Færslur: 2008 Október15.10.2008 18:52Kristín ST 61Þessi opni bátur er talinn vera síðasti báturinn sem Jóhann L. Gíslason í Hafnarfirði byggði. Fór báturinn fyrst til Keflavíkur þar sem hann fékk nafnið Elín KE 24 og var í eigu Garðars Brynjólfssonar og Ástvalds Bjarnasonar, síðan eignaðist Garðar bátinn einn og seldi hann eftir nokkur ár til Drangsnes þar sem Erling Brim Ingimundarson eignaðist hann. Enn er báturinn á Drangsnesi og heitir í dag Kristín ST 61, en Erling seldi hann og keypti síðan aftur, en annar eigandi er að honum í dag. 5796. Kristín ST 61 © mynd Erling Brim Ingimundarson Skrifað af Emil Páli 15.10.2008 18:42Hásteinn ÁR 81751. Hásteinn ÁR 8 © mynd Þorsteinn Guðmundsson Mynd þessi var tekin í gær út af Ingólfshöfða og sýnir Hástein sem þar var á dragnótaveiðum. Þar sem Þorsteinn sem er á Hvanney SF, hafði aðeins síma sinn við hendina tók hann myndina í gegn um hann og sendi okkur hana með símanum og því hefur myndin tapað sér nokkuð eins og sést. Þökkum við honum engu að síður kærlega fyrir sendinguna. Skrifað af Emil Páli 15.10.2008 14:38Sighvatur GK 57Í góða veðrinu í dag voru þeir á Sighvati GK 57 að stilla kompásinn út á ytri höfninni í Njarðvík og notaði síðuritari tækifærið og tók meðfylgjandi myndir af bátnum, svo og skipstjóra hans og útgerðarstjóra Vísis hf. Skipstjórinn er Unnsteinn Líndal sem verið hefur skipstjóri bátsins í 14 ár og um borð í 17 ár. Þegar hann hóf störf var hann talinn yngsti skipstjóri flotans og er enn meðal þeirra yngri. Þá birtum við mynd af merki því sem Vísismenn hafa sett á línuskipin sín. 975. Sighvatur GK 57 F.v. Unnsteinn Líndal skipstjóri Sighvats GK 57 og Kjartan Viðarsson útgerðarstjóri Vísis hf. eiganda skipsins. Merki það sem Vísismenn hafa sett á línuskip sín: Long line caught © myndir Emil Páll Skrifað af Emil Páli 14.10.2008 23:15Sveinn Jónsson KE 9Togari þessi bar aðeins tvö nöfn hérlendis þ.e. Dagstjarnan KE 9 og Sveinn Jónsson KE 9 og var gerður út héðan í 27 ár. Áður hafði hann borið í nokkra mánuði í Noregi nafnið Afford og það merkilega er að eftir að togarinn var seldur til Cape Town í Suður-Afríku hefur hann áfram borið í íslenska nafnið og heitir þar því nú Sveinn Jónsson OTA-747-D. 1342. Sveinn Jónsson KE 9 © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli 14.10.2008 23:05Thor AlphaÞetta líkan af Thor Alpha var sýnt á Sjávarútvegssýningunni í Fífunni. Dráttarbáturinn er frá Hosvík í Færeyjum og er með smíðanr. 56 frá Skálaskipasmíðastöðinni, einnig í Færeyjum og er frá síðasta ári. Líkan af Thor Alpha © myndir Þorgeir Baldursson Skrifað af Emil Páli 14.10.2008 15:14Á Eskifirði í dagTogarinn Kaldbakur EA 1 landaði í dag á Eskifirði og notaði Þorgeir Baldursson tækifærið og tók mynd af fjórum bátum sem komu inn nú eftir hádegið. Auk þess sem hann tók mynd af skipstjórum tveggja þeirra, þ.e. Betu VE 36 sem kom með um 4 tonna afla að mestu ýsa og Benna SF sem landaði milli 3-4 tonnum, mest af því var einnig ýsa. Skrifað af Þorgeir og Emil Páli 14.10.2008 11:46Ekki enn birt ákæraÁsmundi Jóhannssyni hefur ekki enn verið birt ákæra fyrir veiðar án kvóta, en bátur hans hefur legið í Sandgerðishöfn síðan lögreglan innsiglaði hann í sumar. Að sögn Grétars Mar Jónssonar, alþingismanns tilkynnti Ásmundur, Fiskistofu að hann myndi hefja róðra um 18. júní og réri hann sjö róðra áður en báturinn var innsiglaður. Bátur Ásmundar: 5843. Júlíana Guðrún GK 313 © mynd Þorgeir Baldursson. Skrifað af Emil Páli 14.10.2008 00:54Baldur og ÆgirSjómælingaskipið Baldur og varðskipið Ægir © mynd Guðjón H. Arngrímsson Skrifað af Emil Páli 13.10.2008 22:45Ófeigur II og III VEÓfeigur II VE 324 Ófeigur III VE 325 © myndir úr safni Tryggva Sig. Skrifað af Emil Páli 13.10.2008 19:59Magnús KE 461677. Magnús KE 46 © mynd Erling Brim Ingimundarson Skrifað af Emil Páli 13.10.2008 17:22Jóhanna Magnúsdóttir RE 70708. Jóhanna Magnúsdóttir RE 70 © mynd Tryggvi Sig. Skrifað af Emil Páli 13.10.2008 17:17Ægir Jóhannsson ÞH 2121430. Ægir Jóhannsson ÞH 212 © mynd Emil Páll Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 526 Gestir í dag: 38 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 991947 Samtals gestir: 48545 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 10:27:28 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is