Færslur: 2015 Febrúar

09.02.2015 23:40

Slippur 2015

                  Polar Nanoq i Slipp á Akureyri mynd þorgeir 2015

09.02.2015 14:17

Þokkalegt veður og þokkaleg veiði

Í gær var þokkalegt veður á loðnumiðunum fyrir norðan land og fengu sum skip góðan afla.

Í gærkvöldi voru mörg skip á landleið og önnur á leið á miðin að lokinni löndun. Bjarni Ólafsson AK og Hákon EA komu til Neskaupstaðar í nótt

og er verið að vinna aflann úr Bjarna í fiskiðjuverinu. Polar Amaroq er að landa 1800 tonnum í fiskimjölsverksmiðjuna á Seyðisfirði

og Vilhelm Þorsteinsson EA er væntanlegur þangað með 2300 tonn. Beitir, Börkur og Birtingur eru á miðunum.

 

Gunnar Sverrisson rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar og verksmiðjustjóri á Seyðisfirði

segir að með farminum sem verið er að landa og þeim sem sé væntanlegur til Seyðisfjarðar verði komin þar á land rúmlega 14.000 tonn á vertíðinni.

„Þetta er mikill munur frá því í fyrra en þá var engri loðnu landað á Seyðisfirði,“ segir Gunnar.

„Annars hefur loðnuvinnslan ekki verið samfelld hjá okkur á Seyðisfirði frá því að hún hófst.

Við höfum þurft að stoppa tvisvar í stuttan tíma vegna hráefnisskorts. Annars verður að segja að vertíðin lofi góðu fyrir verksmiðjuna á Seyðisfirði.

Helsta áhyggjuefnið hefur verið heldur stopul veiði, fyrst og fremst vegna veðurs. Svo er líka hegðun loðnunnar sérkennileg.

Miðað við reynslu fyrri ára ætti hún nú að vera að veiðast út fyrir suðaustur- og suðurströndinni. Annars erum við Seyðfirðingar bjartsýnir.

Sól hækkar á lofti og hún fer að skína á okkur á Seyðisfirði 18. febrúar. Það er bjart framundan“, sagði Gunnar að lokum.

 

Í Neskaupstað hefur loðnuvinnsla í fiskimjölsverksmiðjunni haldist nánast samfelld að undanförnu

þökk sé þremur norskum bátum sem komu þangað með afla um helgina. Libas landaði 700 tonnum og Vea 600 tonnum í fiskimjölsverksmiðjuna

en Manon landaði 350 tonnum til vinnslu í fiskiðjuverinu. Heimils heimasiða svn

                     Polar Amaroq mynd þorgeir Baldursson   

08.02.2015 22:57

Skipamyndir á Dalvik i dag

það var hálf hryssinglegt veðrið á dalvik i dag  þegar farinn var smá myndhringur 

með i för var Bátsmaðurinn á Ægir Guðmundur St Valdimarsson ekki var mikið að sjá 

og flestir i landi enda sunnudagur og þess utan bræla á miðunum  

 Þeir Bræður Björn og Baldur Snorrasynir eiga þessa tvo báta © þorgeir 2015

 Siðan voru nokkrir bátar við Garðinn þið þekki þá flesta myndir Þorgeir2015 

08.02.2015 21:58

1851 Sólrún EA151

Sólrún EA151 var að koma úr netaróðri um miðjan dag en stutt er siðan báturinn hóf róðra

Samkvæmt lista www.aflafrettir.is er afli bátsins 23 tonn i 7 róðrum og mest 7,3 tonn i róðri 

Að sögn ólafs Sigurðssonar Skipstjóra var aflinn tregur i dag en veður hefur hamlað sjósókn þar sem að 

SV áttir hafa gert það að verkum að færa hefur til trossurnar nánast allveg uppi fjöru i utanverðum Eyjafirði  

      Sólrún EA151 á siglingu fyrir utan Höfnina á Árskógsandi © þorgeir 2015

       Sólrún EA 151 kemur til hafnar á Árskógsandi i dag © mynd þorgeir 

               Á landeið Sólrún EA 151 mynd þorgeir Baldursson 2015

 Ólafur Sigurðsson Skipst mynd þorgeir Baldursson

 

 
 

07.02.2015 16:30

2652 Darri EA 75 Dregur linuna i kropp Fiskirii

 Það var þokkalegt nudd hjá Darra i dag fyrir utan slipptantinn 

                    2652 Darri EA 75  Mynd þorgeir Baldursson 2015

07.02.2015 12:23

Hoffell 2 Su Veiðir loðnu fyrir HB Granda

Skipstjóri verður Magnús Þorvaldsson og 1. stýrimaður Gunnar Gunnarsson

HB Grandi hefur gert samkomulag við Loðnuvinnsluna á Fáskrúðsfirði um að skip Loðnuvinnslunnar, Hoffell II, fari til loðnuveiða.

Skipið mun veiða af heimildum HB Granda og landa aflanum til vinnslu ýmist á Akranesi eða Vopnafirði. Þetta kemur fram á vef HB Granda.

Gert er ráð fyrir Hoffell II verði komið til veiða seinni part næstu viku. Skipstjóri verður Magnús Þorvaldsson og 1. stýrimaður Gunnar Gunnarsson.

Þeir eru báðir gamalreyndir skipstjórar og hafa sinnt skipstjórn fyrir HB Granda árum saman.

Aflamark HB Granda í loðnu er um 72.000 tonn og eru nú um 55.000 tonn óveidd. Þau tonn eru enn í sjó en ekki á bankabók að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar forstjóra HB Granda

og vill hann ekki spá neinu um hverju þessi tonn skili í verðmæti.

                          Hoffell 2 SU  mynd þorgeir Baldursson 

06.02.2015 19:32

1351 Snæfell EA heldur til veiða

Það eru mörg handtökin hjá hafnarstarfsmönnum og skipverjum þegar haldið er til veiða eftir inniveru 

en alllir ganga þeir fumlausir i þau verk sem vinna þarf og þá ganga hlutirnir auðveldlega upp 

              Sigurbrandur Jakopsson Losar framband © þorgeir 2015

                         1351 Snæfell EA  310 © þorgeir 2015

                  Gert klárt fyrir Brottför © þorgeir 2015 

                        Keyrt i Springinn © þorgeir 2015

                        Hafnarverðir sleppa © þorgeir 2015

          Bakkað frá og haldið til veiða © myndir Þorgeir Baldursson 2015

06.02.2015 10:43

2883 Sigurður ve 15 Til Eyja i Gærkveldi

Sigurður ve kom til Vestmanneyja i gærkveldi með um 500 tonn af loðnu sem að fengust fyrir austan land 

i troll og var erindið til eyja að sækja nótina og landa  Allt virkaði sem skildi i túrnum en fremur tregt var i trollið fyrir austan 

og mun Tuneq EX Þorsteinn vera á leið til löndunnar ásamt þvi að ná i nótina einnig mun Tasilag Ex  Guðmundur

vera á á leið heim  eftir Breytingar i Skagen og mun vera i eyjum i fyrramálið um Hádegisbil að öllu óbreyttu 

Myndirnar af Sigurði Ve Tók Óskar Pétur Friðriksson Ljósmyndari Eyjafrétta

     Sigurður kemur til Eyja i gærkveldi Mynd Óskar Pétur Friðriksson 2015

                   Kominn innfyrir klettinn Mynd  Ó P F 2015

                     Endarnir gerðir klárir  mynd Ó P F 2015

                           Siðan var bundið mynd Ó P F 2015 

          Fleiri Enda mynd Ó P F 2015

                      Setja eitt Bragð á pollann mynd Ó P F 2015

                   Allt Klárt  mynd Óskar Pétur Friðriksson 2015

05.02.2015 22:18

Allt að gerast á loðnumiðunum

            Álsey ve 2 með Nótinna á siðunni mynd þorgeir Baldursson 

                         Faxi Re 9 á landleið mynd orgeir Baldursson 

                 Kap Ve 4 Kastar nótinni mynd þorgeir Baldursson 

        Bjarni Ólafsson AK 70 á landleið mynd þorgeir Baldursson 

           Jóna Eðvalds SF 200 á Keyrslu mynd þorgeir Baldursson 

                 Jón Kjartansson SU 111 mynd þorgeir Baldursson 

 

05.02.2015 12:46

Poseidon i heimahöfn

Rannsóknarskipið Poseidon i eigu Neptune ehf kom til Akureyrar i gærkveldi

eftir að hafa verið i rannsóknarvinnu úti fyrir strönd Afriku og er skipið búið 

að sigla um 5000 milur frá þvi um mánaðarmótin Nóv /des 2014

Nú fer hann i slipp i 4 -6 vikur þar sem ma er Vélarupptekt og fleira 

En látum myndirnar tala sinu máli

                    Poseidon EA  303 kemur til Akureyrar i gærkveldi 

           Kampakátir að komast heim skipverjarnir á Poseidon 

            Hafnaverðirnir Vignir og Sigurbrandur tóku við Endunum 

           Tekið á móti Springnum  myndir þorgeir Baldursson 2015

05.02.2015 12:36

Þór og Ægir á Akureyri

Varðskipið Þór hefur að undanförnu verið við eftirlit með loðnuveiðum í efnahagslögsögu Íslands.

Sérstök áhersla er lögð á eftirlit með erlendum skipunm og reynt að komast um borð

eftir því sem aðstæður leyfa til að bera saman gögn og gera mælingar á afla.

Loðnuveiðarnar þessa vertíðina eru frábrugðnar að því leytinu til að veiðin er mun betri en var á síðustu vertíð,

hún er einnig frábrugðin veðurfarslega séð en einmuna ótíð hefur verið á loðnumiðunum frá því þær hófust þetta árið.

Veiðisvæðið er einnig óvenjulegt, eða frá Eyjafjarðarál og vestur að Skagafirði.

Gárungarnir hafa haft orð á að sennilega er þessi loðna að ferðast vestur með norðurlandinu sem er mjög óvenjulegt.

Þessi eftirlitsferð varðskipsins Þórs hefur einkennst að veðurfarinu sem eins og áður segir hefur verið talsvert rysjótt.

Ástandið í samskiptum Rússlands og Noregs virðist þess valdandi að flest öll norsku skipin hafa landað aflanum hér á landi,

en eins og komið hefur fram þá settu rússnesk stjórnvöld norðmenn á lista ásamt fleiri þjóðum sem ekki fá að selja þeim afurðir. Það bann á ekki við um Ísland.

Eftirlit varðskipsmanna í norskum skipum fer fram þegar og ef skipin sigla með aflann frá landinu. 

Þar sem örfá skip hafa siglt með aflann frá landinu hefur einungis verið farið um borð í tvö norsk skip að þessu sinni en veður hefur einnig spilað þar inn í.

Farið var um borð í HARDHAUS (LMBN) og HEROYHAV (LDFB).  Eftirlitið gekk vel og ekkert óvænt kom fram.

Aðeins þurfti að stugga við þeim varðandi flottroll sem bæði skipin voru með um borð en ekki er leyfilegt að hafa pokann á trollinu og var þeim gert að aðskilja poka frá trolli.

Túrinn endaði svo á Akureyri að þessu sinni, þar sem fara fram áhafnaskipti og ný áhöfn siglir frá Akureyri með ný verkefni til að glíma við eftir nokkurra daga inniveru.

           Þór og Ægir á Akureyri © mynd þorgeir Baldursson 2015

05.02.2015 11:05

Loðnuveiðar á Skjálfanda i dag

Loðnu­flot­inn stefndi all­ur á Öxar­fjörð í gær, frá miðunum aust­ur af land­inu. Þar fundu tvö norsk skip loðnu og voru að kasta á hana.

Fyrstu ís­lensku skip­in voru vænt­an­leg á miðin í gær­kvöldi.

„Við hrökt­umst frá Norður­land­inu út af veðri og höf­um verið að kasta með nót og draga með trolli en lítið er að sjá,“ sagði Kristján Þor­varðar­son, stýri­maður á Ing­unni AK,

í gær­kvöldi. Skipið var þá lagt af stað af miðunum fyr­ir aust­an land og stefn­an tek­in á Öxar­fjörð.

Sömu sögu var að segja af öll­um ís­lensku og norsku loðnu­skip­un­um. Kristján hafði ekki upp­lýs­ing­ar um hversu mikið norsku skip­in hefðu séð. „

Við ætl­um að reyna fyr­ir okk­ur þarna í nótt og á morg­un. Ann­ars spá­ir ekki sér­stak­lega vel.“

         Ingunn Ak 150 á loðnumiðunum Útifyrir norðurlandi  © mynd þorgeir 

03.02.2015 07:17

Lundey NS á landleið á Akranes með Fullfermi af loðnu

   

             Lundey Ns 14  á siglingu mynd þorgeir Baldursson 

Þessi loðna er á fleygi­ferð í vest­ur.

Við erum bún­ir að elta hana úr Eyja­fjarðarál og Skjálf­anda,“ sagði Stefán Geir Jóns­son, stýri­maður á Lundey NS.

Þeir enduðu aust­an við Skaga­grunn þar sem þeir fylltu skipið af fínni loðnu.

Þar voru nokk­ur skip að veiðum í gær og önn­ur voru aust­ur af Gerpi.

Í gær­kvöld var Lundey NS á leið til Akra­ness með um 1.550 tonn. Reiknað var með að hún kæmi til hafn­ar um miðjan dag í dag.

02.02.2015 23:28

Álsey Ve 2 á leið til Húsavikur

            Álsey ve 2 á loðnumiðunum mynd þorgeir Baldursson 

01.02.2015 20:44

2883 Sigurður Ve Heldur til Veiða

Þá hefur vonandi tekist að komast fyrir bilanirnar sem að hafa verið að hrjá nýjasta uppsjávarveiðskip landsmanna

Sigurð Ve 15 hann er búinn að vera i viðgerð hjá slippnum á Akureyri alla siðustu viku 

Þar sem að skipt var um spilrótora siðan var prufað nú seinnipartinn i dag og gekk allt að óskum 

og hélt skipið til veiða frá Akureyri um kl 18 Skipstjóri er Hörður Guðmundsson  

      Hörður Guðmundsson skipst Sigurði Ve 15 Mynd þorgeir Baldurrson 

             Á Leið inná Pollinn  Mynd þorgeir Baldursson 2015

  Siðan var spilkerfið prufað og siðan haldið til veiða mynd þorgeir Baldursson 

             Glæsilegt Fley Sigurður ve 15 mynd þorgeir Baldursson 

          Hlerarnir að koma upp mynd þorgeir Baldursson 2015

 

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 215
Gestir í dag: 25
Flettingar í gær: 1683
Gestir í gær: 115
Samtals flettingar: 607608
Samtals gestir: 25717
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 01:41:57
www.mbl.is