Færslur: 2022 Janúar

25.01.2022 08:17

Slippurinn Akureyri næg verkefni framundan

                               Mikið um að vera i slippnum mynd þorgeir Baldursson 24 jan 2022

Hrafn Sveinbjarnarson kom í Slippinn fyrir rúmum tveimur vikum síðan en til stendur að aðstoða Kælismiðjuna Frost við niðurrif á frystikerfinu í skipinu,

smíða nýtt frystivélarrými, mála vinnsludekkið í skipinu ásamt öðrum minniháttar viðhaldsverkefnum.

Sveinbjörn Pálsson nýráðinn sviðsstjóri skipaþjónustu Slippsins Akureyri er ánægður með stöðu mála þessar vikurnar.

„Verkefnastaðan er góð en sökum stærðar okkar við höfum þó yfirleitt tök á því að bæta við okkur verkefnum, komi upp þannig aðstæður. Við erum byrjaðir að fá inn bókanir fyrir næsta ár enda erum við að upplifa að afhendingartími á öllum aðföngum er mun lengri áður og því er mjög mikilvægt að skipuleggja verkefnin vel og huga snemma að viðhaldsmálum komandi mánaða. Við hjá Slippnum höfum verið að undirbúa okkur fyrir að geta þjónustað viðskiptavini okkar sem best, bæði með aukinni verkþekkingu sem og útvegun aðfanga í gegnum tengslanet okkar innanlands sem og erlendis. Útgerðir uppsjávarskipa eru nú í óða önn að undirbúa stóra loðnuvertíð og erum við nú að aðstoða útgerðirnar við undirbúning skipa fyrir hana. Þetta er gríðarleg lyftistöng fyrir útgerðina sem og alla þá sem starfa við að þjónusta sjávarútveginn“ segir Sveinbjörn.

Í framleiðsludeild Slippsins er áfram unnið að nýsmíði í Frosta ÞH en einnig er unnið að ráðgjöf og smíði búnaðar fyrir innlenda aðila sem og erlenda sem vonandi verður hægt að segja frá seinna.

nýlega var birjað á að skipta um millidekk á Færeysku skipunum Rokur og Heykur 

24.01.2022 21:10

Línubátar 2021. Sandell í fyrsta og Hafrafell í þriðja sæti yfir landið.

 

24. 01. 2022

Frábært árangur hjá Sandfelli og Hafrafelli.

 

 

Tekið af vef aflafrétta.is

Inn á vef aflafrétta má sjá lista yfir aflahæstu báta yfir 21 BT árið 2021.

 

Nokkuð gott ár hjá þeim og eins og sést þá voru 4 bátar sem fóru í fleiri enn 200 róðra árið 2021 ,enn þeir bátar eru flestir með 2 áhafnir. Reyndar er Sunnutindur SU þarna á þessum lista enn hann  að vera á listanum bátar að 21 BT árið 2021smá tæknileg bilun varð í stjórnkerfi aflafretta og því er Sunnutindur SU á þessum lista, enn á að vera í sæti númer 7 á hinum listanum,3 bátar náðu yfir 2000 tonna aflann sem er ansi góður árangur, Indriði Kristins BA átti feikilega gott ár og náði að klóra sér í annað sætið,Toppsætið var í raun aldrei spurning.  Sandfell SU var þar með um 2467 tonna afla.

 

       2841 Sandfell SU 75 0g 2912 Hafrafell Su 65 við bryggju á Neskaupstað mynd þorgeir Baldursson jan 2022

                             2912 Hafrafell SU 65 kemur til Stöðvarfjarðar mynd þorgeir Baldursson jan 2022

                    Hafrafell SU 65 og Sandfell SU 75 á Stöðvarfirði i siðustu viku mynd þorgeir Baldursson jan 2022

                            Löndun úr Sandfelli SU 65 Á Stöðvarfirði mynd þorgeir Baldursson 2022

                             Löndun úr Hafrafelli SU 65 á Stöðvarfirði mynd þorgeir Baldursson jan 2022

                      Fjöldi Linubáta landar reglulega á Stöðvarfirði mynd þorgeir baldursson jan 2022

18.01.2022 17:09

Stöðvarfiði i gær brælustopp

          mikið um að vera á Stöðvarfiði í gær mynd þorgeir Baldursson 17 jan 2022

alls voru fimm linubatar að landa á Stöðvarfiði í gær en leiðindaveður var að miðunum og erfitt 

fyrir linubatana sem að héldu til veiða aftur í morgun eftir bræluna 

17.01.2022 20:51

Jón Kjartansson Su 111

                                  Jón Kjartansson Su 111 á Eyjafirði mynd þorgeir Baldursson 

16.01.2022 12:13

Ljósafell Su 70 á landleið

                       1277 Ljósafell Su 70 á landleið  með fullfermi mynd þorgeir Baldursson 

 

13.01.2022 23:38

Tasllaq Gr-6-41 á Fáskrúðsfirði

                   Tasllaq GR-6-41 á Fáskrúðsfirði mynd þorgeir Baldursson 

07.01.2022 04:19

Kristinn ÞH163

                       Kristinn ÞH 163 mynd þorgeir Baldursson 

05.01.2022 13:07

Guðrún Þorkelsdottir su211

           2944 Guðrún þorkelsdóttir Su 211  við bryggju á Eskifirði mynd þorgeir Baldursson 

03.01.2022 23:49

djúp lægð á leiðinni

Djúp lægð á leiðinni

Lægðin gæti slegið einhver met.

Lægðin gæti slegið einhver met. Skjáskot/blika.is

 

Það sjást varla dýpri lægðir en sú sem er á leiðinni til lands­ins á fimmtu­dag­inn næst­kom­andi, af því er frá grein­ir á veður­fræðivef Ein­ars Svein­björns­son­ar veður­fræðings. 

Ein­ar seg­ir í sam­tali við mbl.is of snemmt að segja til um hvort hún muni valda óveðri en þau fylgja oft djúp­um lægðum. „Maður hrekk­ur alltaf svo­lítið við þegar maður sér svona djúp­ar lægðir, sér­stak­lega þegar þær koma án allra fyr­ir­boða. Hún eig­in­lega bara sprett­ur úr ein­hverj­um hálf­gerðum ró­leg­heit­um,“ seg­ir Ein­ar.

Ekki er lík­legt þó að þessi lægð slái dýpt­ar­metið en þó er ekki úti­lokað að um verði að ræða dýpstu lægð þess­ar­ar ald­ar.

Á vef Ein­ars grein­ir frá því að yfir suður­ríkj­um Banda­ríkj­anna sé nú lægð sem veld­ur miklu vetr­ar­veðri á aust­ur­strönd­inni í dag en hún held­ur síðan áfram upp með strönd­inni og suður fyr­ir Ný­fundna­land. Þar mæt­ir lægðin mjög köldu lofti og dýpk­ar hratt á miðviku­dag en á fimmtu­dags­morg­un er lægðamiðjunni spáð vest­ur af Faxa­flóa. Stand­ist spárn­ar verði þrýst­ing­ur í lægðamiðju 925 hPa.

 

03.01.2022 09:49

VIÐBURÐARÍKT ÁR AÐ BAKI HJÁ SÍLDARVINNSLUNNI

                     Bræslan frystihús og skip Sildarvinnlunnar mynd þorgeir Baldursson 3 júni 2021

VIÐBURÐARÍKT ÁR AÐ BAKI HJÁ SÍLDARVINNSLUNNI

 

 

Gunnþór Ingason, forstjóri Síldarvinnslunnar ritar eftirfarandi áramótapistil á heimasíðu fyrirtækisins. Þar segir hann að Covid hafi haft sín áhrif eins og annarsstaðar. En margt hafi verið jákvætt og fagnar nýhafinni loðnuvertíð:

„Við áramót stöldrum við oft við og förum yfir liðið ár. Hjá okkur hefur árið verið viðburðaríkt, við fengum loðnuvertíð aftur eftir tveggja ára loðnuleysi og var það kærkomið þegar gefinn var út 70 þúsund tonna loðnukvóti þann 5. febrúar sl. Þó magnið væri ekki mikið náðum við að koma nánast öllu okkar magni til manneldisvinnslu og hámarka verðmætin enda var ástand markaða með þeim hætti að loðnuafurðir voru seldar á metverðum. Þannig sáum við verð á Asíuloðnu í hæstu hæðum, loðnuhrogn seldust á háum verðum og loðna framleidd fyrir Austur-Evrópu fór einnig á háum verðum. En þar sannast hið forkveðna að menn verða að gæta sín í græðginni og skilja markaðina því loðnuverð á Austur-Evrópu fóru það hátt að kaupendur sneru sér að öðru því kaupgetan er takmörkuð í þessum löndum. Þetta minnir okkur á að við erum hluti af virðiskeðju frá hafi á disk neytenda og allir hlekkirnir þurfa að vera í lagi, því árin endurtaka sig og við viljum að fólk kaupi fiskinn okkar aftur og aftur.

Uppsjávarveiðar gengu vel

Kolmunnaveiðin gekk vel og náðum við að klára okkar kvóta þar, mjöl og lýsisverð hafa verið á góðum stað. Makríllinn lét hafa töluvert fyrir sér í ár og lengra var að sækja hann en með samstilltum kröftum tókst okkur að spila vel úr okkar og kláruðum við okkar kvóta og vel það á meðan töluvert af heimildum eru óveiddar á milli ára. Þarna er fyrst og fremst um að þakka veiðisamstarfi sem skip Síldarvinnslunnar og Samherja áttu með sér um veiðarnar. Án þess hefðu málin verið með öðrum hætti. Er ég þakklátur sjómönnum skipanna fyrir hversu vel þeir hafa unnið saman í þessu samstarfi og nú látum við reyna á að það verði samstarf í gegnum loðnuvertíðina hjá sömu skipum en slíkt samkomulag er í vinnslu og fer í atkvæðagreiðslu um borð í skipunum.

Síldveiðin gekk vel í haust. Norsk-íslenska síldin hélt sig enn og aftur uppi í kálgörðum og markaðir voru góðir fyrir síld framan af. Íslenska síldin kom til baka sem manneldisfiskur en megnið af okkar kvóta þar var unnið til manneldis sem hefur ekki verið gert í nokkur ár.

Heilt yfir gengu uppsjávarveiðar og vinnsla vel. Fiskiðjuverið tók á móti 71 þúsund tonnum af hráefni sem er nýtt met þar á bæ. Fiskimjölsverksmiðjurnar tóku á móti 150 þúsund tonnum. Uppsjávarskipin veiddu 140 þúsund tonn, fyrir 6,9 milljarða samanborið við 120 þúsund tonn í fyrra fyrir 5,2 milljarða á árinu 2020.

Ánægjulegt að taka við nýjum Berki

Bolfiskveiðarnar gengu heilt yfir vel en þó var smávægilegur samdráttur á milli ára. Blængur var í slipp í janúar og svo lentum við í brunanum um borð i Vestmannaey sem var síðan frá veiðum síðustu 2 mánuði ársins, en fram að því stefndi í metár hjá Eyjaskipunum. Aflaverðmæti skipanna var 6,5 milljarðar á árinu í stað 6,2 árið áður. Aflinn var lítið eitt niður. Við kláruðum kaupin á Berg ehf. í Vestmannaeyjum á árinu og seldum svo skipið á haustmánuðum. Bolfiskvinnslan á Seyðisfirði vann úr 2600 tonnum á árinu.

                                                          2983 Börkur Nk 122 mynd þorgeir Baldursson 3 júni 2021 

Það var virkilega ánægjulegt að taka við nýjum Berki um sjómannadagshelgina og hefur skipið staðið undir flestum okkar væntingum á fyrstu mánuðum í rekstri. Það er virkilega gaman að takast á við verkefni eins og að smíða skip. Margir koma að slíku verki og eiga þeir allir miklar þakkir skildar. Áhöfnin á stóran þátt í mörgum lausnum og á hún þakkir skildar ásamt félögum okkar og samstarfsaðilum hjá Samherja sem komu mikið að smíði skipsins og var samstarfið við þá ánægjulegt.

Vinna við stækkun hrognavinnslunnar er í fullum gangi hjá okkur núna og stefnum við á að hún verði tilbúin fyrir vertíðina í vetur.

Miklar framkvæmdir

Framkvæmdir við stækkun fiskimjölsverksmiðjurnar eru komnar á fulla ferð. Unnið er að því að reisa húsið og svo verður farið á fullt í að setja minni verksmiðjuna upp og hafa hana klára fyrir sumarið. Ásamt því verða lausnir yfirfarnar og unnið að frekari stækkun verksmiðjunnar. Að þessu verki hafa komið verktakar í bænum ásamt fleirum og starfsmenn okkar hafa verið önnum kafnir við verkið líka.

Rafvæðing skipa við löndunarbryggju var stórt framfaraskref sem eftir var tekið og er ég fullviss um að margir eigi eftir að stíga það skref. Við eigum stöðugt að vera að vinna að lausnum í umhverfis- og samfélagsmálum og hafa trúna á að hægt sé að gera betur og ná góðum árangri. Við birtum samfélagsskýrslu okkar á árinu og munum halda áfram að þróa upplýsingagjöf og utanumhald um okkar umhverfismál.

Fyrri hluti árs fór í vinnu að skráningu félagsins á markað. Getum við verið stolt af þeim móttökum sem félagið hefur fengið og þann áhuga sem markaðurinn og samfélagið hafa sýnt félaginu frá skráningu. Vissulega fylgja skráningunni ýmsar áskoranir sem við ætlum okkur að standa undir. Það mun örugglega taka okkur nokkur misseri að ná fullkomlega utan um þær allar. Við munum gera okkar besta í því hér eftir sem hingað til.

Rekstur Síldarvinnslunnar eins og annarra fyrirtækja fer ekki varhluta af Covid. Ég verð að viðurkenna að þetta er hundleiðinlegt að verða. Ég held að þetta snerti okkur öll með einum eða öðrum hætti. Sjálfur hef ég aldrei farið eins lítið um fyrirtækið og í ár og þar af leiðandi hitt færri starfsmenn þess. Ég sakna samskiptanna við starfsfólkið. En þetta er stríð sem við stöndum saman í. Okkur hefur gengið vel hingað til en nú eftir áramót hefst enn ein orrustan sem snýst um að verjast því að veiran muni hafa áhrif á komandi mánuði í rekstri en þeir eru okkur gríðarlega mikilvægir. Þarna er treyst á liðsandann og samtakamáttinn.

Ein stærsta loðnuvertíðin framundan

Framundan er síðan ein stærsta loðnuvertíð sem við höfum fengið í mörg ár og verður mikil áskorun fyrir okkur að láta hana ganga upp, veiða, vinna og hámarka verðmæti þeirra heimilda sem við höfum úr að moða. Loðnukvótinn kom sem sprengja í fangið á okkur í haust og hefur þurft að bregðast hratt við með stórum ákvörðunum eins og veiðarfærakaupum, skipakaupum og fleiri ákvörðunum.

Við erum að ljúka ári sem er búið að vera fullt af áskorunum og verkefnum. Það er að hluta til það sem gerir starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja öðruvísi. Við erum ekki alltaf með fyrirsjáanleika og þurfum oft að bregðast fljótt við aðstæðum. Til þess að slíkt gangi þarf gott fólk. Fyrirtæki eins og Síldarvinnslan byggir á öflugu starfsfólki á öllum vígstöðvum, það er búið að vera mikið álag á öllum á árinu; langar vertíðar, Covid og miklar framkvæmdir í gangi.

Að lokum vil ég þakka öllum ánægjulegt samstarf og samskipti á árinu sem er að líða og hlakka til að takast á við áskoranir komandi árs með ykkur öllum. Vona að þið séuð búin að eiga náðug jól með ykkar fólki og munið að eiga góð áramót.“

02.01.2022 23:57

Vilhelm þorsteinsson EA11 til veiða

                                    2892 Vilhelm þorsteinsson EA11 mynd þorgeir Baldursson 2-1-2022

02.01.2022 13:27

Þunglestaður i Sandgerðisbótinni

         2356 Helgi Hallvarðs NS30 i Sandgerðisbótinni mynd þorgeir Baldursson 2 jan 2022

                                 2356 Helgi Hallvarðsson NS30 mynd þorgeir Baldursson 2 jan 2022

01.01.2022 20:38

Tasiilaq GR 6-41 að koma til Þórshafnar

                       Grænlenska Loðnuskipið Tasiilaq GR 6-41 mynd þorgeir Baldursson 

Grænlenska Uppsjávarveiðiskipið Tasiilaq sem að verið hefur á loðnuveiðum úti fyrir norðurlandi ásamt tveimur öðrum skipum

er að koma inn til Þórhafnar á Langanesi og er aflinn um 400 tonn eftir stuttan tima en erfið veðurspá næstu daga er þess valdandi 

að skipið leitar hafnar og mun landa aflanum hjá Isfélagi vestmannaeyja sennilega á morgun 

01.01.2022 11:34

Gleðilegt ár

Myndasyrpa úr Sandgerðisbótinni með óskum um gleðilegt ár og þökkum fyrir innlitið á Árinu sem var að liða 

                                                           7025  Daney EA 240 Mynd þorgeir Baldursson 2021

                                                          6546 Birta Þh 169. mynd þorgeir Baldursson 2021

                                                   5342 Hafræna EA 32 mynd þorgeir Baldursson 2021

                                               Sævar Skemmtibátur mynd þorgeir Baldursson 2021

                                                        2836 Gefjun EA 510 mynd þorgeir Baldursson 2021

                                                         7344 Von ÓF 69 Mynd þorgeir Baldursson 2021

                                                          7209 Skemmtibátur mynd þorgeir Baldursson 2021

                                                         6393 Sæfari mynd þorgeir Baldursson 2021 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 801
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 1838
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 918280
Samtals gestir: 46277
Tölur uppfærðar: 18.10.2024 11:06:11
www.mbl.is