baldursson Fyrir stuttu siðan átti siðuritari leið um þórshöfn á langanesi og þá voru við bryggju þrjú skip Isfélags Vestmannaeyja Álsey ve Júpiter þh og Þorsteinn Þh svo var Guðmundur Ve að koma til hafnar öll voru skipin með góðan afla að sögn Rafns Jónssonar Verksmiðjustjóra Isfélagsins á staðnum einnig var linubáturinn Örvar SH að landa og hafa umsvifin við höfnina margfaldast eftir að isfélagið kom að rekstrinum á Þórshöfn og mikið um landanir linubáta eftir að nýji vegurinn um Hófaskarð var opnaður sem að gerir það að verkum að aðeins er 140 km til Húsavikur og allt á bundnu slitlagi Skrifað af Þorgeir 26.10.2010 09:49Nýr Bátur á Akranes2795-Ingunn Sveinsdóttir AK 91 © Mynd Gestur Hansasson 2010 Ingunn Sveins AK 91 © Mynd Gestur Hansasson 2010 Bátasmiðjan Siglufjarðar Seigur afhenti á dögunum nýjan bát sem að fer á Akranes www.sigloseigur.net HELSTU MÁL OG BÚNAÐUR SEM AÐ ER UM BORÐ ERU EFTIRFARANDI Lengd. 12.13m Breidd 3.85m Brt. 14.77
Vél: Cummins QSM11-610hp, Vélasalan ehf
Spil: Beitir BS-210, Línurenna frá Beiti ehf Millibólaspil: Sjóvélar ehf
Eigandi: Haraldur Böðvarsson & Co Sveinn Sturlaugsson Kör: Promens, 12 kör í lest
Stálsmíði og glussalagnir frá JE-vélaverkstæði ehf Furuno FCV 295 dýptarmælir 3 Kw, 28 og 200 Khz Furuno SC-50 GPS áttaviti Furuno FA-50 AIS Furuno GP-32 GPS MaxSea Time Zero siglingatölva 4 x Dell tölvuskjáir ComNav Commander sjálfstýring með bógskrúfustjórn 2 x RO-4700 talstöðvar með DSC Vakt myndavélar í vélarrúmi og á dekki Huawei 3g síma og Internetsamband Doro 750X sími Kenwood útvarp Loftnet frá Comrod, og Celwave..
Skrifað af Þorgeir 25.10.2010 22:372763-Steinunn HF 1082763-Steinunn HF 108 © Mynd þorgeir Baldursson 2010 Aflinn um 3 tonn mest Ýsa ©mynd þorgeir Baldursson 2010 Ingimar Finnbjörsson skipst © mynd þorgeir Baldursson Linubáturinn Steinunn Hf 108 sem að er Cleopata 38 var að koma inn til löndunnar i hafnarfirði um Hádegisbilið siðastliðin sunnudag þegar siðuritari átti leið um bryggjuna aflinn i þessari veiðiferð var um 3 tonn mest ýsa báturinn hefur reynst vel að sögn skipverja Upplýsingar um skip og áhöfn. Skipstjóri Ingimar Finnbjörnsson háseti Andri Rafn Kristjánsson. Báðir erum við að vestan nánar tiltekið úr Hnífsdal. Við erum að róa frá hafnafyrði og er róið að meðaltali með 32 bala en stundum minna þá 24. Fiskvinnslan Kambur gerir út bátinn og fer hluti af aflanum í vinnslu og annað á markað. Skrifað af Þorgeir 22.10.2010 17:27Nanna Ósk 2 ÞH 133 Nýr bátur á RaufahröfnNanna Ósk 2 ÞH 133 ©Mynd www.Trefjar.is Ný 15tonna Cleopatra 38 afgreidd til RaufarhafnarÚtgerðarfélagið Stekkjavík á Raufarhöfn fékk nú á dögunum afhentann nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni standa bræðurnir Ragnar og Hólmgrímur Jóhannssynir. Nýji báturinn hefur hlotið nafnið Nanna Ósk II ÞH-133. Báturinn er 15brúttótonn og er í aflamarkskerfinu. Nanna Ósk II er af gerðinni Cleopatra 38. Fyrir á útgerðin eldri Cleopatra 33 bát með sama nafni sem gerður verður út áfram. Aðalvél bátsins er af gerðinni Yanmar 700hp tengd ZF gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar ehf. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til netaveiða og línuveiða með beitningatrekt. Allur veiðibúnaður er frá Beiti. Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Rými er fyrir 12stk 660lítra kör í lest. Í bátnum er innangeng upphituð stakkageymsla. Borðsalur er í brúnni auk stóla fyrir skipstjóra og háseta. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp. Skrifað af Þorgeir 22.10.2010 12:13Lómur 2 i brotaján til DanmerkurWestsund i Kópavogshöfn © mynd Magnús Jónsson 2010 Gert klárt fyrir brottför mynd © Magnús jónsson 2010 Westsund og Lómur 2 mynd © Magnús Jónsson 2010 Um kl 17 i gær hélt dráttarbáturinn Westsund með Lóm 2 i togi áleiðis til Danmerkur en skipið hefur verið selt þangað til niðurrifs það var landsbankinn sem að var siðasti eigandi skipsins það hefur meðalannars borið nöfnin Ottó Wathne Ns Hjalteyrin Ea og Lómur Hf Skrifað af Þorgeir 22.10.2010 09:26Vikingur AK 100 FimmtugurVikingur AK 100 © Mynd þorgeir Baldursson 2010 I gær voru 50 ár frá því tog- og nótaskipið Víkingur AK kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Akranesi. Í tilefni tímamótanna var öllum fyrrverandi skipverjum og öðrum velunnurum skipsins boðið í kaffisamsæti í matsal HB Granda á Akranesi og hófst hátíðin með því að starfsmenn Landhelgisgæslunnar settu púðurhleðslu í gamla fallbyssu og skutu síðan fagnaðarskotum. Síldar- og fiskimjölsverksmiðja Akraness lét smíða Víking hjá AG Weber Werk í Bremerhaven í Þýskalandi. Skipið var 950 brúttólestir með 2.400 hestafla vél og ganghraðinn var 16-17 sjómílur á klukkustund, að því er fram kemur í umfjöllun um þessi tímamót í Morgunblaðinu í dag. Frá byrjun hefur Víkingur verið aflahæsta skipið í sínum flokki eða í hópi þeirra aflahæstu. Heildaraflinn er um 932.000 tonn og þar af tæplega 46.000 tonn af bolfiski. Undanfarin ár hefur skipið lengst af legið í höfn á Akranesi en verið notað til loðnuveiða frá 2005 og landaði síðast loðnu á Akranesi 28. febrúar fyrr á þessu ári.Skipstjóri á Viking er Magnús Þorvaldsson Skrifað af Þorgeir 18.10.2010 20:59Björgvin EA 311 á útleið frá Eskifirði 1937-Björgvin EA 311 ©mynd þorgeir Baldursson Skrifað af Þorgeir 13.10.2010 17:50Neptune EA 41 Kominn heim2266-Neptune EA 41 á siglingu á Eyjafirði i dag © mynd þorgeir Baldursson 2010 Ransóknarskipið Neptune ea 41 er i þessum skrifuðu orðum að leggjast að bryggju á Akureyri en skipið hefur verið Eystrasalti við mælingar skipið mun nú stoppa þangað til að búið er að koma fyrir meiri búnaði og eru skip félagsins með þeim fullkomnstu i þessum geira varðandi útbúnað Skrifað af Þorgeir 13.10.2010 17:30Húni 2 á eyjafirði i dagHúni 2 á siglingu á Eyjafirði siðdegis i dag © mynd þorgeir Baldursson 2010 Húna menn hafa verið að sigla með atvinnulaust fólk að undanförnu og hér er báturin að koma úr einni slikri för vonandi kemur einhver hérna inn og segir meira frá þessu verkefni sem að mér finnst vera mikill sómi að og þeir húna menn duglegir að sinna þeim sem minna mega sin og óbilandi elja og dugnaður samhents hóps sem ekki kallar allt ömmu sina Skrifað af Þorgeir 08.10.2010 16:41Laverne Ex Kolbeinsey sökk i Cape TownLaverne Ex Kolbeinsey ÞH 10 mynd Shipspotting.com 2009 Laverne i Cape Town árið 2009 mynd Shipspotting .com 2009 Sokkin við bryggju i Cape Town i Suður Afriku 2010 Höfnin i Cape Town þar sem að skipð sökk mynd shipspotting.com 2010 Hvild á meðan beðið er aðgerða mynd Shipspotting .com 2010 Fyrir um tveimur dögum sökk i höfninni i Cape Town i Suður Afriku gamalt Húsviskt fiskiskip þetta var Laverne CTA -793 -D sem að hét upphaflega Kolbeinsey ÞH 10 og var smiðuð fyrir Útgeðarfélagið Höfða H/F skipið var gert út frá Húsavik i mörg ár það var siðan selt vestur á firði og gekk þar undir nokkrum nöfnum ma Hrafnseyri is siðan lá leiðin á flæmska hattinn og þá fékk skipið nafnið Heltermaa og skráningu i Eistlandi þá var eigandi Guðfinnur Pálsson á Patreksfirði og mun hann hafa verið siðasti útgerðarmaður skipsins Hérlendis svo vitað sé Skrifað af Þorgeir
|
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 261 Gestir í dag: 28 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991682 Samtals gestir: 48535 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 08:19:24 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is