Færslur: 2017 Febrúar21.02.2017 00:38Kap ve 4 með fyrstu loðnuna til Eyja
Kap VE er á heimleið með hátt í 500 tonn af loðnu sem fékkst í einu kasti. Snaggaraleg byrjun á vertíðinni eftir verkfall! „Þá er fyrsta loðnan komin um borð hjá okkur á Kap. Lyktin er góð af henni!“ skrifar Örn Friðriksson á Fésbók og liggur við að ilminn af sjávarfanginu leggi af tölvuskjánum við að lesa færsluna hans . Heimild kvotinn.is Skrifað af Þorgeir 21.02.2017 00:082891 Kaldbakur EA1 á Miðjarðarhafi
Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, hefur undanfarnar vikur verið við landamæravörslu í Miðjarðarhafi á vegum Landamæra- og strandgæslustofnunar Evrópu, Frontex. Í gær kom áhöfnin auga á skip sem var á siglingu skammt suður af Pelópsskaga, syðsta hluta gríska meginlandsins. Þetta reyndist vera nýjasta skip íslenska fiskiskipaflotans, Kaldbakur EA-1, á heimleið úr skipasmíðastöð í Istanbúl í Tyrklandi.
Skrifað af Þorgeir 20.02.2017 22:54Strekkt á Virunum
Skrifað af Þorgeir 20.02.2017 16:11Loðnukvótinn
Skrifað af Þorgeir 20.02.2017 14:15Loðnan tekin i Kálgarðinum heima
Fyrsta loðnan af íslensku fiskiskipi á þessari vertíð barst til Hornafjarðar nú rétt fyrir hádegið. Ásgrímur Halldórsson kom þá til heimahafnar með 700 tonn og rifna nót. Loðnan veiðist nú rétt vestan Hornafjarðar, „í kálgarðinum heima,“ sagði Jóhannes Danner skipstjóri á Jónu Eðvalds í samtali við kvótinn.is nú í hádeginu. Ásgeir Gunnarsson, framkvæmdastjóri veiða og vinnslu hjá Skinney-Þinganesi, segir að loðnan af Ásgrími sé mjög stór og góð og fari beint í frystingu fyrir markaðinn í Japan. „Það er loksins komið fjör í þetta.“ „Við fórum út í gærkvöldi eftir að samningar höfðu verið samþykktir. Þá skiptum við um nót og héldum til veiða um ellefu og ekki var langt að fara. Þetta var svona eins og í kálgarðinum heima,“ sagði Jóhannes Danner skipstjóri á Jónu Eðvalds SF í hádeginu. Hann var þá á leið í land með 1.100 tonn. Hann segir að töluvert hafi verið af loðnu á svæðinu en mikið næturbrölt á henni nema á smá bletti. „Þar voru menn að gera mjög gott, sérstaklega þegar birti. Við tókum tvö hol og dældum 1.100 tonnum í okkur og gáfum Aðalstein Jónssyni 800 tonn. Það hafa verið einhver 1.500 tonn í síðara kastinu. Við erum svo að byrja að dóla okkur heim, en við þurfum að sæta sjávarföllum til að komast inn í gegnum Ósinn. Við verðum því ekkert inni fyrr en í kvöld þó það sé stutt að fara. Flotinn er bara kominn að stærstum hluta, Vestmannaeyingarnir eru komnir, Vilhelm og Aðalsteinn og Norðfirðingarnir, Hoffellið á leiðinni allir komnir í dag nema Grandararnir, þeir koma að vestan og verða komnir í kvöld. Þetta er allt farið að snúast á fullu og menn ánægðir með að vera komnir af stað á vertíðinni. Það hefði þurft gríðarlega kjarabót í samningum hefðu menn ætlað að vinna upp eina vertíð. Það hefði aldrei gengið.“ Jóhannes segir að þetta sé fínasta loðna, mjög stór og hátt hlutfall af hrygnu, úrvals Japansloðna. Hann segist halda að þetta sé fremsti hluti göngunnar sem þeir eru að veiða úr núna. „Það passar við það að Júpíter færeyski var áður að veiða við Stokksnes og svo fóru menn að veiða eitthvað austar. En það passar miðað við tíma þetta hafi verið að koma hingað, enda hafa hinir verið að koma austan að og ekki séð neitt fyrr en hérna.“ Jóhannes segist vonast til að ná kvótanum. Það velti aðallega á tíðarfarinu hvernig þetta gangi. Nú hefur verið einmuna vorblíða alla daga, vonandi fari akki að skipta yfir. „Við megum ekki við því að fá langa brælukafla alla vega. Það er ekki svo mikið eftir og loðnan er held ég komin óvenjulangt í hrognafyllingu miðað við árstíma. Ég held að það muni einhverjum prósentum. En þessi fyrsti dagur loðnuvertíðar lítur ljómandi vel út. Það var næturveiði í nótt, en við höfum ekki vanist því undanfarin ár. Hún dreifir úr sér yfir nóttina og verður illveiðanleg. Það viðist þurfa að vera mjög mikið af henni til að hún þétti sig yfir nóttina. Það er gaman að fá að taka þátt í þessu aftur,“ sagði Jóhannes Danner. Heimild www.kvotinn.is Skrifað af Þorgeir 20.02.2017 00:04Brottfarir Samherjaskipa i kvöld
Skrifað af Þorgeir 19.02.2017 15:04Vilhelm og Kaldbakur
Skrifað af Þorgeir 19.02.2017 14:592600 Guðmundur Ve 29 með fullfermi
Skrifað af Þorgeir 17.02.2017 23:382891 Kaldbakur EA 1 lagður af stað heimleiðisGlæsilegt skip á heimleið Þá er hinn nýji Kaldbakur EA1 lagður af stað heimleiðis frá Tyrklandi og má reikna með að siglingin til Akureyrar taki um tvær vikur gangi allr að óskum
Skrifað af Þorgeir 15.02.2017 22:461019 Sigurborg SH 12Rækjulistinn árið 2016. Aflafrettir.is
Lokalistinn.
Svona endaði þá árið 2016.
Samtals var landa 6402 tonnum af rækju og af því þá voru um 600 tonn af frystri rækju og var það mest frá Brimnesi RE. Eyborg ST var líka með frysta rækju .
inná þennan síðasta lista ársins 2016 þá voru einungis þrír bátar sem lönduðu afla.
Ýmir BA var með 11,4 tonn í þremur róðrum
Múlaberg SI 13 tonn í 2
og Sigurborg SH gerði heiðarlega tilraun til þess að ná eitt þúsund tonnum. hugsanlega hefði Sigurborg SH náð því hefði verkfallið ekkið skollið á.
Sigurborg SH var með 98 tonn í 5 löndunum.
og sem fyrr þá var Sigurborg SH aflahæsti rækjubátur landsins árið 2016 með' 948 tonn í 45 löndunum eða 21 tonn í róðri. Skrifað af Þorgeir 15.02.2017 14:11Krókakallinn AtliAtli Jóhannsesson flutti sig um set þegar hann hætti að vinna en hann hafði verið viðloðandi Eskju i um það bil 43 ár bæði sem verkstjóri og rekstrarstjóri yfir lönduninni i um 10 ár þegar þetta var búið og kallinn kominn á eftirlaun ákváðu þau hjónin að flytja til Akureyrar og keypu sér litla ibúð i Brekkugötu 45 og þar hefur Atli verið að dunda við að hnýta handfærakróka og búa til Makrilslóða ekki er yfirbyggingin stór aðeins 1.95 Fm að sögn Atla er þetta passlegt þvi að þá koma fáir i kaffi og ekki miklar frátafir frá vinnu en ég hef samt góða menn i kringum mig fyrir skömmu var hannaður nýr krókur sem að hitti beint i mark nokkrir hafa prufað hann og segja hann þann besta á markaðnum Þeir sem hafa prufað hann eru Unsteinn á Sigga Bessa SF ,Guðjón á Óla Gisla .Magni á Tjúlla ásamt fleirum og er stöðugt verið að hugsa um nýjungarog er von á þeim vorið 2018 en fyrirtækið Ásfiskur fyrirtæki Atla heldur utanum framleiðsluna á krókunum og Slóðunum og gerir hann sér vonir um að opna heimasiðu fyrirtækisins innan tveggja vikna eða i lok Febrúar að sögn Atla sem að var hinn brattasti þegar heimasiðan tók hús á honum i dag og ef að þið viljið panta króka eða Makrilslóða er siminn hjá honum 8619060
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 1247 Gestir í dag: 37 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060663 Samtals gestir: 50940 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 15:43:08 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is