Færslur: 2009 Maí19.05.2009 06:37Þekkið þið þennan?Þekkið þið þennan? © mynd Birgir Karlsson Ekki er síðuritari öruggur um það hvaða bátur er hér á myndinni og varpar spurningunni því til ykkar lesendur góðir. Skrifað af Emil Páli 19.05.2009 06:26Straumur HU 5Bátur þessi var í upphafi smíðaður fyrir Hafnamenn í Hafnarfirði á árinu 1964 og fékk þá nafnið Straumur GK 302. Ekki var hann þó gerður þar út lengi því á öðru ári komst hann í eigu Fiskveiðasjóðs og þaðan fór hann til Neskaupstaðar þar sem hann hélt nafninu, en fékk nr. NK 20. Því næst varð það SI 222 frá Siglufirði og því næst var hann seldur til Hvammstanga þar sem hann fékk nafnið Straumur HU 5. Rak bátinn upp á Hvammstanga, en náðist út, en sökk síðan út af Skaga 3. jan. 1975 á leið í viðgerð, þá í togi varðskipsins Albert. 958. Straumur HU 5 © mynd Birgir Karlsson Skrifað af Emil Páli 19.05.2009 06:19Glaður HU 1212. Glaður HU 67 © mynd Birgir Karlsson Um þennan bát hefur oft verið fjallað um hér á síðunni, en þá undir öðrum nöfnum og læt ég það því duga a.m.k. í bili. Skrifað af Emil Páli 18.05.2009 19:20Ægir á Fáskrúðsfirði í dagÆgir á Fáskrúðsfirði í dag © mynd Þorgeir Baldursson í maí 2009 Skrifað af Þorgeir 18.05.2009 19:12Sólbakur á leið í slipp í FæreyjumSólbakur EA 1 landaði á Eskifirði i dag um 140 tonnum af blönduðum afla og síðar i kvöld verður haldið með skipið í slipp í skipasmiðjuna í Skála i Færeyjum þar sem að stýrið verður fest á
en það mun vera farið að losna og er reiknað með einum sólahring i slippnum úti og að því
loknu verði haldið beint á veiðar. 1395. Sólbakur EA 1 á Eskifirði í dag © mynd Þorgeir Baldursson í maí 2009 Skrifað af Þorgeir 18.05.2009 14:26Atlas, endurbyggður í Póllandi og seldur til SingaporeTogarinn Atlas sem mikið hefur verið til umfjöllunar á skipasíðum, bæði þessari og öðrum að undanförnu hefur nú verið endurbyggður í Póllandi og síðan seldur til Singapore. En það var skipasalan Álasund sem annaðist söluna á skipinu og hefur Þórarinn Guðbergsson sent þessar myndir af skipinu eins og það leit út er það kom til Póllands og eins eftir að hafa verið selt til Singapore og er honum sendar bestu þakkir fyrir. Atlas, er skipið kom til endurbyggingar í Póllandi Álasund seldi skipið til Singapore og heitir það í dag BGP Atlas © myndir Álasund Skrifað af Þorgeir 17.05.2009 10:49Þórir á heimleið2731. Þórir SF 77 er á heimleið © mynd af heimasíðu Skinneyjar-Þinganess Þá er seinna nýsmíðaskip Skinneyjar-Þinganess, Þórir SF-77, lagt af stað frá Taiwan. Áætlaður komutími er eftir 7 vikur. Í áhöfn eru Ingvaldur Ásgeirsson, Friðrik Ingvaldsson, Sigurjón Steindórsson, Jóhannes Danner og Hákon Markússon. Strákarnir ætla að blogga um ferðina og er hægt að fylgjast með þeim á frissi.heidarsig.net Kemur þetta fram á heimasíðu Skinneyjar-Þinganess Skrifað af Emil Páli 17.05.2009 00:38Eldey KE 3742. Eldey KE 37 © mynd Snorri Snorrason Smíðaður hjá Bolsones Verft í Molde í Noregi 1960 og kom í fyrsta sinn til Keflavíkur 8. des. 1960. Ekki er saga bátsins löng því hann bar aðeins þetta eina nafn og sökk 60 sm. SSA af Dalatanga aðfaranótt 23. okt. 1965. Skrifað af Emil Páli 17.05.2009 00:32Gullþór KE 85608. Gullþór KE 85 © mynd Snorri Snorrason Smíðaður í Fredrikssund, Danmörku 1931, lengdur í Vestmannaeyjum 1953. Nöfn: Muninn GK 342, Ísleifur ÁR 4 og Gullþór KE 85. Talinn ónýtur vegna fúa 20. jan. 1982 og brenndur út í Helguvík 5. feb. 1982. Skrifað af Emil Páli 17.05.2009 00:21Jón Guðmundsson KE 4616. Jón Guðmundsson KE 4 © mynd Snorri Snorrason Þessi bátur er enn til, tæplega 50 ára gamall. Hann var smíðaður hjá Schlichting Werft í Lubeck-Travemunde í Vestur-Þýskalandi 1960 og kom í fyrsta skipti hingað til lands og þá til Keflavíkur í mars 1960. Bátinn rak upp í kletta í Eyrarbakkahöfn´1. jan. 1975 og stórskemmdist. Var honum bjargað af Björgun hf. og endurbyggður í Skipasmíðastöð Njarðvíkur hf. 1975-1976. Nöfn: Jón Guðmundsson KE 4, Ísleifur ÁR 4, Askur ÁR 13, Guðbjörg ST 17, Laufey ÍS 251, Dagur SI 66, Egill BA 77, Stefán Rögnvaldsson EA 345 og Stefán Rögnvaldsson HU 345. Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2319 Gestir í dag: 57 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 993740 Samtals gestir: 48564 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 11:09:39 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is