Færslur: 2009 Júlí27.07.2009 00:03Baldur2074. Baldur, Sjómælingaskip Landhelgisgæslunnar kemur á sjöunda tímanum í kvöld (sunnudag) til Keflavíkur, en samkvæmt vef Landhelgisgæslunnar hafði skipið verið sent til aðstoðar Hollenskri skútu sem missti mastrið á leið sinni frá Grænlandi til Íslands og var statt á karfamiðunum á Reykjaneshrygg. Ekki þurfti Baldur þó að draga skútuna til lands, heldur sigldi hún fyrir eigin vélarafli til Reykjavíkur, en Baldur hélt áfram starfi við fiskveiðieftirlit. 2074. Baldur kominn að bryggju í Keflavík © myndir Emil Páll í júlí 2009 Skrifað af Emil Páli 26.07.2009 16:06Prince Albert KE 81764. Prince Albert KE 8 © mynd Emil Páll í júlí 2009 Nú um helgina var sjósettur í Sandgerði þessi bátur eftir að hafa staðið uppi á bryggju í Sandgerði sl. 3 ár. Fyrst var unnið í honum og sett á hann perustefni en síðan hefur ekkert verið unnið í honum fyrr en nú síðustu mánuði, að nýir aðilar komu þar að verki. Bátur þessi var smíðaður á Skagaströnd og í Hafnarfirði. Skrokkurinn var smíðaður með smíðanr. 24 hjá Guðmundi Lárussyni á Skagastörnd á árunum 1983-1984, en innréttaður og fullkláraður hjá Bátalóni hf. með smíðanr. 471 og hleypt þar af stokkum 28. feb. 1987. Báturinn var síðan lengdur 1991. Hann hefur borið nöfnin: Katrín GK 98, Óskasteinn GK 216, Hraunsvík GK 68, Anton GK 68 og núverandi nafn Prince Albert KE 8. Skrifað af Emil Páli 26.07.2009 15:54Vaðandi makríll inni í KeflavíkurhöfnUndanfarna daga hefur verið mikil stangaveiði á makríl í mörgum af höfnum landsins, enda virðist vera mikið af honum og sem dæmi þá var hann vaðandi í Keflavíkurhöfn í gær. Í dag er tíðindamaður síðunnar leit þar við var mikil stangaveiði, enda virðist hafnargarðurinn vera með vinsælli stöðum bæjarins og voru þar t.a.m. einir 23 bílar á garðinum. Skrifað af Emil Páli 26.07.2009 00:05Góð verkefnastaða hjá SólplastiÞeir hjá plastverksmiðjunni Sólplasti í Sandgerði þurfa ekki að kvarta yfir verkefnaleysi eins og staðar er í augnablikinu, því nokkur verkefni eru í gangi og síðan bíða önnur. Hér munum við segja frá þremur þeirra verkefna sem nú eru í gangi og birta myndir af þeim þ.e. Arnþór EA ex Bresi, Oddi á Nesi og Tryggva Eðvarðs. 1887. Arnþór EA 102 ex Bresi AK 101, 6241. Hera BA 51 og 2615. Oddur á Nesi SI 76 1887. Arnþór EA 102 ex Bresi AK 101 Mjög miklar breytingar og endurbætur eru á þessum báti og sjálfsagt fer hann með nýtt nafn og einkennistarfi ÁR, þegar þeirri vinnu er lokið, þar sem eigendur bátsins eru frá Eyrarbakka. 2615. Oddur á Nesi SI 76 Hafin er endurbygging bátsins eftir brunann í vetur í húsi Sólplasts. En þá voru nokkrir klukkutímar í sjósetningu eftir að gert hafði verið við bátinn úr fyrri bruna í Sandgerðishöfn í vetur. 2579. Tryggvi Eðvarðs SH 2 © myndir Emil Páll 2009 Þennan bát er verið að breyta svolítið og endurbæta hjá fyrirtækinu Skrifað af Emil Páli 25.07.2009 21:12Valberg farið til GrænlandsUm kl. 15 í dag hélt Valberg VE 10 frá Njarðvík og var stefnan tekin á Grænland, en þar fer skipið í verkefni til þjónustu fyrir rannsóknarskip, sem mun rannsaka hugsanlega olíu við Grænland. Hér sjáum við 1074. Valberg VE 10 fara í dag 25. júlí frá Njarðvík til Grænlands © mynd Emil Páll 2009 Skrifað af Emil Páli 25.07.2009 01:22Fimm eikarbátar í NjarðvíkFimm eikarbátar í Njarðvík f.v. 619. Fanney HU 63, 399. Aníta, 586. Stormur SH 333, 923. Röstin GK 120 og 1430. Birta VE 8 © mynd Emil Páll í júlí 2009 Skrifað af Emil Páli 25.07.2009 01:19Lena ÍS, Svanur KE og Fanney HU1396. Lena ÍS 61, 929. Svanur KE 90 og 619. Fanney HU 83 í Njarðvíkurhöfn © mynd Emil Páll í júní 2009 Skrifað af Emil Páli 25.07.2009 01:02Tjaldur SU 1795655. Tjaldur SU 179 © mynd Þorgeir Baldursson 2009 Skrifað af Emil Páli 24.07.2009 15:41Þekkið þið höfnina?Hérna kemur smá getraun: Þekkið þið höfina sem hér sést úr lofti? Rétt svar birtist um helgina verði það ekki komið áður. © mynd Óskar Óskarsson í júlí 2009 Skrifað af Emil Páli 24.07.2009 07:01Tveir fossar til SamskipaSilver Sea, norskt skipafélag sem er að helmingshluta í eigu Samskipa, hefur nýlega bætt tveimur frystiskipum í flota sinn sem áður voru í eigu Eimskips í Noregi: Dalfoss og Langfoss. Heita skipin nú Silver River og Silver Lake en þau voru í fyrstu smíðuð fyrir Eimskip í Noregi árið 2007. Eru skipin tekin á þurrleigu til næstu ára, með möguleika á kauprétti síðar. Silver Sea hefur yfir 14 sérhæfðum frystiskipum að ráða og er fyrirtækið nú orðið annað af tveimur leiðandi félögum í flutningum á frystum afurðum í Norður-Atlantshafi. Meginstarfsemin felst í flutningi á frystum fiski frá Noregi, Íslandi, Hjaltlandseyjum og Færeyjum til Eystrasaltsríkjanna, Rússlands og Evrópu. Helstu afurðirnar sem skip Silver Sea flytja eru uppsjávarfiskur eins og síld, makríll, kolmunni og loðna. HEIMILD mbl.is Skrifað af Emil Páli 24.07.2009 00:02Þórshöfn í FæreyjumHér koma nokkrar myndir sem Þorgeir Baldursson tók í ferð sinni til Færeyja í maí sl. og eru þessar teknar í Þórshöfn. Frá Þórshöfn í Færeyjum © myndir Þorgeir Baldursson í maí 2009 Skrifað af Emil Páli |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 2319 Gestir í dag: 57 Flettingar í gær: 1455 Gestir í gær: 74 Samtals flettingar: 993740 Samtals gestir: 48564 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 11:09:39 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is